Vill svör um stöðu heimilislausra

Velferðarráð vill svör um stöðu heimilislausra

Velferðarráð Reykjavíkurborgar hefur gefið út dagskrá fyrir fund ráðsins um stöðu heimilislausra í Reykjavík sem fer fram 10. ágúst. Fundinum var flýtt í kjölfar álits umboðsmanns Alþingis, sem var birt 16. júlí, þar sem kom m.a. fram að fjöldi utangarðsfólks í Reykjavík hefur aukist um 95% frá árinu 2012. Gert er ráð fyrir því að hagsmunaaðilar svari þremur spurningum á fundinum.

Velferðarráð vill svör um stöðu heimilislausra

Heimilislaust fólk í Reykjavík | 3. ágúst 2018

Við at­hug­un á fjölda utang­arðsfólks í Reykja­vík árið 2017 kom …
Við at­hug­un á fjölda utang­arðsfólks í Reykja­vík árið 2017 kom fram að fjölgað hafði í þeim hópi um 95% frá ár­inu 2012. mbl.is/Golli

Vel­ferðarráð Reykja­vík­ur­borg­ar hef­ur gefið út dag­skrá fyr­ir fund ráðsins um stöðu heim­il­is­lausra í Reykja­vík sem fer fram 10. ág­úst. Fund­in­um var flýtt í kjöl­far álits umboðsmanns Alþing­is, sem var birt 16. júlí, þar sem kom m.a. fram að fjöldi utang­arðsfólks í Reykja­vík hef­ur auk­ist um 95% frá ár­inu 2012. Gert er ráð fyr­ir því að hags­munaaðilar svari þrem­ur spurn­ing­um á fund­in­um.

Vel­ferðarráð Reykja­vík­ur­borg­ar hef­ur gefið út dag­skrá fyr­ir fund ráðsins um stöðu heim­il­is­lausra í Reykja­vík sem fer fram 10. ág­úst. Fund­in­um var flýtt í kjöl­far álits umboðsmanns Alþing­is, sem var birt 16. júlí, þar sem kom m.a. fram að fjöldi utang­arðsfólks í Reykja­vík hef­ur auk­ist um 95% frá ár­inu 2012. Gert er ráð fyr­ir því að hags­munaaðilar svari þrem­ur spurn­ing­um á fund­in­um.

Stefna Reykja­vík­ur­borg­ar að renna út

Í fund­ar­boði vel­ferðarráðs seg­ir m.a. að til­gang­ur fund­ar­ins sé að leita úr­bóta í mál­efn­um utang­arðsfólks með því að varpa sem víðtæk­ustu ljósi á vand­ann og hlusta á sjón­ar­mið þeirra sem standa hon­um næst. Þá seg­ir að fund­ur­inn muni marka fyrstu skref­in í nýrri stefnu­mót­un Reykja­vík­ur­borg­ar en nú­ver­andi stefna borg­ar­inn­ar í mál­efn­um utang­arðsfólks renn­ur út á þessu ári.

Fund­ur­inn hefst á kynn­ingu á hús­næðisúr­ræðum fyr­ir utang­arðsfólk og upp­bygg­ingaráætl­un Reykja­vík­ur­borg­ar. Þá fer fram kynn­ing á áliti umboðsmanns Alþing­is og viðbrögðum vel­ferðarsviðs við því. 

Hags­munaaðilar krafðir svara

Fyrri hluti fund­ar­ins verður op­inn hags­munaaðilum sem og not­end­um þjón­ustu Reykja­vík­ur­borg­ar. Yfir 30 hags­munaaðilar og önn­ur sam­tök hafa verið boðuð á fund­inn og er gert ráð fyr­ir því að full­trú­ar þeirra taki til máls. Vel­ferðarráð hef­ur óskað eft­ir því að aðilar und­ir­búi sig fyr­ir fund­inn og svari þrem­ur spurn­ing­um í stuttu máli. Spurn­ing­arn­ar eru:

1. Hver er að mati þinn­ar stofn­un­ar/​sam­taka helsti vandi sem blas­ir við utang­arðsfólki í dag?
2. Hverj­ar eru lausn­ir á þeim vanda?
3. Hvernig á að for­gangsraða lausn­um?

Auka­fund­ur í borg­ar­ráði

Boðað var til auka­fund­ar í borg­ar­ráði Reykja­vík­ur sl. þriðju­dag að beiðni minni­hlut­ans í borg­inni um það „neyðarástand“ sem rík­ir í mál­um heim­il­is­lausra í Reykja­vík. Þar voru lagðar fram ýms­ar til­lög­ur til úr­bóta bæði frá meiri- og minni­hluta. Til­laga frá meiri­hlut­an­um sem var í átta liðum var samþykkt auk til­lagna frá Flokki fólks­ins og Sósí­al­ista­flokki Íslands.

Eft­ir þann fund lýstu full­trú­ar minni­hlut­ans yfir von­brigðum með fund­inn og sögðu hann ekki hafa borið þann ár­ang­ur sem von­ir stóðu til. Sanna Magda­lena Mörtu­dótt­ir, borg­ar­full­trúi Sósíl­ista­flokks­ins, gagn­rýndi m.a. að til­lög­um henn­ar hefði verið vísað til vel­ferðarráðs með til­heyr­andi töf­um.

„Þannig er nú mál með vexti að vel­ferðarráð er í sum­ar­leyfi, þannig að af­greiðsla máls­ins frest­ast. Til­lag­an gekk hins veg­ar út á að Reykja­vík­ur­borg komi taf­ar­laust á ólík­um leiðum að bú­setu­úr­ræðum fyr­ir hús­næðis­lausa ein­stak­linga. Með því að vísa mál­inu til vel­ferðarráðs tefst þessi málsmeðferð,“ sagði Sanna, við blaðamann mbl.is, eft­ir fund­inn á þriðju­dag.

Boð á fund­inn fengu:

Afstaða
Barna­vernd­ar­stofa
Barka
Drauma­setrið
Fé­lags­bú­staðir
Geðhjálp
Geðsvið Land­spít­al­ans
Gisti­skýlið Lind­ar­götu
Heilsu­gæsla höfuðborg­ar­svæðis­ins
Hjálp­ar­starf kirkj­unn­ar
Hjálp­ræðis­her­inn
Hlaðgerðarkot
Íbúðalána­sjóður
Krýsu­vík­ur­sam­tök­in
Kær­leiks­sam­tök­in
Ljós­brot
Lög­reglu­stjór­inn á höfuðborg­ar­svæðinu
mann­rétt­inda- og lýðræðisráð Reykja­vík­ur
not­end­ur þjón­ustu Reykja­vík­ur
Nýtt-Tak­mark
Oln­boga­börn
Rauði kross Íslands
Rót­in
Sam­hjálp
SÁÁ
skipu­lags- og sam­gönguráð Reykja­vík­ur
SEA
Vel­ferðarráðuneytið
um­hverf­is- og skipu­lags­svið Reykja­vík­ur
vel­ferðar­vakt­in
VoR-teymi
þjón­ustumiðstöð Vest­ur­bæj­ar, Miðborg­ar og Hlíða.

mbl.is