29 dauðsföll til rannsóknar

Samfélagsmál | 9. ágúst 2018

29 dauðsföll til rannsóknar

Fram í miðjan júní höfðu 29 dauðsföll þar sem grunur leikur á að lyf hafi komið við sögu komið til rannsóknar hjá embætti landlæknis. Allt árið í fyrra voru málin 32 talsins. 

29 dauðsföll til rannsóknar

Samfélagsmál | 9. ágúst 2018

Ólafur B. Einarsson, verkefnisstjóri hjá embætti landlæknis.
Ólafur B. Einarsson, verkefnisstjóri hjá embætti landlæknis. mbl.is/Hari

Fram í miðjan júní höfðu 29 dauðsföll þar sem grun­ur leik­ur á að lyf hafi komið við sögu komið til rann­sókn­ar hjá embætti land­lækn­is. Allt árið í fyrra voru mál­in 32 tals­ins. 

Fram í miðjan júní höfðu 29 dauðsföll þar sem grun­ur leik­ur á að lyf hafi komið við sögu komið til rann­sókn­ar hjá embætti land­lækn­is. Allt árið í fyrra voru mál­in 32 tals­ins. 

Að sögn Ólafs B. Ein­ars­son­ar, verk­efn­is­stjóra lyfja­mála hjá embætti land­lækn­is, eru nokk­ur atriði sem vekja at­hygli núna, það er í fyrsta lagi þessi aukn­ing á fjölda mats­gerða (32 allt árið í fyrra en 29 á tæp­lega hálfu ári í ár), meðal­ald­ur er að lækka og marg­ir ein­stak­ling­ar sem hafa tekið tals­vert af lyfj­um stuttu fyr­ir and­lát hafa ekki fengið þeim ávísað.

Ólaf­ur seg­ir að það veki einnig at­hygli hversu al­gengt sé að mörg ólík lyf eru að finn­ast í hverj­um ein­stak­lingi sem tal­inn er hafa lát­ist af völd­um lyfja. Inn á milli eru einnig ein­stak­ling­ar sem hafa fengið miklu ávísað af lyfj­um, jafn­vel frá mörg­um lækn­um, en lyfja­gagna­grunn­ur átti að koma í veg fyr­ir að ein­stak­ling­ar væru að fá sömu lyf eða lyf sem ekki passað sam­an frá mörg­um lækn­um, seg­ir Ólaf­ur.

Líkt og kom fram á vef embætt­is land­lækn­is í janú­ar var meg­in­til­gang­ur þess að veita lækn­um aðgang að lyfja­gagna­grunni að auka ör­yggi lyfja­á­vís­ana. Í því felst að lækn­ar hafi yf­ir­sýn yfir þær ávís­an­ir sem sjúk­ling­ur hef­ur verið að leysa út og hvað hann á af óút­leyst­um lyfj­um í lyf­seðlagátt.

mbl.is/​Val­g­arður Gísla­son

Ein af birt­ing­ar­mynd­um þols og ávana­bind­ing­ar hjá sjúk­ling­um sem fá ávana­bind­andi lyf er ráp á milli lækna til að verða sér úti um meira af lyfj­um. Þetta er vandi sem er ekki aðeins til staðar á Íslandi, en í lönd­um þar sem aðgang­ur að lækn­um er greiður, get­ur það skapað mik­inn vanda. 

1. júlí tók gildi reglu­gerð nr. 1266/​2017 um lyfja­á­vís­an­ir og af­hend­ingu lyfja. Þar kem­ur meðal ann­ars fram að frá og með 1. sept­em­ber verður óheim­ilt að ávísa með papp­írs­lyf­seðli áv­ana- og fíkni­lyfi til af­greiðslu hér á landi. 

Ávís­un lyfja í síma miðast við sem nem­ur einni pakkn­ingu af lyfi. Ávís­un á áv­ana- og fíkni­lyf gegn­um síma verður enn sem áður ekki heim­il. 

Til­lög­ur starfs­hóps um leiðir til að sporna við lyfjam­is­notk­un

mbl.is