12 milljarðar til Mið-Afríkulýðveldisins

Mið-Afríkulýðveldið | 23. janúar 2014

12 milljarðar til Mið-Afríkulýðveldisins

Alþjóðabankinn ætlar að veita Mið-Afríkulýðveldinu lán upp á hundrað milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði um 11,5 milljarða króna.

12 milljarðar til Mið-Afríkulýðveldisins

Mið-Afríkulýðveldið | 23. janúar 2014

Catherine Samba-Panza sór í dag eið sem forseti Mið-Afríkulýðveldisins.
Catherine Samba-Panza sór í dag eið sem forseti Mið-Afríkulýðveldisins. ERIC FEFERBERG

Alþjóðabankinn ætlar að veita Mið-Afríkulýðveldinu lán upp á hundrað milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði um 11,5 milljarða króna.

Alþjóðabankinn ætlar að veita Mið-Afríkulýðveldinu lán upp á hundrað milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði um 11,5 milljarða króna.

Fregnirnar bárust aðeins fáeinum klukkustundum eftir að Catherine Samba-Panza sór eið sem forseti Mið-Afríkulýðveldisins, fyrst kvenna.

Bankinn sagði að fjármagnið myndi hjálpa stjórnvöldum við að veita íbúum nauðsynlega þjónustu.

Mikil átök hafa geisað í höfuðborg Mið-Afríkulýðveldisins, Bangui, upp á síðkastið og hafa þúsundir látið lífið.

Kallað hefur verið eftir viðbrögðum alþjóðasamfélagsins og svaraði Alþjóðabankinn kallinu í dag. „Við munum hjálpa íbúum Mið-Afríkulýðveldisins, sama hvað á bjátar,“ sagði Makhtar Diop, aðstoðarbankastjóri Alþjóðabankans í Afríku.

mbl.is