Bieber sagður hafa skallað mann

Justin Bieber | 17. febrúar 2017

Bieber sagður hafa skallað mann

Samkvæmt frétt Sky lenti Justin Bieber í útistöðum við þrjá karlmenn á skemmtistaðnum Serafina Sunset aðfaranótt sunnudags.

Bieber sagður hafa skallað mann

Justin Bieber | 17. febrúar 2017

Justin Bieber hefur gert ýmsan óskunda í gegnum tíðina.
Justin Bieber hefur gert ýmsan óskunda í gegnum tíðina. AFP

Sam­kvæmt frétt Sky lenti Just­in Bie­ber í útistöðum við þrjá karl­menn á skemmti­staðnum Seraf­ina Sun­set aðfaranótt sunnu­dags.

Sam­kvæmt frétt Sky lenti Just­in Bie­ber í útistöðum við þrjá karl­menn á skemmti­staðnum Seraf­ina Sun­set aðfaranótt sunnu­dags.

Lög­reglu­stjóri í Los Ang­eles hef­ur greint frá því að fyllt hafi verið út skýrsla, þar sem Bie­ber er sakaður um að hafa veist að mönn­un­um þrem­ur en hann er einnig sagður hafa skallað einn þeirra í and­litið.

„Vitni seg­ir að það hafi stíað mönn­un­um í sund­ur og beðið Bie­ber að yf­ir­gefa svæðið. Bie­ber neitaði að fara og hélt kyrru fyr­ir á veit­ingastaðnum.“

„Vitnið held­ur því fram að nokkr­um mín­út­um síðar hafi Bie­ber sést ríf­ast við gest á staðnum, söngv­ar­inn hafi síðan skyndi­lega skallað mann­inn.“

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem árás­argirni söngv­ar­ans kemst í frétt­irn­ar, en í vik­unni bár­ust fregn­ir af því að Bie­ber sætti lög­reglu­rann­sókn fyr­ir lík­ams­árás sem á að hafa átt sér stað á síðasta ári. Þá náðist mynd­band af hon­um í fyrra þar sem hann sést kýla aðdá­anda sinn í and­litið, með þeim af­leiðing­um að vör hans sprakk.

Frétt mbl.is: Bie­ber sakaður um lík­ams­árás

Frétt mbl.is: Bie­ber kýldi aðdá­anda

mbl.is