Verður Matt Damon svaramaður Clooney?

George Clooney | 20. maí 2014

Verður Matt Damon svaramaður Clooney?

Nýjustu fregnir af fyrirhuguðu brúðkaupi leikarans George Clooney og lögmannsins Amal Alamuddin eru þær að leikarinn Matt Damon verður svaramaður Clooney.

Verður Matt Damon svaramaður Clooney?

George Clooney | 20. maí 2014

Leikarinn George Clooney og lögmaðurinn Amal Alamuddin.
Leikarinn George Clooney og lögmaðurinn Amal Alamuddin. mbl.is/AFP

Nýj­ustu fregn­ir af fyr­ir­huguðu brúðkaupi leik­ar­ans Geor­ge Cloo­ney og lög­manns­ins Amal Alamudd­in eru þær að leik­ar­inn Matt Damon verður svaramaður Cloo­ney.

Nýj­ustu fregn­ir af fyr­ir­huguðu brúðkaupi leik­ar­ans Geor­ge Cloo­ney og lög­manns­ins Amal Alamudd­in eru þær að leik­ar­inn Matt Damon verður svaramaður Cloo­ney.

Cloo­ney er bú­inn að biðja Damon að vera svaramaður í brúðkaupi sínu og Alamudd­in, og hef­ur þar af leiðandi farið fram­hjá leik­ar­an­um Brad Pitt, sem er bú­inn að biðja Cloo­ney að vera svaramaður sinn í brúðkaupi sínu og leik­kon­unn­ar Ang­el­inu Jolie.

„Marg­ir héldu að Brad Pitt yrði svaramaður Cloo­ney af því að þeir hafa verið svo góðir vin­ir í mörg ár. En svo virðist sem hann sé nán­ari Damon. Auk þess var það þannig að eina kvöld­stund er þeir voru á fylli­ríi gaf Cloo­ney Damon lof­orð um að hann yrði svaramaður hans ef hann skyldi gifta sig. Pitt tók frétt­un­um vel,“ sagði heim­ild­armaður The Sun.

Leikarinn Matt Damon.
Leik­ar­inn Matt Damon. mbl.is/​AFP
mbl.is