Fullt í gistiskýlinu nótt eftir nótt

Utangarðs á Íslandi | 19. maí 2015

Fullt í gistiskýlinu nótt eftir nótt

Síðustu vikur hefur verið mikil aðsókn í gistiskýlið við Lindargötu sem er fyrir heimilislausa reykvíska karlmenn. Svefnpláss fyrir tuttugu manns er í gistiskýlinu en hægt er að bæta við dýnum til þess að hýsa níu karlmenn í viðbót. Síðustu vikur hafa þessi 29 pláss verið full og starfsmenn gistiskýlisins neyðst til þess að vísa mönnum frá.

Fullt í gistiskýlinu nótt eftir nótt

Utangarðs á Íslandi | 19. maí 2015

Gistiskýlið við Lindargötu 48.
Gistiskýlið við Lindargötu 48. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Síðustu vik­ur hef­ur verið mik­il aðsókn í gisti­skýlið við Lind­ar­götu sem er fyr­ir heim­il­is­lausa reyk­víska karl­menn. Svefn­pláss fyr­ir tutt­ugu manns er í gisti­skýl­inu en hægt er að bæta við dýn­um til þess að hýsa níu karl­menn í viðbót. Síðustu vik­ur hafa þessi 29 pláss verið full og starfs­menn gisti­skýl­is­ins neyðst til þess að vísa mönn­um frá.

Síðustu vik­ur hef­ur verið mik­il aðsókn í gisti­skýlið við Lind­ar­götu sem er fyr­ir heim­il­is­lausa reyk­víska karl­menn. Svefn­pláss fyr­ir tutt­ugu manns er í gisti­skýl­inu en hægt er að bæta við dýn­um til þess að hýsa níu karl­menn í viðbót. Síðustu vik­ur hafa þessi 29 pláss verið full og starfs­menn gisti­skýl­is­ins neyðst til þess að vísa mönn­um frá.

For­stöðumaður gisti­skýl­is­ins, Sveinn All­an Mort­hens seg­ir að það sé erfitt að meta hvað það er sem veld­ur þess­ari miklu aðsókn.

„Það er fullt núna nótt eft­ir nótt og við höf­um þurft að vísa frá í sum­um til­fell­um. Ég veit ekki hvort þetta sé tíma­bundið eða hvort þörf­in sé að verða meiri,“ seg­ir Sveinn í sam­tali við mbl.is.

Sveinn seg­ir að það myndi kosta mikla vinnu að bæta við svefn­plássi í gisti­skýl­inu en það var opnað á Lind­ar­götu í októ­ber. Áður var það til húsa í Far­sótt­ar­hús­inu við Þing­holts­stræti.

„En menn eru alltaf til­bún­ir til að end­ur­skoða alla hluti og kannski verður hægt að bjóða upp á fleiri svefn­pláss á næstu árum. Ég veit að borg­ar­ráð hef­ur tekið ákvörðun um mjög flotta og vandaða stefnu í mál­um utang­arðsmanna. En á meðan þetta er svona reyn­um við að mæta þess­ari þörf eins og við mögu­lega get­um.“

Al­mennt meira að gera á sumr­in

Að sögn Krist­ín­ar Helgu Guðmunds­dótt­ur, verk­efna­stjóra Konu­kots, sem er nætur­at­hvarf fyr­ir heim­il­is­laus­ar kon­ur, er al­mennt meira að gera þar á sumr­in held­ur en á vet­urna og mest í júlí­mánuði. „Ein mögu­leg ástæða fyr­ir þess­ari aðsókn er sú að all­ir hreyfa sig mest þegar það er gott veður og það er meiri hreyf­ing al­mennt meðal kvenn­anna. En fólk get­ur auðveld­lega ímyndað sér að þetta sé öf­ugt.“

Krist­ín seg­ir að síðustu daga sé búin að vera tölu­verð aðsókn í Konu­kot þó ekki hafi komið til þess að fólki sé vísað frá. „Við erum með átta svefn­pláss en stund­um eru fleiri í hús­inu. Sumt fólk kem­ur og er ekki all­an tím­ann sem opið er. Við tök­um á móti kannski svona tíu manns yfir sól­ar­hring­inn og höf­um náð að anna því ágæt­lega. Við höf­um alla­vega aldrei þurft að vísa frá.“

Kristín Helga Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri Konukots.
Krist­ín Helga Guðmunds­dótt­ir, verk­efn­is­stjóri Konu­kots. Heiðar Kristjáns­son
mbl.is