Ekki tilbúinn fyrir Kanye

Iceland Airwaves | 1. nóvember 2017

Ekki tilbúinn fyrir Kanye

Michael Kiwanuka er þrítugur tónlistarmaður sem vakti fyrst almenna athygli í heimalandi sínu Bretlandi þegar hann var valinn áhugaverðasti tónlistarmaður ársins 2012 í netkosningu breska ríkisútvarpsins, BBC's Sound of 2012. Könnun þessi er haldin árlega og ríkir jafnan mikil eftirvænting um niðurstöðuna, hvaða hljómsveit eða tónlistarmaður þyki sá mest spennandi hverju sinni. Kiwanuka hafði þá gefið út þrjár stuttskífur og leikið með Adele í tónleikaferð hennar, Adele Live, ári fyrr. Þar áður hafði hann leikið á gítar með hinum og þessum hljómsveitum, áður en hann hóf sólóferil.

Ekki tilbúinn fyrir Kanye

Iceland Airwaves | 1. nóvember 2017

Michael Kiwanuka.
Michael Kiwanuka.

Michael Kiw­anuka er þrítug­ur tón­list­armaður sem vakti fyrst al­menna at­hygli í heimalandi sínu Bretlandi þegar hann var val­inn áhuga­verðasti tón­list­armaður árs­ins 2012 í net­kosn­ingu breska rík­is­út­varps­ins, BBC's Sound of 2012. Könn­un þessi er hald­in ár­lega og rík­ir jafn­an mik­il eft­ir­vænt­ing um niður­stöðuna, hvaða hljóm­sveit eða tón­list­armaður þyki sá mest spenn­andi hverju sinni. Kiw­anuka hafði þá gefið út þrjár stutt­skíf­ur og leikið með Adele í tón­leika­ferð henn­ar, Adele Live, ári fyrr. Þar áður hafði hann leikið á gít­ar með hinum og þess­um hljóm­sveit­um, áður en hann hóf sóló­fer­il.

Michael Kiw­anuka er þrítug­ur tón­list­armaður sem vakti fyrst al­menna at­hygli í heimalandi sínu Bretlandi þegar hann var val­inn áhuga­verðasti tón­list­armaður árs­ins 2012 í net­kosn­ingu breska rík­is­út­varps­ins, BBC's Sound of 2012. Könn­un þessi er hald­in ár­lega og rík­ir jafn­an mik­il eft­ir­vænt­ing um niður­stöðuna, hvaða hljóm­sveit eða tón­list­armaður þyki sá mest spenn­andi hverju sinni. Kiw­anuka hafði þá gefið út þrjár stutt­skíf­ur og leikið með Adele í tón­leika­ferð henn­ar, Adele Live, ári fyrr. Þar áður hafði hann leikið á gít­ar með hinum og þess­um hljóm­sveit­um, áður en hann hóf sóló­fer­il.

Það var sann­kölluð drauma­byrj­un hjá Kiw­anuka að fá að leika með Adele og verða fyr­ir val­inu í keppni BBC og var hann vel að heiðrin­um kom­inn, heill­andi og til­finn­inga­rík­ur tón­list­armaður sem gest­ir Ice­land Airwaves fá að kynn­ast í Gamla bíói á laug­ar­dag­inn, 4. nóv­em­ber, en Kiw­anuka hef­ur leik á miðnætti. Hátíðin hefst í dag.

Skemmti­leg­ur tími með Adele

For­eldr­ar Kiw­anuka eru frá Úganda en fluttu til Bret­lands á ní­unda ára­tugn­um og þar fædd­ist pilt­ur og ólst upp í Muswell Hill, út­hverfi í norður­hluta London sem er m.a. þekkt sem heima­slóðir hljóm­sveit­ar­inn­ar Kinks. Kiw­anuka seg­ist ekki hafa hlotið tón­list­ar­upp­eldi þó vissu­lega hafi verið leik­in tónlist á heim­ili hans í æsku og þá m.a. popp­tónlist frá Úganda. Hann er spurður að því hvenær hann hafi áttað sig á því að hann vildi verða tón­list­armaður og seg­ist hann hafa verið 11 eða 12 ára þegar það rann upp fyr­ir hon­um. Hann hafi haft mik­inn áhuga á tónlist og langað að vera í hljóm­sveit. Áður en hann byrjaði í tón­list­ar­námi við West­minster-há­skóla fór hann að leika á gít­ar með ýms­um hljóm­sveit­um og söngvur­um, m.a. djass- og sál­ar­söngvur­um og hélt því áfram meðfram námi, auk þess að kenna á gít­ar. Hann seg­ist hafa lært mikið af því.

