Leggja til lausnir og neyðarúrræði

Leggja til varanlegar lausnir og neyðarúrræði

„Rót vandans liggur í því að leigu- og húsnæðisverð almennt hefur hækkað um 100% á örfáum árum hjá núverandi borgarstjórn. Við erum með tillögur [um] hvernig er hægt að bæta markaðinn svo hann verði ekki svona skakkur en svo þarf líka að fara í neyðarúrræði þegar fólk er bókstaflega á götunni,“ segir Eyþór Arnalds, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is.

Leggja til varanlegar lausnir og neyðarúrræði

Heimilislaust fólk í Reykjavík | 30. júlí 2018

Eyþór Laxdal Arnalds, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Eyþór Laxdal Arnalds, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Ljósmynd/Aðsend

„Rót vand­ans ligg­ur í því að leigu- og hús­næðis­verð al­mennt hef­ur hækkað um 100% á ör­fá­um árum hjá nú­ver­andi borg­ar­stjórn. Við erum með til­lög­ur [um] hvernig er hægt að bæta markaðinn svo hann verði ekki svona skakk­ur en svo þarf líka að fara í neyðarúr­ræði þegar fólk er bók­staf­lega á göt­unni,“ seg­ir Eyþór Arn­alds, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokks­ins, í sam­tali við mbl.is.

Minni­hlut­inn í Reykja­vík sendi frá sér yf­ir­lýs­ingu fyr­ir helgi varðandi það „neyðarástand“ sem rík­ir meðal heim­il­is­lausra í borg­inni og krafðist þess að auka­fund­ur yrði hald­inn í borg­ar­ráði Reykja­vík­ur um mála­flokk­inn. Formaður borg­ar­ráðs, Þór­dís Lóa Þór­halls­dótt­ir, varð við þeirri kröfu og hef­ur boðað fund klukk­an ell­efu á morg­un.

„Það er gott mál og þá höf­um við tæki­færi til að leggja fram þær til­lög­ur sem við erum með. Bæði var­an­leg­ar lausn­ir og líka neyðarúr­ræði. Það er í raun hvort tveggja sem vant­ar,“ seg­ir Eyþór.

Til­lög­ur verða lagðar fram á fund­in­um, bæði frá stjórn­ar­and­stöðunni í heild sem og ein­staka flokk­um. Þá hef­ur verið greint frá því að meiri­hlut­inn ætli einnig að leggja fram til­lög­ur á fund­in­um.

„Þó að þetta séu ólík­ir flokk­ar [í minni­hluta] þá erum við með sam­eig­in­leg­an skiln­ing á vand­an­um. Við viður­kenn­um þenn­an vanda og það þarf að taka á hon­um,“ seg­ir Eyþór og bæt­ir við, „þetta er eitt af stóru mál­un­um og við sjá­um ekki að neitt sé að ger­ast. Þess vegna fór­um við fram á þenn­an auka­fund.“

Eyþór seg­ist ekki hafa heyrt af til­lög­um meiri­hlut­ans en er já­kvæður fyr­ir góðum hug­mynd­um.

mbl.is