„Fíkn er alltaf fíkn“

Utangarðs á Íslandi | 24. október 2014

„Fíkn er alltaf fíkn“

Tryggvi Magnússon, umsjónarmaður gistiskýlisins sem senn flytur frá Þingholtsstræti að Lindargötu var sjálfur að eigin sögn drykkjumaður. Hann hefur verið laus við vínið í 20 ár, og segir miklar breytingar hafa orðið á hvernig komið er fram við utangarðsfólk.

„Fíkn er alltaf fíkn“

Utangarðs á Íslandi | 24. október 2014

Tryggvi Magnússon, umsjónarmaður gistiskýlisins.
Tryggvi Magnússon, umsjónarmaður gistiskýlisins. Eggert Jóhannesson

Tryggvi Magnús­son, um­sjón­ar­maður gisti­skýl­is­ins sem senn flyt­ur frá Þing­holts­stræti að Lind­ar­götu var sjálf­ur að eig­in sögn drykkjumaður. Hann hef­ur verið laus við vínið í 20 ár, og seg­ir mikl­ar breyt­ing­ar hafa orðið á hvernig komið er fram við utang­arðsfólk.

Tryggvi Magnús­son, um­sjón­ar­maður gisti­skýl­is­ins sem senn flyt­ur frá Þing­holts­stræti að Lind­ar­götu var sjálf­ur að eig­in sögn drykkjumaður. Hann hef­ur verið laus við vínið í 20 ár, og seg­ir mikl­ar breyt­ing­ar hafa orðið á hvernig komið er fram við utang­arðsfólk.

„Ég held að þetta [flutn­ing­ur­inn frá Þing­holts­stræti] muni hafa áhrif til góðs. Við verðum bet­ur í stakk bún­ir til að mæta okk­ar ágætu gest­um á þeim stað sem þeir eru. Það sem ég á í raun­inni við er að þegar maður er kom­inn á þenn­an stað í líf­inu, þá þarf maður stund­um að setja sig í þeirra spor og mæta hverj­um ein­stak­lingi, reyna að setja sig í hans spor og sýna ekki yf­ir­læti. Mæta hon­um akkúrat í aðstæðunum,“ seg­ir Tryggvi.

„Ég þekki þetta sjálf­ur, því á sín­um tíma upp­lifði ég það að mér var mætt eins og ég var. Ég var drykkjumaður en hef ekki verið í 20 ár, þannig að ég þekki í raun­inni báðar hliðar á pen­ingn­um. Það er mjög mik­il­vægt atriði í þess­um mála­flokki að hitta hvern og einn akkúrat þar sem hann er.

Finnst þér þetta hafa breyst frá því fyr­ir 20 árum?

„Já, öll aðstaða og aðbúnaður hef­ur gjör­breyst til hins betra. Það er eng­in spurn­ing. Þú heyrðir áðan á tali Dags að það er mjög margt verið að gera sem ekki var til áður og ekki verið að hugsa um neitt.“

Hvað með skjól­stæðing­ana, hafa þeir breyst?

„Já, þeir breyt­ast líka í takt við þjóðfé­lagið. Ég fékk að vinna í gisti­skýl­inu í nokkra mánuði 1995, síðan hóf ég aft­ur störf 2007 og hef verið síðan, og ég sé mik­inn mun á þess­um tveim­ur tíma­bil­um. Áður voru þetta svona hefðbundn­ir rón­ar, drykkju­menn skil­urðu. Kannski frek­ar eldri. Núna fer þetta miklu neðar í aldri og öðru­vísi neysla. Auðvitað breyt­ist þetta eins og við hin. En fíkn er alltaf fíkn, það er stóra málið,“ seg­ir Tryggvi.

„Það tog­ast á inni í manni þegar menn eru í neyslu, þessi fíkn og kannski eitt­hvað úr upp­eldi. Þetta stang­ast al­gjör­lega á við alla skyn­sem­ina. Það eru svaka­leg átök þar á milli, sem er al­veg ótrú­legt.“

Gistiskýlið við Lindargötu 48.
Gisti­skýlið við Lind­ar­götu 48. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son
mbl.is