– Árið 2011 hef­ur verið þér mik­il­vægt því þú samd­ir þá við Comm­uni­on Records sem gaf út nokkr­ar stutt­skíf­ur með þér og fórst líka í tón­leika­ferð með hinni gríðar­vin­sælu Adele sem var þá ný­bú­in að gefa út met­sölu­plöt­una 21. Hvernig var að spila með henni fyr­ir fram­an mörg þúsund manns? Það hlýt­ur að hafa verið dá­lítið skrítið fyr­ir þig?

„Jú, það var það. Fyrstu tón­leik­arn­ir voru í Nor­egi og það var margt sem ég kunni ekki al­menni­lega, hljóðpruf­ur og fleira. Þannig að ég spilaði bara fyrst í 10 eða 15 mín­út­ur,“ svar­ar Kiw­anuka kím­inn.

– Varstu tauga­óstyrk­ur?

„Já, ég var tauga­óstyrk­ur en þetta var skemmti­legt,“ svar­ar Kiw­anuka og hlær við. Hann hafi lært heil­mikið á því að ferðast og leika með Adele.

Stór stund

Talið berst að net­kosn­ingu BBC og seg­ir Kiw­anuka að hún hafi verið heil­mik­il kynn­ing fyr­ir hann og veg­semd. Að venju hafi verið tekið viðtal við hann á einni af út­varps­stöðvum BBC og hann flutt lög í beinni út­send­ingu. „Þetta var stór stund fyr­ir mig, að fá að flytja og tala um tón­list­ina mína við svo marga hlust­end­ur.“

– Var þetta „stóra tæki­færið“ á ferl­in­um?

„Já, ég held það. Ég gat komið tón­list­inni minni á fram­færi og fór í fram­haldi í fyrstu tón­leika­ferðina með hljóm­sveit­inni minni. Ég fór að leika á stærri tón­leika­stöðum en áður og fyr­ir fullu húsi. Mér hefði lík­lega ekki tek­ist það án BBC,“ seg­ir Kiw­anuka.

Fyrsta breiðskífa hans, Home Again, kom út árið 2012 á veg­um Polydor Records og hlaut hún mikið lof gagn­rýn­enda. Á henni flyt­ur Kiw­anuka til­finn­ingaþrungna tónlist í anda sál­ar­tón­list­ar átt­unda ára­tug­ar­ins og vel­gengni plöt­unn­ar minn­ir á vel­gengni ann­ars sál­ar­tón­list­ar­manns, Amy Winehou­se, sem Kiw­anuka seg­ir hafa haft mik­il áhrif á sig. Winehou­se hafi fylgt eig­in sann­fær­ingu.

Missti sjálfs­traustið

Næsta breiðskífa, Love & Hate, kom út í fyrra og seg­ist Kiw­anuka hafa upp­lifað mikið óör­yggi milli platna og skort á sjálfs­trausti.

„Ég var ekki viss um hvaða stíl ég gæti þróað og fór að ef­ast um að fólki myndi líka tón­list­in mín. Viðbrögðin voru ekki nógu já­kvæð frá út­gáfu­fyr­ir­tæk­inu við því sem ég var að gera á æf­ing­um og því missti ég heil­mikið sjálfs­traust og tapaði gleðinni við að búa til tónlist. Ég velti því fyr­ir mér að hætta en fann svo aft­ur gleðina,“ út­skýr­ir hann.

– Talandi um sjálfs­traust þá var þér boðið til sam­starfs við tón­list­ar­mann sem býr yfir ansi miklu sjálfs­trausti, Kanye West. Þú fórst á hans fund en sagðir seinna frá því að þú hefðir ekki verið til­bú­inn í að vinna með hon­um. Hvað gerðist eig­in­lega?

