Ákærðir fyrir brot á lögum um náttúruvernd

Veiðiþjófar á Ströndum | 17. nóvember 2017

Ákærðir fyrir brot á lögum um náttúruvernd

Þrír menn hafa verið ákærðir af embætti lögreglustjórans á Vestfjörðum fyrir að hafa í fyrra brotið gegn lögum um náttúruvernd og auglýsingu um friðland á Hornströndum með því að hafa laugardaginn 28. Maí í fyrra komið í friðlandið og dvalið þar í vikutíma án þess að tilkynna Umhverfisstofnun um ferðalag sitt.

Ákærðir fyrir brot á lögum um náttúruvernd

Veiðiþjófar á Ströndum | 17. nóvember 2017

Mennirnir höfðust við í neyðarskýli í Hornvík á Hornströndum. Myndin …
Mennirnir höfðust við í neyðarskýli í Hornvík á Hornströndum. Myndin er frá Hesteyri. mbl.is/Árni Sæberg

Þrír menn hafa verið ákærðir af embætti lög­reglu­stjór­ans á Vest­fjörðum fyr­ir að hafa í fyrra brotið gegn lög­um um nátt­úru­vernd og aug­lýs­ingu um friðland á Horn­strönd­um með því að hafa laug­ar­dag­inn 28. Maí í fyrra komið í friðlandið og dvalið þar í viku­tíma án þess að til­kynna Um­hverf­is­stofn­un um ferðalag sitt.

Menn­irn­ir komu í land í Horn­vík, en málið komst í há­mæli í fyrra þegar eig­andi ferðaþjón­ustu á Vest­fjörðum, sem var mætt­ur í Horn­vík til að und­ir­búa kom­andi ferðatíma­bil, kom að mönn­un­um með vopn og ýms­an veiðibúnað á staðnum. Öll veiði er bönnuð í friðland­inu.

Greint var frá því í janú­ar að fallið hafi verið frá ákæru gegn mönn­un­um, en þá hafði verið ákveðið að beita þá sekt­armeðferð. Karl Ingi Vil­bergs­son, hjá lög­regl­unni á Vest­fjörðum, staðfest­ir í sam­tali við mbl.is að menn­irn­ir hafi hins veg­ar neitað að skrifa und­ir slíka sekt­armeðferð og því hafi verið ákært í mál­inu. Það er aft­ur á móti ekki ákært fyr­ir veiði í friðland­inu.

Í síðustu viku féll dóm­ur í Héraðsdómi Vest­fjarða í meiðyrðamáli þar sem ann­ar ferðaþjón­ustuaðili, sá sem flutti menn­ina og veiðidót þeirra til Horn­vík­ur, hafði kært þann sem til­kynnti um hin meintu brot. Var sýknað í því máli.

Aðalmeðferð í máli þre­menn­ing­anna fer fram í janú­ar.

mbl.is