„Engum verður vísað frá“

Utangarðs á Íslandi | 25. september 2014

„Engum verður vísað frá“

„Nú er allt kapp lagt á að hægt verði að opna fyrir miðjan október og ég á von á því að það standi,“ segir Sigtryggur Jónsson, framkvæmdarstjóri þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða, um gistiskýlið við Lindargötu.

„Engum verður vísað frá“

Utangarðs á Íslandi | 25. september 2014

Húsið sem mun hýsa gistiskýlið stendur við Lindargötu 48.
Húsið sem mun hýsa gistiskýlið stendur við Lindargötu 48. Ómar Óskarsson

„Nú er allt kapp lagt á að hægt verði að opna fyr­ir miðjan októ­ber og ég á von á því að það standi,“ seg­ir Sig­trygg­ur Jóns­son, fram­kvæmd­ar­stjóri þjón­ustumiðstöðvar Miðborg­ar og Hlíða, um gisti­skýlið við Lind­ar­götu.

„Nú er allt kapp lagt á að hægt verði að opna fyr­ir miðjan októ­ber og ég á von á því að það standi,“ seg­ir Sig­trygg­ur Jóns­son, fram­kvæmd­ar­stjóri þjón­ustumiðstöðvar Miðborg­ar og Hlíða, um gisti­skýlið við Lind­ar­götu.

Eins og mbl.is sagði frá í sum­ar stend­ur til að flytja starfs­semi gisti­skýl­is­ins Far­sótt­ar­inn­ar frá Þing­holts­stræti á Lind­ar­götu. Far­sótt­ar­húsið er gisti­skýli fyr­ir heim­il­is­lausa reyk­víska karl­menn.

Stóð til að gisti­skýlið mynd opna um miðjan sept­em­ber en hafa fram­kvæmd­irn­ar tekið lengri tíma en fyrst var áætlað. 

„Það er mikið vinna búin að fara þarna fram. Það komu upp ýmis óvænt mál upp. Til dæm­is þurfti að jafna gólfið á fyrstu hæðinni og brjóta það upp. Þá kom í ljós 30 tonna klöpp sem þurfti að koma út,“ seg­ir Sig­trygg­ur.

Allt end­ur­nýjað frá A til Ö

Að sögn Sig­trygg­ar verður mik­ill mun­ur á gisti­skýl­inu við Lind­ar­götu og gamla Far­sótt­ar­hús­inu við Þing­holts­stræti en húsið á Lind­ar­götu hýsti áður vélsmiðju.

„Þetta er í fyrsta lagi miklu stærra í fer­metr­um og stein­hús á meðan húsið í Þing­holts­stræti er timb­ur­hús. Þar vant­ar upp á allt viðhald en á Lind­ar­götu er búið að end­ur­nýja allt frá A til Ö,“ seg­ir Sig­trygg­ur.

Í nýja gisti­skýl­inu er búið að end­ur­nýja all­ar lagn­ir, mála allt, reisa nýja veggi, hurðir og fleira. Jafn­framt verður lyfta í hús­inu. „Þetta verður eins og fín­asta gisti­heim­ili,“ seg­ir Sig­trygg­ur.

Gist­i­rýmið leyf­ir und­anþágur

Gisti­skýlið á Lind­ar­götu mun hýsa jafn­marga og Far­sótt­ar­húsið á Þing­holts­stræti, tutt­ugu manns. „Mun­ur­inn er samt sá að rýmið leyf­ir und­anþágur. Ef það sækja fleiri en tutt­ugu að, get­um við tekið við þeim. Eng­um verður vísað frá.“

Sig­trygg­ur seg­ir að flutn­ing­arn­ir muni ekki trufla starfs­semi Far­sótt­ar­húss­ins. „Á flutn­inga­degi munu karl­arn­ir fara út að morgni á Þing­holts­stræti og svo inn á Lind­ar­göt­unni um kvöldið.“

Aðspurður seg­ir Sig­trygg­ur að gest­ir Far­sótt­ar­húss­ins viti að flutn­ing­ar standi til. „Ég veit nú ekki til þess að þeir hafi komið að skoða. En ég á ekki von á öðru en að þeir verði ánægðir.“

mbl.is