Gistiskýlið flytur í haust

Utangarðs á Íslandi | 16. júlí 2014

Gistiskýlið flytur í haust

„Í framkvæmdunum kom í ljós að tímaáætlunin myndi ekki standast,“ segir Elfa Björk Ellertsdóttir, upplýsingafulltrúi í Ráðhúsi Reykjavíkur, um flutning gistiskýlisins Farsóttarinnar frá Þingholtsstræti á Lindargötu. Í vetur var tilkynnt um flutninganna og sagt að þeir myndu verða á vormánuðum á þessu ári. Gistiskýlið er þó enn á Þingholtsstræti og verður þar fram á haust. „Bæði þurfti að fara í meira uppbrot og vanda meira til hreinlætisaðstæðna. Markmiðið er þó að það verði opnað á Lindagötu um miðjan september,“ segir Elfa.

Gistiskýlið flytur í haust

Utangarðs á Íslandi | 16. júlí 2014

Í þessu húsi við Lindargötu 48 mun nýtt gistiskýli opna …
Í þessu húsi við Lindargötu 48 mun nýtt gistiskýli opna í haust. Ómar Óskarsson

„Í fram­kvæmd­un­um kom í ljós að tíma­áætl­un­in myndi ekki stand­ast,“ seg­ir Elfa Björk Ell­erts­dótt­ir, upp­lýs­inga­full­trúi í Ráðhúsi Reykja­vík­ur, um flutn­ing gisti­skýl­is­ins Far­sótt­ar­inn­ar frá Þing­holts­stræti á Lind­ar­götu. Í vet­ur var til­kynnt um flutn­ing­anna og sagt að þeir myndu verða á vor­mánuðum á þessu ári. Gisti­skýlið er þó enn á Þing­holts­stræti og verður þar fram á haust. „Bæði þurfti að fara í meira upp­brot og vanda meira til hrein­lætisaðstæðna. Mark­miðið er þó að það verði opnað á Linda­götu um miðjan sept­em­ber,“ seg­ir Elfa.

Eins og kom fram á mbl.is í októ­ber var mik­il aðsókn að Far­sótt­inni og að meðaltali þurfti að vísa frá ein­um til tveim­ur útigangs­mönn­um á hverri nóttu. Þar af leiðandi var ákveðið að hefja fram­kvæmd­ir við húsið á Lind­ar­götu til þess að geta flutt starf­semi Far­sótt­ar­inn­ar þangað. 

Sam­kvæmt Elfu er aðsókn­in í Far­sótt­ina breyti­leg milli mánaða en ekki hafi þurft að vísa nein­um frá síðan í des­em­ber. „Húsið hef­ur getað annað aðsókn­inni und­an­farna mánuði, það var eins og aðsókn­in dytti niður í des­em­ber eft­ir að ákveðið var að húsið væri of lítið.“

Sam­kvæmt töl­um frá Reykja­vík­ur­borg voru 3.849 gist­ing­ar í Far­sótt­ar­hús­inu fyrstu sex mánuði árs­ins. Voru þær flest­ar í mars eða 735 tals­ins.

mbl.is