Bieber lét biturð stjórna lífi sínu

Justin Bieber | 3. ágúst 2017

Bieber lét biturð stjórna lífi sínu

Justin Bieber birti bréf á Instagram í nótt þar sem hann útskýrði fyrir aðdáendum sínum af hverju hann aflýsti síðustu tónleikum Purpose-tónleikaferðarinnar sem hann hefur nú verið á í rúmlega eitt ár. Þetta er í fyrsta sinn sem hann tjáir sig opinberlega um málið frá því að því var lýst yfir á Facebook-síðu hans í síðustu viku að því sem eftir væri af tónleikaferðinni væri aflýst. Tilkynningin vakti mjög hörð viðbrögð. Margir höfðu keypt miða fyrir fleiri mánuðum, jafnvel fyrir börn sín. 

Bieber lét biturð stjórna lífi sínu

Justin Bieber | 3. ágúst 2017

Justin Bieber er ekki sáttur við sjálfan sig. Hann segist …
Justin Bieber er ekki sáttur við sjálfan sig. Hann segist hafa látið biturð og ótta stjórna lífi sínu. AFP

Just­in Bie­ber birti bréf á In­sta­gram í nótt þar sem hann út­skýrði fyr­ir aðdá­end­um sín­um af hverju hann af­lýsti síðustu tón­leik­um Purpose-tón­leika­ferðar­inn­ar sem hann hef­ur nú verið á í rúm­lega eitt ár. Þetta er í fyrsta sinn sem hann tjá­ir sig op­in­ber­lega um málið frá því að því var lýst yfir á Face­book-síðu hans í síðustu viku að því sem eft­ir væri af tón­leika­ferðinni væri af­lýst. Til­kynn­ing­in vakti mjög hörð viðbrögð. Marg­ir höfðu keypt miða fyr­ir fleiri mánuðum, jafn­vel fyr­ir börn sín. 

Just­in Bie­ber birti bréf á In­sta­gram í nótt þar sem hann út­skýrði fyr­ir aðdá­end­um sín­um af hverju hann af­lýsti síðustu tón­leik­um Purpose-tón­leika­ferðar­inn­ar sem hann hef­ur nú verið á í rúm­lega eitt ár. Þetta er í fyrsta sinn sem hann tjá­ir sig op­in­ber­lega um málið frá því að því var lýst yfir á Face­book-síðu hans í síðustu viku að því sem eft­ir væri af tón­leika­ferðinni væri af­lýst. Til­kynn­ing­in vakti mjög hörð viðbrögð. Marg­ir höfðu keypt miða fyr­ir fleiri mánuðum, jafn­vel fyr­ir börn sín. 

Bie­ber byrj­ar bréf sitt á því að lýsa því hversu þakk­lát­ur hann er fyr­ir aðdá­end­ur sína. „Ég er þakk­lát­ur fyr­ir tón­leika­ferðalagið en fyrst og fremst er ég þakk­lát­ur fyr­ir YKK­UR!“ skrifaði hinn 23 ára gamli söngv­ari. „Að vaxa úr grasi hef­ur ekki alltaf verið auðvelt en full­viss­an um að ég væri ekki einn hef­ur haldið mér gang­andi. Ég hef látið óör­yggi mitt ná yf­ir­hönd­inni á tíðum. Ég hef leyft sam­bönd­um sem gengu ekki upp stjórna því hvernig ég hagaði mér gagn­vart fólki. Ég hef látið bit­urð, af­brýðisemi og ótta stjórna lífi mínu! Ég er ein­stak­lega hepp­inn að hafa fólk í kring­um mig síðustu ár sem hef­ur hjálpað mér að byggja mig aft­ur upp og hef­ur minnt mig á hver ég er og hver ég vil verða!“

Bie­ber seg­ir að Purpose-tón­leika­ferðin hafi verið ótrú­leg og að hann hefði lært mikið á henni.

Hann tjá­ir sig svo um hvers vegna henni var frestað og ít­rek­ar að hann hafi þurft að fá hvíld.

„Með því að taka mér þenn­an tíma núna þá er ég að segja að ég vilji verja SJÁLFBÆR,“ skrif­ar söngv­ar­inn ungi. „Ég vil að fer­ill minn verði sjálf­bær og ég vil að hug­ur minn, hjarta og sál verði sjálf­bær. Svo að ég geti verið sá maður sem ég vil verða, sá eig­inmaður sem ég ein­hvern tím­ann vil verða og sá faðir sem ég vil verða.“

Í til­kynn­ing­unni í síðustu viku kom fram að tón­leika­ferðinni væri frestað vegna „ófyr­ir­sjá­an­legra ástæðna.“ Ítrekað var að Bie­ber elskaði aðdá­end­ur sína og þyki leiðin­legt að hafa valdið þeim von­brigðum.“

Á tón­leika­ferðinni hef­ur Bie­ber haldið 150 tón­leika, m.a. hér á landi.

Í síðustu viku voru sagðar frétt­ir af  því að Bie­ber  hefði keyrt á bíl ljós­mynd­ara er hann var að yf­ir­gefa kirkju í Los Ang­eles. Sam­kvæmt frétt­um var Bie­ber að reyna að aka í burtu frá kirkj­unni en bíl­ar ljós­mynd­ara fylltu göt­una. Hann er sagður hafa ekið óvart utan í bíl eins þeirra er hann reyndi að kom­ast af vett­vangi.

mbl.is