Aukinn þrýstingur í Heklu

Hekla | 29. mars 2017

Aukinn þrýstingur í Heklu

„Flestar mælingar sem fyrir liggja í dag benda til þess að Hekla sé tilbúin í eldgos, en hins vegar er ekki vitað hvað kemur slíku af stað,“ segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur við Háskóla Íslands.

Aukinn þrýstingur í Heklu

Hekla | 29. mars 2017

Hekla er sakleysisleg að sjá úr fjarska. Undir búa þó …
Hekla er sakleysisleg að sjá úr fjarska. Undir búa þó miklir kraftar og ýmsar mælingar á kvikusöfnun benda til að eldgos gæti verið í aðsigi. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

„Flest­ar mæl­ing­ar sem fyr­ir liggja í dag benda til þess að Hekla sé til­bú­in í eld­gos, en hins veg­ar er ekki vitað hvað kem­ur slíku af stað,“ seg­ir Páll Ein­ars­son jarðeðlis­fræðing­ur við Há­skóla Íslands.

„Flest­ar mæl­ing­ar sem fyr­ir liggja í dag benda til þess að Hekla sé til­bú­in í eld­gos, en hins veg­ar er ekki vitað hvað kem­ur slíku af stað,“ seg­ir Páll Ein­ars­son jarðeðlis­fræðing­ur við Há­skóla Íslands.

Meiri þrýst­ing­ur er nú í kviku­hólf­um und­ir fjall­inu en var fyr­ir síðustu tvö eld­gos þar, sem urðu árin 1991 og 2000. Ómögu­legt er hins veg­ar að segja til um hvort bú­ast megi við Heklugosi al­veg á næst­unni, enda er fyr­ir­var­inn á þeim yf­ir­leitt mjög skamm­ur og í litlu sam­hengi við önn­ur elds­um­brot eða jarðskjálfta á Suður­landi.

Í dag, 29. mars, eru liðin 70 ár frá upp­hafi Heklugoss­ins mikla sem stóð í alls þrett­án mánuði. Páll Ein­ars­son seg­ir að það sé eft­ir bók­inni að stór­gos breyti hegðun eld­fjalla. Þannig hafði Hekla legið í dvala í 102 ár þegar gaus árið 1947. Það gos breytti takt­in­um í Heklu og frá 1970 eru gos­in í fjall­inu orðin alls fimm, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um eld­fjallið í Morg­un­blaðinu í dag.

mbl.is