Lýsa yfir vonbrigðum með neyðarfundinn

Lýsa yfir vonbrigðum með neyðarfundinn

Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýsa yfir vonbrigðum með að neyðarfundur sem haldinn var í borgarráði í gær hafi ekki borið þann árangur sem vonir stóðu til.

Lýsa yfir vonbrigðum með neyðarfundinn

Heimilislaust fólk í Reykjavík | 1. ágúst 2018

Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. mbl.is/Kristinn Magnússon

Borg­ar­ráðsfull­trú­ar Sjálf­stæðis­flokks­ins lýsa yfir von­brigðum með að neyðar­fund­ur sem hald­inn var í borg­ar­ráði í gær hafi ekki borið þann ár­ang­ur sem von­ir stóðu til.

Borg­ar­ráðsfull­trú­ar Sjálf­stæðis­flokks­ins lýsa yfir von­brigðum með að neyðar­fund­ur sem hald­inn var í borg­ar­ráði í gær hafi ekki borið þann ár­ang­ur sem von­ir stóðu til.

Þetta kem­ur fram í frétta­til­kynn­ingu frá borg­ar­full­trú­un­um, sem segja um­mæli for­manns vel­ferðarráðs Reykja­vík­ur, Heiðu Bjarg­ar Hilm­is­dótt­ur, í morg­unþætti Rás­ar 2 ekki hafa gefið góð fyr­ir­heit fyr­ir fund­inn.

Þar hafi Heiða Björg lýst yfir skiln­ings­leysi á mál­efn­um heim­il­is­lausra og talið fund­inn ólík­leg­an til að skila neinu. „Hins veg­ar var það áhuga­vert að meiri­hlut­inn í borg­ar­stjórn fékkst lík­lega í fyrsta skipti til að viður­kenna að það er brýnn hús­næðis­vandi í Reykja­vík,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

mbl.is