Níðingur þóttist vera Bieber

Justin Bieber | 9. mars 2017

Barnaníðingur þóttist vera Bieber

Rúmlega fertugur Ástrali, sem þóttist vera kanadíski söngvarinn Justin Bieber, hefur verið ákærður fyrir rúmlega 900 barnaníðsbrot. Brotin beindust gegn 157 börnum.

Barnaníðingur þóttist vera Bieber

Justin Bieber | 9. mars 2017

Þessi mynd er af Justin Bieber en ástralskur maður fékk …
Þessi mynd er af Justin Bieber en ástralskur maður fékk fjölmörg börn til þess að senda sér djarfar myndir undir því yfirskyni að hann væri söngvarinn. AFP

Rúm­lega fer­tug­ur Ástr­ali, sem þótt­ist vera kanadíski söngv­ar­inn Just­in Bie­ber, hef­ur verið ákærður fyr­ir rúm­lega 900 barn­aníðsbrot. Brot­in beind­ust gegn 157 börn­um.

Rúm­lega fer­tug­ur Ástr­ali, sem þótt­ist vera kanadíski söngv­ar­inn Just­in Bie­ber, hef­ur verið ákærður fyr­ir rúm­lega 900 barn­aníðsbrot. Brot­in beind­ust gegn 157 börn­um.

BBC hef­ur eft­ir lög­regl­unni í Qu­eens­land að maður hafi fengið börn­in til þess að senda sér djarf­ar mynd­ir á net­inu. Hann er jafn­framt ákærður fyr­ir að hafa nauðgað þrem­ur börn­um en alls eru ákæru­liðirn­ir rúm­lega 930 tals­ins. Börn­in sem um ræðir eru alls staðar að úr  heim­in­um.

Yf­ir­lög­regluþjónn, Jon Rou­se, var­ar unga aðdá­end­ur Just­in Bie­ber og for­eldra þeirra um gæta varúðar á net­inu og láta ekki níðinga gabba sig. „Sú staðreynd að svo mörg börn trúðu því að þau ættu í sam­skipt­um við þenn­an fræga ein­stak­ling sýn­ir vel að við verðum að end­ur­skoða hvernig við færðum börn okk­ar um ör­yggi á net­inu,“ seg­ir Rou­se.

Lög­regl­an í Qu­eens­land staðfest­ir að hún hafi upp­lýst lög­reglu­yf­ir­völd í fleiri ríkj­um um rann­sókn­ina, bæði lög­reglu í Þýskalandi og Banda­ríkj­un­um.

50 barn­anna eru bú­sett í Banda­ríkj­un­um, sex í Ástr­al­íu og 101 barn er af óskil­greindu þjóðerni, seg­ir í frétt BBC en þar eru ákæru­liðirn­ir sund­ur­grein­ir. 

Frétt BBC

mbl.is