Málið í höndum lögmanna

Justin Bieber | 24. nóvember 2016

Málið í höndum lögmanna

Kevin Ramirez, pilturinn sem Justin Bieber kýldi fyrir tónleika sína í Barcelona á dögunum, hefur ákveðið að láta málið í hendur lögmanna sinna. Ramirez er 18 ára, en áður hafði verið greint frá því að hann væri undir lögaldri.

Málið í höndum lögmanna

Justin Bieber | 24. nóvember 2016

Bieber blóðgaði aðdáandann.
Bieber blóðgaði aðdáandann. Ljósmynd / skjáskot Mirror

Kevin Ramirez, pilt­ur­inn sem Just­in Bie­ber kýldi fyr­ir tón­leika sína í Barcelona á dög­un­um, hef­ur ákveðið að láta málið í hend­ur lög­manna sinna. Ramirez er 18 ára, en áður hafði verið greint frá því að hann væri und­ir lögaldri.

Kevin Ramirez, pilt­ur­inn sem Just­in Bie­ber kýldi fyr­ir tón­leika sína í Barcelona á dög­un­um, hef­ur ákveðið að láta málið í hend­ur lög­manna sinna. Ramirez er 18 ára, en áður hafði verið greint frá því að hann væri und­ir lögaldri.

Frétt mbl.is: Bie­ber kýldi aðdá­anda

 „Málið er nú í hönd­um lög­manna minna. Ég get ekki gefið frek­ari upp­lýs­ing­ar að svo stöddu,“ sagði Ramirez í út­varps­viðtali.

Hann lýsti því enn­frem­ur yfir að hann væri von­svik­inn og sár út í söngv­ar­ann, en að hans mati var hnefa­höggið al­ger­lega óþarft.

Sam­kvæmt frétt Mirr­or fór Ramirez heim eft­ir árás­ina, enda með sprungna vör. Hann var því ekki viðstadd­ur tón­leik­ana sjálfa.

Talsmaður lög­regl­unn­ar greindi frá því í gær að litið væri á at­vikið sem smá­vægi­legt brot, en ekki glæp. Það væri því und­ir Ramirez sjálf­um komið hvort hann vildi kæra verknaðinn. Ef ekki yrði lögð fram kæra myndi lög­regl­an ekk­ert aðhaf­ast í mál­inu.

Justin Bieber hefur ekki tjáð sig um málið við fjölmiðla.
Just­in Bie­ber hef­ur ekki tjáð sig um málið við fjöl­miðla. AFP
mbl.is