Aðsóknin vonandi tímabundin

Utangarðs á Íslandi | 25. maí 2015

Aðsóknin vonandi tímabundin

„Við náttúrlega vonum að þetta sé bara tímabundið. En við höfum hugann við þetta og fylgjumst vel með fjöldanum sem kemur inn. Í maí hefur þetta verið sérlega mikið og það hefur þurft að vísa frá. En það er ekki gert fyrr en allt er orðið fullt og rúmlega það.“

Aðsóknin vonandi tímabundin

Utangarðs á Íslandi | 25. maí 2015

Gistiskýlið við Lindargötu 48.
Gistiskýlið við Lindargötu 48. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Við nátt­úr­lega von­um að þetta sé bara tíma­bundið. En við höf­um hug­ann við þetta og fylgj­umst vel með fjöld­an­um sem kem­ur inn. Í maí hef­ur þetta verið sér­lega mikið og það hef­ur þurft að vísa frá. En það er ekki gert fyrr en allt er orðið fullt og rúm­lega það.“

„Við nátt­úr­lega von­um að þetta sé bara tíma­bundið. En við höf­um hug­ann við þetta og fylgj­umst vel með fjöld­an­um sem kem­ur inn. Í maí hef­ur þetta verið sér­lega mikið og það hef­ur þurft að vísa frá. En það er ekki gert fyrr en allt er orðið fullt og rúm­lega það.“

Þetta seg­ir Sigþrúður Erla Arn­ar­dótt­ir, fram­kvæmd­ar­stjóri þjón­ustumiðstöðvar miðborg­ar og Hlíða, aðspurð um þá miklu aðsókn sem hef­ur verið í gisti­skýlið við Lind­ar­götu í mánuðinum. Reykja­vík­ur­borg tek­ur við rekstri gisti­skýl­is­ins um mánaðamót­in af Sam­hjálp og seg­ir Sigþrúður að borg­in verði með mjög sam­bæri­lega þjón­ustu og hef­ur verið í skýl­inu. Boðið er upp á sama gesta­fjölda og opið á sama tíma og áður.

Eins og fram hef­ur komið á mbl.is síðustu daga og vik­ur hef­ur þurft að vísa útigangs­mönn­um frá vegna mik­ill­ar aðsókn­ar í skýlið. Gisti­skýlið við Lind­ar­götu hýs­ir heim­il­is­lausa reyk­víska karl­menn. Gisti­skýlið var áður til húsa í Far­sótt­ar­hús­inu við Þing­holts­stræti en opnað á Lind­ar­götu í októ­ber. Skýlið er með svefn­pláss fyr­ir 20 manns. Þar að auki er hægt að bæta við dýn­um fyr­ir níu. Að sögn Sigþrúðar hef­ur þurft að vísa frá ein­um til þrem­ur mörg kvöld í maí og er því ljóst að oft sækja rúm­lega þrjá­tíu karl­ar í skýlið.

Hún seg­ir að í maí­mánuði hafi aðsókn­in verið sér­stak­lega mik­il og ekki hafi þurft að vísa frá skýl­inu fyrr en í þess­um mánuði.

Aðspurð hvort reynt verði að bæta við pláss­um í skýl­inu seg­ir Sigþrúður að það sé í skoðun.

„Við erum í sam­tali inn­an vel­ferðarsviðs og við vel­ferðarráð. Ef það verður áfram­hald á þess­ari fjölg­un verður lík­lega tek­in ákvörðun um breyt­ing­ar.“

Fyrri frétt mbl.is:

Fullt í gisti­skýl­inu nótt eft­ir nótt

mbl.is