Tveir jarðskjálftar við Heklu

Hekla | 21. mars 2014

Tveir jarðskjálftar við Heklu

Tveir jarðskjálftar hafa mælst við Heklu undanfarinn sólarhring. Einn varð um níuleytið í gærkvöldi og annar skömmu eftir hádegi í dag en þeir voru báðir að stærð 1,2, samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofu Íslands.

Tveir jarðskjálftar við Heklu

Hekla | 21. mars 2014

Eldfjallið Hekla séð frá Gunnarsholtsvegi.
Eldfjallið Hekla séð frá Gunnarsholtsvegi. mbl.is/Sigurður Bogi

Tveir jarðskjálft­ar hafa mælst við Heklu und­an­far­inn sól­ar­hring. Einn varð um níu­leytið í gær­kvöldi og ann­ar skömmu eft­ir há­degi í dag en þeir voru báðir að stærð 1,2, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um á vef Veður­stofu Íslands.

Pálmi Er­lends­son, sér­fræðing­ur hjá Veður­stof­unni, seg­ir það koma fyr­ir að jarðskjálft­ar mæl­ist við eld­fjallið en að yf­ir­leitt séu það, eins og í þess­um til­vik­um, ör­skjálft­ar.

„Þetta er ekki beint neitt til þess að hafa áhyggj­ur af. Hekla er nú samt óút­reikn­an­leg eins og við þekkj­um og marg­ir segja að það sé kom­inn tími á hana. En maður get­ur ekki séð að svona stöku skjálft­ar séu for­boði um eitt­hvað verra,“ seg­ir hann.

mbl.is