„Ég fór í hljóðver til hans á Havaí og trúði því ein­fald­lega ekki að svo vin­sæll og eft­ir­sótt­ur tón­list­armaður kynni að meta tón­list­ina mína. Ég fór til hans með því hug­ar­fari að ég þyrfti að vera ein­hver ann­ar en ég er en hann vildi bara að ég væri ég sjálf­ur og héldi mínu striki. Ég skil þetta bet­ur núna en gerði það ekki þá og var ekki til­bú­inn,“ svar­ar Kiw­anuka.

Svart­ur maður í hvít­um heimi

– Laga­text­arn­ir þínir eru að mestu byggðir á þinni eig­in reynslu, sjálfsævi­sögu­leg­ir. Get­urðu gefið mér dæmi um hvað þú ert að syngja?

„Já, ætli besta dæmið sé ekki „Black Man in a White World“ en í því er ég að syngja um hvernig var að al­ast upp í Muswell Hill, tón­list­ar­brans­ann og fólkið sem kem­ur á tón­leik­ana mína. Það fjall­ar um ákveðinn menn­ing­ar­árekst­ur, þeldökk­an mann sem ólst upp með svipuðum hætti og flest hvítt miðstéttar­fólk,“ svar­ar Kiw­anuka. Hann hafi líka verið að velta fyr­ir sér innra skipu­lagi þess sam­fé­lags sem hann hafi al­ist upp í. „Hvert sem ég fór hitti ég aldrei fólk eins og for­eldra mína held­ur af­kom­end­ur eldri kyn­slóða sem ólust upp í hverf­inu og því í öðrum menn­ing­ar­heimi en fjöl­skylda mín.“

– Hef­ur þú upp­lifað ras­isma í Bretlandi?

„Já en þó væg­an. Hann er ann­ars kon­ar í Bretlandi en Banda­ríkj­un­um. Ég átti ham­ingju­sama æsku og varð aldrei fyr­ir for­dóm­um af hálfu vina minna, for­eldra þeirra eða í skóla held­ur birt­ust for­dóm­arn­ir meira í fyr­ir­fram gefn­um hug­mynd­um fólks.“

Mik­il áhrif Big Little Lies

– Eitt af lög­un­um þínum, „Cold Little Heart“, var valið sem upp­hafslag vin­sælla sjón­varpsþátta HBO, Big Little Lies, sem millj­ón­ir manna hafa horft á. Það hlýt­ur að hafa aukið vin­sæld­ir þínar, ekki satt? Ég upp­götvaði tón­list­ina þína t.d. út frá þessu lagi og þess­um þátt­um og býst við að það sama eigi við um marga áhorf­end­ur þátt­anna.

„Já, það á við um flesta sem koma á tón­leika með mér núna. Ég er að spila fyr­ir álíka marga og Adele gerði árið 2011, um 2.000 manns og ég held að það megi að miklu leyti þakka þátt­un­um. Það horfðu svo marg­ir á þá um all­an heim og heyrðu lagið.

Það er reynd­ar skondið frá því að segja að í síðustu tón­leika­ferð lék ég ekki lagið á ein­um tón­leik­anna út af bil­un í tækja­búnaði. Umboðsmaður­inn minn fékk næsta dag tölvu­póst frá pirruðum tón­leika­gesti sem furðaði sig á því að ég hefði ekki spilað lagið,“ seg­ir Kiw­anuka kím­inn. Hann hafi ekki upp­lifað það áður að eiga svo vin­sælt lag að hon­um bæri skylda til að spila það á tón­leik­um.

Fimm manna hljóm­sveit kem­ur fram með Kiw­anuka á Ice­land Airwaves og blaðamanni leik­ur for­vitni á því hvort leik­in verði ný lög. Kiw­anuka seg­ir lík­legt að hann laumi einu eða tveim­ur inn í efn­is­skrána. En er hann far­inn að vinna að næstu plötu? „Já, ég hef verið að mæta í hljóðver milli tón­leika en vil ekki segja of mikið um hana á þessu stigi,“ seg­ir Kiw­anuka að lok­um.

Þeir sem vilja kynna sér tónlist Kiw­anuka geta gert það á vefsíðu hans, michaelkiw­anuka.com og á YouTu­be og Spotify.

mbl.is