Fórnarlamb Biebers undir lögaldri

Justin Bieber | 23. nóvember 2016

Fórnarlamb Biebers undir lögaldri

Pilturinn sem Justin Bieber kýldi með þeim afleiðingum að vör hans sprakk er undir lögaldri, en samkvæmt frétt Mirror er hann ekki viss hvort hann muni leggja fram kæru.

Fórnarlamb Biebers undir lögaldri

Justin Bieber | 23. nóvember 2016

Myndband náðist af atvikinu.
Myndband náðist af atvikinu. Skjáskot Youtube

Pilt­ur­inn sem Just­in Bie­ber kýldi með þeim af­leiðing­um að vör hans sprakk er und­ir lögaldri, en sam­kvæmt frétt Mirr­or er hann ekki viss hvort hann muni leggja fram kæru.

Pilt­ur­inn sem Just­in Bie­ber kýldi með þeim af­leiðing­um að vör hans sprakk er und­ir lögaldri, en sam­kvæmt frétt Mirr­or er hann ekki viss hvort hann muni leggja fram kæru.

At­vikið átti sér stað í gær­kvöldi fyr­ir utan Palau Sant Jordi-höll­ina, Barcelona, þar sem tón­leik­ar söngv­ar­ans fóru fram.

Frétt mbl.is: Bie­ber kýldi aðdá­anda

Aðdá­and­inn hafði teygt hönd sína inn í bíl sem Bie­ber var farþegi í, en söngv­ar­inn brást við með því að kýla pilt­inn í fram­an.

„Litið er á at­vikið sem smá­vægi­legt brot, en ekki glæp,“ sagði talsmaður lög­regl­unn­ar í morg­un.

„Við erum því ekki að rann­saka málið. Sá sem varð fyr­ir högg­inu þarf að leggja fram kvört­un ef hann vill að málið fari lengra.“

mbl.is