Segir málaflokkinn vanræktan árum saman

Segir málaflokkinn vanræktan árum saman

Margar tillögur liggja fyrir aukafundi borgarráðs Reykjavíkur um mál heimilislausra sem hófst klukkan ellefu í dag, en fulltrúi minnihlutans segir meirihlutann sýna málaflokknum skilningsleysi. Meirihlutinn mun leggja fyrir fundinn tillögupakka, en formaður borgarráðs, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, segist ekki vilja skýra frá miklu um tillögur meirihlutans fyrir fundinn.

Segir málaflokkinn vanræktan árum saman

Heimilislaust fólk í Reykjavík | 31. júlí 2018

Aukafundur borgarráðs Reykjavíkur um málefni heimilislausra og húsnæðisskort var settur …
Aukafundur borgarráðs Reykjavíkur um málefni heimilislausra og húsnæðisskort var settur í dag. Ljósmynd/Hari

Marg­ar til­lög­ur liggja fyr­ir auka­fundi borg­ar­ráðs Reykja­vík­ur um mál heim­il­is­lausra sem hófst klukk­an ell­efu í dag, en full­trúi minni­hlut­ans seg­ir meiri­hlut­ann sýna mála­flokkn­um skiln­ings­leysi. Meiri­hlut­inn mun leggja fyr­ir fund­inn til­lögupakka, en formaður borg­ar­ráðs, Þór­dís Lóa Þór­halls­dótt­ir, seg­ist ekki vilja skýra frá miklu um til­lög­ur meiri­hlut­ans fyr­ir fund­inn.

Marg­ar til­lög­ur liggja fyr­ir auka­fundi borg­ar­ráðs Reykja­vík­ur um mál heim­il­is­lausra sem hófst klukk­an ell­efu í dag, en full­trúi minni­hlut­ans seg­ir meiri­hlut­ann sýna mála­flokkn­um skiln­ings­leysi. Meiri­hlut­inn mun leggja fyr­ir fund­inn til­lögupakka, en formaður borg­ar­ráðs, Þór­dís Lóa Þór­halls­dótt­ir, seg­ist ekki vilja skýra frá miklu um til­lög­ur meiri­hlut­ans fyr­ir fund­inn.

Þá hyggst minni­hlut­inn einnig leggja til fjölda til­lagna, bæði frá stök­um flokk­um minni­hlut­ans og í sam­ein­ingu. Minni­hlut­inn legg­ur fyr­ir fund­inn 14 til­lög­ur og/​eða fyr­ir­spurn­ir sem varða allt frá skipu­lags­mál­um yfir í lækk­un stöðugjalda fyr­ir lang­tíma­leigu á tjaldsvæðinu í Laug­ar­daln­um.

Minni­hlut­inn hafði óskað eft­ir auka­fundi borg­ar­ráðs vegna „neyðarástands sem nú rík­ir meðal sí­fellt fleiri heim­il­is­lausra í Reykja­vík.“ Meiri­hlut­inn ákvað að verða við ósk minni­hlut­ans og er fund­ur því hald­inn í dag.

Þór­dís Lóa seg­ir í sam­tali við blaðamann mbl.is að meiri­hlut­inn muni leggja fyr­ir til­lögupakka að úrræðum fyr­ir heim­il­is­lausa og tek­ur jafn­framt fram að hóp­ur­inn sem um ræðir sé fjöl­breytt­ur og að að úrræðin geti ekki verið eins fyr­ir alla. Hún seg­ist ekki úti­loka til­lög­ur minni­hlut­ans í mála­flokkn­um og að hún sé reiðubú­in til þess að ræða all­ar góðar til­lög­ur.

Fulltrúar minnihlutans hafa lagt fram tillögur og fyrirspurnir í 14 …
Full­trú­ar minni­hlut­ans hafa lagt fram til­lög­ur og fyr­ir­spurn­ir í 14 liðum. Ljós­mynd/​Hari

Lýs­andi fyr­ir skiln­ings­leysi meiri­hlut­ans

Kol­brún Bald­urs­dótt­ir, borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins, seg­ir í sam­tali við blaðamann að nú sé mik­il­væg­ast að fara í aðgerðir þar sem brýn nauðsyn blasi við. Hún seg­ir óá­sætt­an­legt að fólk sé á ver­gangi milli húsa­kosta, í tjöld­um og upp á ætt­ingja komið. Jafn­framt bind­ur hún von­ir við að hægt verði að af­greiða af­greiða til­lög­ur frá minni­hlut­an­um sem eru til bóta.

Sam­kvæmt Kol­brúnu hef­ur ekki verið hald­inn fund­ur í vel­ferðarráði enn um mála­f­lok­inn, en það standi til að ræða málið 10. ág­úst. Hún seg­ist sleg­in yfir orðum Heiðu B. Hilm­is­dótt­ur, borg­ar­full­trúa Sam­fylk­ing­ar­inn­ar og for­manns vel­ferðarráðs, á Rás 2 í morg­un. Þar sagði Heiða sagði að ekk­ert myndi ger­ast í vik­unni og lauk viðtal­inu með því að segja að fund­ur­inn í dag væri til að upp­lýsa nýja borg­ar­full­trúa um stöðu mála.

„Með þess­um orðum fannst mér að verið sé að gera lítið úr þessu máli og eig­in­lega bara vera lýs­andi fyr­ir skiln­ings­leysi meiri­hlut­ans á al­var­leika þessa mála­flokks sem hef­ur verið van­rækt­ur árum sam­an,“ seg­ir Kol­brún.

Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins í Reykjavík.
Kol­brún Bald­urs­dótt­ir, borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins í Reykja­vík. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son
mbl.is