Forsetafrú Íslands, Eliza Reid, var glæsileg í boði þeirra Guðna Th. Jóhannessonar, eiginmanns hennar og forseta Íslands, í gær. Hún klæddist svörtum kjól með grænglansandi ermum og skreytingu í sama lit við hálsmálið. Kjóllinn er hnésíður og ákaflega klæðilegur. Kjóllinn er eftir íslenska kjólameistarann Berglindi Ómarsdóttur sem rekur fyrirtækið Berglind Clothing.

Við kjólinn var Reid í svörtum sokkabuxum og penum skóm. Hárið var blásið og er örlítið síðara í dag en síðasta vor.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Eliza klæðist hönnun Berglindar því hún var í kjól frá henni á kosningavöku Guðna forseta síðasta vor.