Þórdís Lóa fagnar áhuga minnihlutans

Þórdís Lóa fagnar áhuga minnihlutans

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs Reykjavíkurborgar, segist fagna áhuga minnihlutans á aðstæðum heimilislausra í Reykjavík og segir að komið hafi verið á aukafundi í borgarráði í næstu viku vegna málsins, að ósk minnihlutans. Minnihlutinn í Reykjavík sendi frá sér yfirlýsingu í morgun um það „neyðarástand sem nú ríkir meðal sífellt fleiri heimilislausra í Reykjavík“ þar sem m.a. var sagt að „algjört aðgerðarleysi“ ríkti í málaflokknum.

Þórdís Lóa fagnar áhuga minnihlutans

Heimilislaust fólk í Reykjavík | 27. júlí 2018

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar og formaður borgarráðs.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar og formaður borgarráðs. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þór­dís Lóa Þór­halls­dótt­ir, formaður borg­ar­ráðs Reykja­vík­ur­borg­ar, seg­ist fagna áhuga minni­hlut­ans á aðstæðum heim­il­is­lausra í Reykja­vík og seg­ir að komið hafi verið á auka­fundi í borg­ar­ráði í næstu viku vegna máls­ins, að ósk minni­hlut­ans. Minni­hlut­inn í Reykja­vík sendi frá sér yf­ir­lýs­ingu í morg­un um það „neyðarástand sem nú rík­ir meðal sí­fellt fleiri heim­il­is­lausra í Reykja­vík“ þar sem m.a. var sagt að „al­gjört aðgerðarleysi“ ríkti í mála­flokkn­um.

Þór­dís Lóa Þór­halls­dótt­ir, formaður borg­ar­ráðs Reykja­vík­ur­borg­ar, seg­ist fagna áhuga minni­hlut­ans á aðstæðum heim­il­is­lausra í Reykja­vík og seg­ir að komið hafi verið á auka­fundi í borg­ar­ráði í næstu viku vegna máls­ins, að ósk minni­hlut­ans. Minni­hlut­inn í Reykja­vík sendi frá sér yf­ir­lýs­ingu í morg­un um það „neyðarástand sem nú rík­ir meðal sí­fellt fleiri heim­il­is­lausra í Reykja­vík“ þar sem m.a. var sagt að „al­gjört aðgerðarleysi“ ríkti í mála­flokkn­um.

Í yf­ir­lýs­ing­unni seg­ir jafn­framt að stjórn­ar­andstaðan hafi farið fram á auka­fund í vel­ferðarráði fyrr í sum­ar en svör meiri­hlut­ans hafi verið á þann veg að ekki væri unnt að verða við ósk um auka­fund fyrr en 10. ág­úst næst­kom­andi. 

„Við höf­um sett mjög skýra sýn á það í meiri­hluta­sátt­mál­an­um að vinna mjög öfl­ugt að hús­næðismál­um, bæði hvað varðar al­menna markaðinn og fé­lags­legu íbúðirn­ar. Við sett­um í okk­ar sátt­mála að við mynd­um fjölga þeim um 500 og við mynd­um vinna al­veg sér­stak­lega með jaðar­sett­um hóp­um,“ seg­ir Þór­dís Lóa. 

Mis­skiln­ing­ur um fund­inn

Hún þver­tek­ur fyr­ir að „al­gjört aðgerðarleysi“ sé hjá meiri­hlut­an­um í mála­flokkn­um líkt og minni­hlut­inn full­yrti í yf­ir­lýs­ingu sinni. „Það er fyr­ir­hugaður stór fund­ur 10. ág­úst þar sem hags­munaaðilar hafa verið boðaðir einnig. Það skipt­ir máli þegar það er verið að ræða svona mál­efni að það komi all­ir að borðinu,“ seg­ir Þór­dís Lóa. 

Þá hafi borg­ar­ráð samþykkt beiðni minni­hlut­ans um auka­fund og um mis­skiln­ing hafi verið að ræða varðandi nefnd­an auka­fund í vel­ferðarráði. „Við erum að boða til auka­fund­ar í næstu viku. Þau eru að óska eft­ir auka­fundi í borg­ar­ráði og það er ekk­ert mál, við verðum við því. Þarna er um smá mis­skiln­ing að ræða því þessi auka­fund­ur er í raun­inni fyr­ir­hugaður fund­ur um mál­efni heim­il­is­lausra, ekki auka­fund­ur í vel­ferðarráði held­ur auka­fund­ur um þetta mál­efni,“ seg­ir Þór­dís Lóa.

Hún fagn­ar áhuga minni­hlut­ans á mál­inu. „Ég verð bara að segja að ég er mjög ánægð með minni­hlut­ann. Hann sýn­ir þessu mál­efni mik­inn áhuga og það er al­deil­is gott því það þýðir það að það verður meiri sátt um það hvaða aðgerðir verður farið í,“ seg­ir Þór­dís Lóa að lok­um.   

mbl.is