Velferð alls samfélagsins í húfi

Samfélagsmál | 11. desember 2017

Kerfið verður að laga sig að aðstæðum

Velferð barna er eitthvað sem við getum öll verið sammála um og er eitthvað sem Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, ætlar að leggja mjög mikla áherslu á í embætti ráðherra. Miklar breytingar hafi orðið á íslensku samfélagi og velferðarkerfið þurfi að laða sig að breyttum aðstæðum. Hann segir að þörf sé á hugarfarsbreytingu og hann vonist til þess að allir stjórnmálaflokkar geti unnið saman að þessu máli ásamt stofnunum og sérfræðingum.

Kerfið verður að laga sig að aðstæðum

Samfélagsmál | 11. desember 2017

„Ef það er eitthvað sem við sem samfélag eigum að …
„Ef það er eitthvað sem við sem samfélag eigum að geta tekið höndum saman um er það velferð barnanna okkar,“ segir Ásmundur Einar Daðason. mbl.is/Hari

Vel­ferð barna er eitt­hvað sem við get­um öll verið sam­mála um og er eitt­hvað sem Ásmund­ur Ein­ar Daðason, fé­lags- og jafn­rétt­is­málaráðherra, ætl­ar að leggja mjög mikla áherslu á í embætti ráðherra. Mikl­ar breyt­ing­ar hafi orðið á ís­lensku sam­fé­lagi og vel­ferðar­kerfið þurfi að laða sig að breytt­um aðstæðum. Hann seg­ir að þörf sé á hug­ar­fars­breyt­ingu og hann von­ist til þess að all­ir stjórn­mála­flokk­ar geti unnið sam­an að þessu máli ásamt stofn­un­um og sér­fræðing­um.

Vel­ferð barna er eitt­hvað sem við get­um öll verið sam­mála um og er eitt­hvað sem Ásmund­ur Ein­ar Daðason, fé­lags- og jafn­rétt­is­málaráðherra, ætl­ar að leggja mjög mikla áherslu á í embætti ráðherra. Mikl­ar breyt­ing­ar hafi orðið á ís­lensku sam­fé­lagi og vel­ferðar­kerfið þurfi að laða sig að breytt­um aðstæðum. Hann seg­ir að þörf sé á hug­ar­fars­breyt­ingu og hann von­ist til þess að all­ir stjórn­mála­flokk­ar geti unnið sam­an að þessu máli ásamt stofn­un­um og sér­fræðing­um.

„Ef það er eitt­hvað sem við sem sam­fé­lag eig­um að geta tekið hönd­um sam­an um er það vel­ferð barn­anna okk­ar. Við fjár­fest­um á eng­an hátt bet­ur í framtíðinni en með því að grípa sem fyrst inn í aðstæður með viðeig­andi stuðning og aðstoð þegar þess er þörf með vel­ferð barn­anna í huga.“

Áður hafi stór­fjöl­skyld­an komið meira að upp­eldi barna en núna séu afar og ömm­ur úti á vinnu­markaði líkt og for­eldr­arn­ir. Börn séu í minni bein­um sam­skipt­um sín á milli en áður var og nú hafi sam­skipt­in að tölu­verðu leyti færst yfir í ra­f­ræn sam­skipti.

„Þess­ar sam­fé­lags­legu breyt­ing­ar kalla á hug­ar­fars­breyt­ingu varðandi það hvernig við nálg­umst vel­ferð barna. Ég finn að það er þörf fyr­ir breyt­ing­ar og það er eitt­hvað sem maður finn­ur á hverj­um degi en ég hef ekki ná­kvæmt svar um hverj­ar þær eiga að vera,“ seg­ir Ásmund­ur í sam­tali við mbl.is.

Rúm vika er síðan Ásmund­ur tók við sem ráðherra en hann seg­ir að hann vilji láta fara í saum­ana á vel­ferðar­kerf­inu með það að mark­miði að kanna hvernig hægt er að grípa fyrr inn í hjá börn­um og koma í veg fyr­ir að þau leiðist út af braut­inni og þurfi þar af leiðandi miklu meira á vel­ferðar­kerf­inu að halda síðar á lífs­leiðinni.

Ásmundur Einar Daðason.
Ásmund­ur Ein­ar Daðason. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

„Við erum ekki bara að tala um vel­ferð barn­anna því við erum að tala um vel­ferð fjöl­skyld­unn­ar og sam­fé­lags­ins alls,“ seg­ir Ásmund­ur.

Hann seg­ir að á meðal verk­efna sem þurfi að fara í sé að finna úrræði fyr­ir börn sem líða skort vegna fá­tækt­ar for­eldra, börn sem þjást vegna áfeng­is­sýki for­eldra, börn sem þjást vegna of­beld­is á heim­ili eða geðsýki for­eldra. Börn sem hafa af ein­hverj­um ástæðum misst tengsl við for­eldra sína og eða hafa verið gef­in. Börn sem eiga for­eldra í fang­elsi og börn sem vegna mik­ill­ar fötl­un­ar þurfa á þjón­ustu að halda. Börn sem þjást vegna erfiðra sjúk­dóma og börn sem glíma við ein­hverfu eða eru með geðsjúk­dóma.

Mjög brýnt að grípa inn

„Það er mjög brýnt að grípa inn og hefja þessa umræðu. Því ætla ég fá full­trúa hags­muna­sam­taka sem og sér­fræðinga á minn fund til þess að koma stefnu­mót­un­ar­vinnu af stað. Við þurf­um að nálg­ast þetta verk­efni sem sam­fé­lag og á þver­póli­tísk­an hátt.“

Hann bend­ir á að í setu í fjár­laga­nefnd hafi hann kynnst starfi margra frjálsra fé­laga­sam­taka sem eru að sinna verk­efn­um vegna þeirr­ar eyðu sem virðist vera í vel­ferðar­kerf­inu. Á þess­um vett­vangi er víða unnið gríðarlega gott starf.

„Þessi mikli fjöldi fé­laga­sam­taka sem mörg hver sækja fjár­stuðning til rík­is­ins sýn­ir að vel­ferðar­kerfið þarf að grípa fyrr inn með skipu­lögðum hætti. Þar er alls ekki við starfs­menn vel­ferðar­kerf­is­ins að sak­ast held­ur þurf­um við að þróa kerfið sam­hliða breytt­um tím­um,“ seg­ir Ásmund­ur Ein­ar Daðason, fé­lags- og jafn­rétt­is­málaráðherra, sem er sann­færður um að með því megi spara háar fjár­hæðir til lengri tíma litið og ekki síst bæta stöðu fólks and­lega og fé­lags­lega.

mbl.is