Nýtt gistiskýli opnað á mánudaginn

Utangarðs á Íslandi | 24. október 2014

Nýtt gistiskýli opnað á mánudaginn

Nýja gistiskýlið á Lindargötu 48 var kynnt fjölmiðlum í dag. Starfsemi gistiskýlisins í Farsóttarhúsinu við Þingholtsstræti mun flytja í húsnæðið á mánudaginn. 

Nýtt gistiskýli opnað á mánudaginn

Utangarðs á Íslandi | 24. október 2014

S. Björn Blöndal í matsal nýja gistiskýlisins.
S. Björn Blöndal í matsal nýja gistiskýlisins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nýja gisti­skýlið á Lind­ar­götu 48 var kynnt fjöl­miðlum í dag. Starf­semi gisti­skýl­is­ins í Far­sótt­ar­hús­inu við Þing­holts­stræti mun flytja í hús­næðið á mánu­dag­inn. 

Nýja gisti­skýlið á Lind­ar­götu 48 var kynnt fjöl­miðlum í dag. Starf­semi gisti­skýl­is­ins í Far­sótt­ar­hús­inu við Þing­holts­stræti mun flytja í hús­næðið á mánu­dag­inn. 

„Á flutn­inga­degi munu karl­arn­ir fara út að morgni í Þing­holts­stræti og svo inn á Lind­ar­göt­unni um kvöldið.“ seg­ir Sig­trygg­ur Jóns­son, fram­kvæmda­stjóri þjón­ustumiðstöðvar Miðborg­ar og Hlíða.

Nokk­ur fjöldi yf­ir­manna úr borg­ar­kerf­inu var viðstadd­ur kynn­ing­una, þeirra á meðal Dag­ur B. Eggerts­son, S. Björn Blön­dal, Heiða Krist­ín Helga­dótt­ir og Stefán Ei­ríks­son.

Hýs­ir jafn­marga og Far­sótt­ar­húsið

Gisti­skýlið á Lind­ar­götu 48 mun hýsa jafn­marga og Far­sótt­ar­húsið í Þing­holts­stræti, tutt­ugu manns. „Mun­ur­inn er samt sá að rýmið leyf­ir und­anþágur. Ef það koma fleiri en tutt­ugu get­um við tekið við þeim. Eng­um verður vísað frá,“ sagði Sig­trygg­ur um gisti­skýlið við Lind­ar­götu í sam­tali við mbl.is í lok sept­em­ber­mánaðar.

Gisti­skýlið hef­ur rými fyr­ir 20 manns, jafn­marga og gisti­skýlið í Þing­holts­stræti, sem verður lokað. Þó verður heim­ilt að hýsa fleiri á Lind­ar­götu ger­ist þess þörf.

Nýja hús­næðið er allt mun rýmr­ar en hús­næðið við Þing­holts­stræti. Húsið er á þrem­ur hæðum; á fyrstu tveim­ur eru svefn­her­bergi og sal­ern­isaðstaða, en á þriðju er stór og rúm­góður mat­sal­ur og setu­stofa, með út­sýni til norðurs.

Mikið áhuga­mál Jóns Gn­arr

„Það er gam­an að sjá hvað það eru marg­ir komn­ir hérna. Við höfuðm hvorki hugsað þetta sem veislu eða blaðamanna­fund held­ur bara að gefa fólki kost á því að sjá hús­næðið áður en það verður flutt inn í það,“ seg­ir Dag­ur B. Eggerts­son.

„Starf­sem­in er þess eðlis að við erum ekki að beina fjöl­miðlum á að mynda hér þegar hún er kom­in á fullt. Ég vil þó þakka öll­um þeim sem hafa komið að þess­ari fram­kvæmd fyr­ir sitt fram­lag. Það er ekk­ert leynd­ar­mál að mál­efni utang­arðsfólks voru mikið áhuga­mál for­vera míns í starfi, Jóns Gn­arr. Gisti­skýlið er kannski svona áber­andi and­lit þessa mála­flokks.“

Dag­ur benti einnig á að fjöldi fólks starfaði við mála­flokk­inn, svo sem borg­ar­verðir og fleiri sem koma að þess­um mál­efn­um til að koma þeim sem hægt er í upp­byggi­leg­an far­veg. „Það að vera utang­arðs þýðir að þú ert gjarn­an með mik­il heil­brigðis- og fé­lags­leg vanda­mál. Þetta er mjög mik­il­væg­ur mála­flokk­ur fólks og ein­stak­linga sem oft eru á jaðrin­um.“ 

Bygg­ing­ar­reglu­gerðir hleypa upp kostnaði

Sig­trygg­ur Jóns­son seg­ir að nýja hús­næðið sé að flestu leyti betra en það gamla. Bygg­ing­ar­reglu­gerðir hafi hins veg­ar hleypt upp kostnaði við bygg­ing­una. „Það er öðru­vísi hér á landi en víða er­lend­is.“

Hús­næðið þykir hins veg­ar mjög vel staðsett, bæði inn­an hverf­is­ins og með til­liti til fjar­lægðar frá miðborg­inni.

„Eng­um verður vísað frá“

Dagur B. Eggertsson og Sigtryggur Jónsson.
Dag­ur B. Eggerts­son og Sig­trygg­ur Jóns­son. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son
Tryggvi Magnússon, umsjónarmaður gistiskýlisins.
Tryggvi Magnús­son, um­sjón­ar­maður gisti­skýl­is­ins. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son
mbl.is