Biber bætir flúri í safnið

Justin Bieber | 22. nóvember 2016

Biber bætir flúri í safnið

Ungstirnið Justin Bieber hefur fengið sér enn eitt húðflúrið, en að þessu sinni lét hann skreyta ofanverðan kvið sinn.

Biber bætir flúri í safnið

Justin Bieber | 22. nóvember 2016

Justin Bieber er mikill áhugamaður um húðflúr.
Justin Bieber er mikill áhugamaður um húðflúr. AFP

Ungstirnið Just­in Bie­ber hef­ur fengið sér enn eitt húðflúrið, en að þessu sinni lét hann skreyta of­an­verðan kvið sinn.

Ungstirnið Just­in Bie­ber hef­ur fengið sér enn eitt húðflúrið, en að þessu sinni lét hann skreyta of­an­verðan kvið sinn.

Bie­ber er eng­inn nýgræðing­ur þegar kem­ur að húðflúr­um, en hann skart­ar fjöld­an­um öll­um af slík­um víðsveg­ar um lík­amann.

Söngv­ar­inn frum­sýndi nýj­ustu viðbót­ina á Ítal­íu á dög­un­um, þar sem hann hélt tón­leika.

Bie­ber hef­ur látið rita orðin „son of god“ sem út­leggja mætti sem son­ur guðs, stór­um stöf­um yfir mag­ann á sér.

Sam­kvæmt frétt Daily Mail skart­ar Bie­ber 56 húðflúr­um, sem mörg hver hafa trú­ar­lega skír­skot­un.

Bieber sýndi nýja flúrið á tónleikum sínum.
Bie­ber sýndi nýja flúrið á tón­leik­um sín­um. Ljós­mynd / skjá­skot Daily Mail
mbl.is