Engar vísbendingar um Heklugos

Hekla | 1. júlí 2016

Engar vísbendingar um Heklugos

Núverandi ástand Heklu hefur varað í tíu ár og gæti allt eins varað í ár eða áratugi í viðbót. Engar sérstakar vísbendingar eru um að gos í eldstöðinni sé um það bil að bresta á. Þetta skrifar Páll Einarsson jarðfræðingur á vef Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands. Hvetur hann fólk til að halda ró sinni.

Engar vísbendingar um Heklugos

Hekla | 1. júlí 2016

Hekla.
Hekla. mbl.is/Sigurður Sigmundsson

Nú­ver­andi ástand Heklu hef­ur varað í tíu ár og gæti allt eins varað í ár eða ára­tugi í viðbót. Eng­ar sér­stak­ar vís­bend­ing­ar eru um að gos í eld­stöðinni sé um það bil að bresta á. Þetta skrif­ar Páll Ein­ars­son jarðfræðing­ur á vef Jarðvís­inda­stofn­un­ar Há­skóla Íslands. Hvet­ur hann fólk til að halda ró sinni.

Nú­ver­andi ástand Heklu hef­ur varað í tíu ár og gæti allt eins varað í ár eða ára­tugi í viðbót. Eng­ar sér­stak­ar vís­bend­ing­ar eru um að gos í eld­stöðinni sé um það bil að bresta á. Þetta skrif­ar Páll Ein­ars­son jarðfræðing­ur á vef Jarðvís­inda­stofn­un­ar Há­skóla Íslands. Hvet­ur hann fólk til að halda ró sinni.

Í pistl­in­um seg­ir Páll að ein al­geng­asta spurn­ing­in sem eft­ir­lits­fólk með eld­stöðvum lands­ins fái frá al­menn­ingi og fjöl­miðlum fjalli um lík­ur á gosi. Ógern­ing­ur sé hins veg­ar að spá fyr­ir um slíka at­b­urðarás af ná­kvæmni. Því verði að fylgj­ast náið með eld­fjöll­um á mæli­tækj­um.

Til­tölu­lega ný­legt sé að Hekla gjósi títt og reglu­lega síðustu ára­tug­ina. Mun al­geng­ara sé að eld­fjöll gjósi óreglu­lega. Frá síðasta gosi árið 2000 hafi kvikuþrýst­ing­ur í fjall­inu auk­ist og árið 2006 hafi hann verið bú­inn að ná þeim sem var fyr­ir gosið sex árum áður.

All­an þenn­an tíma síðan hafi þrýst­ing­ur­inn auk­ist um­fram það. Síðasta mæl­ing hafi verið gerð í júní og hún staðfest þrýst­ings­aukn­ing­una.

„En þýðir þetta að Hekla sé um það bil að springa í loft upp eða að mikl­ar ham­far­ir séu í aðsigi með til­heyr­andi trufl­un­um á flug­um­ferð, eins og lesa má í er­lend­um fjöl­miðlum?  Hér þurfa menn að halda ró sinni. Í fyrsta lagi er þetta ástand Heklu búið að vara í 10 ár. Eng­ar sér­stak­ar vís­bend­ing­ar eru um að að gos sé um það bil að bresta á. Eld­stöðin gæti allt eins haldið í sér í nokk­ur ár eða ára­tugi í viðbót,“ skrif­ar Páll.

Fyrri gos trufluðu flug ekki mikið

Eng­in aðferð sé þekkt til að ákv­arða með löng­um fyr­ir­vara hvenær næsta gos verður. Frá fyrri reynslu verði að telj­ast lík­legt að fjallið gefi ekki frá sér merki um yf­ir­vof­andi gos fyrr en hálf­tíma eða klukku­stund áður en kvika kem­ur til yf­ir­borðs. Það sé und­ir hæl­inn lagt hvort sá fyr­ir­vari nýt­ist til að gefa út viðvör­un um gos.

„Þetta er um­hugs­un­ar­efni vegna vax­andi ferðamennsku á fjall­inu. Göngu­hóp­ar í hlíðum Heklu geta ekki reiknað með að fá viðvör­un sem gagn er í. Það er einnig áhyggju­efni margra að fjöl­far­in flug­leið ligg­ur beint yfir topp Heklu,“ seg­ir Páll.

Síðustu gos í Heklu árin 1970, 1980-81, 1991 og 2000 hafi hins veg­ar ekki valdið mik­illi trufl­un á flugi. Því tel­ur Páll ekki neina sér­staka ástæðu til hrak­spáa um næsta gos í Heklu, þótt auðvitað þurfi alltaf að vera á varðbergi.

Pist­ill Páls Ein­ars­son um Heklugos á vef Jarðvís­inda­stofn­un­ar HÍ

mbl.is