Bieber kýldi aðdáanda

Justin Bieber | 23. nóvember 2016

Bieber kýldi aðdáanda

Ungstirnið Justin Bieber kýldi karlkyns aðdáanda fyrir tónleika sína í Barcelona í gær, með þeim afleiðingum að vör hans sprakk.

Bieber kýldi aðdáanda

Justin Bieber | 23. nóvember 2016

Justin Bieber kýldi aðdáanda sinn í gær með þeim afleiðingum …
Justin Bieber kýldi aðdáanda sinn í gær með þeim afleiðingum að vör hans sprakk. AFP

Ungstirnið Just­in Bie­ber kýldi karl­kyns aðdá­anda fyr­ir tón­leika sína í Barcelona í gær, með þeim af­leiðing­um að vör hans sprakk.

Ungstirnið Just­in Bie­ber kýldi karl­kyns aðdá­anda fyr­ir tón­leika sína í Barcelona í gær, með þeim af­leiðing­um að vör hans sprakk.

At­vikið átti sér stað fyr­ir utan Palau Sant Jordi-höll­ina, þar sem tón­leik­arn­ir fóru fram.

Bie­ber var farþegi í bif­reið sem ekið var í átt að tón­leik­astaðnum, en hann hafði skrúfað niður rúðuna og var að heilsa upp á aðdá­end­ur.

Ung­ur maður vildi ná tali af stjörn­unni, elti bíl­inn og rétti hönd sína inn um glugg­ann. Bie­ber brást við með því að kýla aðdá­and­ann, sem var síðan skil­inn eft­ir blóðugur í fram­an.

TMZ greindi frá at­vik­inu, og birti jafn­framt mynd­band af því. Mynd­bandið má sjá hér að neðan.

mbl.is