Vodafone opnar gagnaherbergi

Vodafone hakkað | 2. desember 2013

Vodafone opnar gagnaherbergi

Vodafone hefur komið upp gagnaherbergi hjá Málflutningsstofu Reykjavíkur, Húsi verslunarinnar. Þar geta viðskiptavinir fyrirtækisins gengið úr skugga um hvort upplýsingar um þá er að finna í gögnum sem lekið var á netið um helgina. Viðskiptavinir þurfa að framvísa persónuskilríkjum en gagnaherbergið verður opið í dag og á morgun, þriðjudag, kl. 10-16. Ekki verða veittar upplýsingar rafrænt eða í gegnum síma.

Vodafone opnar gagnaherbergi

Vodafone hakkað | 2. desember 2013

Voda­fo­ne hef­ur komið upp gagna­her­bergi hjá Mál­flutn­ings­stofu Reykja­vík­ur, Húsi versl­un­ar­inn­ar. Þar geta viðskipta­vin­ir fyr­ir­tæk­is­ins gengið úr skugga um hvort upp­lýsing­ar um þá er að finna í gögn­um sem lekið var á netið um helg­ina. Viðskipta­vin­ir þurfa að fram­vísa per­sónu­skil­ríkj­um en gagna­her­bergið verður opið í dag og á morg­un, þriðju­dag, kl. 10-16. Ekki verða veitt­ar upp­lýsing­ar ra­f­rænt eða í gegn­um síma.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu sem og í aug­lýs­ing­um sem birt­ar voru í dag­blöðum í dag.

79 þúsund SMS-skila­boð

Aðfaranótt 30. nóv­em­ber var brot­ist inn á heimasíðu Voda­fo­ne, þaðan sem gögn­um var stolið. Meðal þeirra voru 79 þúsund SMS-skeyti, not­enda­nöfn og lyk­il­orð að Mín­um síðum og upp­lýs­ing­um um nöfn og kenni­töl­ur til­tek­inna viðskipta­vina. Þá komst hakk­ar­inn yfir eitt gilt kred­it­korta­núm­er, frá viðskipta­vini sem var í vef­versl­un síðunn­ar þegar inn­brotið átti sér stað. Ekki var stolið upp­lýs­ing­um úr kred­it­korta­grunni en í nokkr­um til­fell­um inni­héldu vef-sms-skeyti viðskipta­vina upp­lýs­ing­ar af þessu tagi. Alls var um 300 MB af gögn­um stolið af síðunni.

Fjar­skipta­lög kveða skýrt á um að varðveisla gagna leng­ur en sex mánuði er óheim­il. Ljóst er að stór hluti hinna stolnu gagna var eldri en það og „ber Voda­fo­ne fulla ábyrgð á því“, seg­ir í frétt á vefsíðu Voda­fo­ne.

„Ástæður þess voru eft­ir­far­andi: Á heimasíðunni var viðskipta­vin­um boðið að vista send SMS-skila­boð. Hægt var að afþakka slíka gagna­vist­un með því að taka út til­tekið hak í val­mynd vef­gátt­ar­inn­ar. Ein­göngu voru geymd SMS þar sem merkt var við „Vista í sam­skipta­sögu“. Þetta fyr­ir­komu­lag á heimasíðu Voda­fo­ne er gallað og í því fel­ast mis­tök Voda­fo­ne.“

mbl.is