Funda um stöðu heimilislausra á morgun

Funda um stöðu heimilislausra á morgun

Aukafundur í borgarráði Reykjavíkur, um stöðu heimilislausra í Reykjavík, mun fara fram klukkan ellefu á morgun. Þetta staðfestir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs Reykjavíkurborgar, í samtali við mbl.is.

Funda um stöðu heimilislausra á morgun

Heimilislaust fólk í Reykjavík | 30. júlí 2018

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar og formaður borgarráðs Reykjavíkurborgar.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar og formaður borgarráðs Reykjavíkurborgar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Auka­fund­ur í borg­ar­ráði Reykja­vík­ur, um stöðu heim­il­is­lausra í Reykja­vík, mun fara fram klukk­an ell­efu á morg­un. Þetta staðfest­ir Þór­dís Lóa Þór­halls­dótt­ir, formaður borg­ar­ráðs Reykja­vík­ur­borg­ar, í sam­tali við mbl.is.

Auka­fund­ur í borg­ar­ráði Reykja­vík­ur, um stöðu heim­il­is­lausra í Reykja­vík, mun fara fram klukk­an ell­efu á morg­un. Þetta staðfest­ir Þór­dís Lóa Þór­halls­dótt­ir, formaður borg­ar­ráðs Reykja­vík­ur­borg­ar, í sam­tali við mbl.is.

Minni­hlut­inn í Reykja­vík sendi frá sér yf­ir­lýs­ingu á föstu­dag um það „neyðarástand sem nú rík­ir meðal sí­fellt fleiri heim­il­is­lausra í Reykja­vík“ og fór fram á auka­fund um málið. 

„Minni­hlut­inn óskaði eft­ir sér­stök­um fundi um það mál­efni og ég varð við því. Þannig að við mun­um ræða það á morg­un,“ seg­ir Þór­dís Lóa í sam­tali við mbl.is.

Hún seg­ir að meiri­hlut­inn muni leggja fram til­lög­ur sem hafa verið í vinnslu frá því í meiri­hlutaviðræðum fyrr í sum­ar.

„Við ætl­um að hlusta og tala sam­an, all­ir borg­ar­full­trú­ar í borg­ar­ráði. Ég geri ráð fyr­ir því að minni­hlut­inn komi með til­lög­ur og meiri­hlut­inn kem­ur með til­lög­ur. Svo verður þetta rætt,“ bæt­ir Þór­dís við sem fagn­ar því að borg­ar­ráð fái tíma til þess að kryfja þenn­an mála­flokk al­menni­lega.

„Í borg­ar­ráði þá eru kannski 40-50 mál á dag­skrá, þannig [að] það er oft ekki mikið rými til að fara djúpt ofan í hlut­ina en á morg­un höf­um við tæki­færi til þess og ég fagna því,“ seg­ir Þór­dís að lok­um.

mbl.is