„Átakanlegt að heyra um þennan vanda“

„Átakanlegt að heyra um þennan vanda“

„Það er mjög jákvætt að við höfum fengið að hlusta á ólík hagsmuna- og mannréttindasamtök sem vinna náið með fólki sem er í húsnæðisvanda og er heimilislaust. Þetta er jafnvel eitthvað hefði mátt eiga sér stað fyrr. Þetta var mjög upplýsandi og fræðandi en á sama tíma átakanlegt að heyra um þennan vanda sem margir einstaklingar þurfa að mæta. En þetta var góð byrjun,“ segir Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti og borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins í Reykjavík.

„Átakanlegt að heyra um þennan vanda“

Heimilislaust fólk í Reykjavík | 10. ágúst 2018

Frá fundi velferðarráðs í dag.
Frá fundi velferðarráðs í dag. mbl.is/Arnþór

„Það er mjög já­kvætt að við höf­um fengið að hlusta á ólík hags­muna- og mann­rétt­inda­sam­tök sem vinna náið með fólki sem er í hús­næðis­vanda og er heim­il­is­laust. Þetta er jafn­vel eitt­hvað hefði mátt eiga sér stað fyrr. Þetta var mjög upp­lýs­andi og fræðandi en á sama tíma átak­an­legt að heyra um þenn­an vanda sem marg­ir ein­stak­ling­ar þurfa að mæta. En þetta var góð byrj­un,“ seg­ir Sanna Magda­lena Mörtu­dótt­ir, odd­viti og borg­ar­full­trúi Sósí­al­ista­flokks­ins í Reykja­vík.

„Það er mjög já­kvætt að við höf­um fengið að hlusta á ólík hags­muna- og mann­rétt­inda­sam­tök sem vinna náið með fólki sem er í hús­næðis­vanda og er heim­il­is­laust. Þetta er jafn­vel eitt­hvað hefði mátt eiga sér stað fyrr. Þetta var mjög upp­lýs­andi og fræðandi en á sama tíma átak­an­legt að heyra um þenn­an vanda sem marg­ir ein­stak­ling­ar þurfa að mæta. En þetta var góð byrj­un,“ seg­ir Sanna Magda­lena Mörtu­dótt­ir, odd­viti og borg­ar­full­trúi Sósí­al­ista­flokks­ins í Reykja­vík.

Vel­ferðarráð Reykja­vík­ur fundaði með hags­munaaðilum um mál­efni heim­il­is­lausra í borg­inni fyrr í dag.

„Svo var hefðbund­inn fund­ur vel­ferðarráðs hald­inn í kjöl­farið og það var al­veg eitt­hvað samþykkt, ein­hver úrræði en við þurf­um alltaf að miða að því að koma með ein­hverja lang­tíma­lausn. En það er nátt­úru­lega já­kvætt að geta stuðlað að ein­hverj­um neyðarúr­ræðum á meðan ein­stak­ling­ar eru að bíða eft­ir var­an­legu hús­næði,“ seg­ir Sanna um niður­stöðu fund­ar­ins.

Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins.
Sanna Magda­lena Mörtu­dótt­ir, borg­ar­full­trúi Sósí­al­ista­flokks­ins. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Á meðal til­laga um úr­bæt­ur í mála­flokkn­um eru neyðar­skýli fyr­ir yngri utang­arðsmenn, fjölg­un smá­hýsa og kaup á gisti­heim­ili sem hægt er að breyta í 25 íbúðir fyr­ir heim­il­is­lausa.

„Sumt var samþykkt og annað fór inn í frek­ari stefnu­mót­un inn­an vel­ferðarráðs. Skila­boðin á þess­um fundi voru mjög skýr og við vit­um hvað það er sem þarf að gera. Við þurf­um lang­tíma­úr­ræði fyr­ir þá ólíku ein­stak­linga og fjöl­skyld­ur sem eru í hús­næðis­vanda og við þurf­um að byrja á því ekki seinna en núna,“ seg­ir Sanna.

Fund­ur­inn í dag var fyrsta skref að nýrri stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar í mála­flokkn­um og seg­ist Sanna von­ast til að eiga fleiri svipaða fundi í framtíðinni.

Af fundi velferðarráðs með hagsmunafulltrúum í dag.
Af fundi vel­ferðarráðs með hags­muna­full­trú­um í dag. mbl.is/​Arnþór

„Þarna erum við að brjóta veg­inn á milli stjórn­mála­fólks og al­menn­ings. Mér finnst út frá þessu að við get­um ef til vill gengið skref­inu lengra og mér fynd­ist frá­bært ef við mynd­um heyra í fólk­inu sem er í hús­næðis­vanda og bjóða þeim á op­inn fund að ræða mál­in. Það eru radd­irn­ar sem koma að borðinu í þessu máli. Það voru reynd­ar nokkr­ir ein­stak­ling­ar sem hafa reynslu af því að vera heim­il­is­laus­ir og svo voru líka ein­stak­ling­ar sem voru not­end­ur sem var mjög já­kvætt.“

Vildi fleiri með beina reynslu

Kol­brún Bald­urs­dótt­ir, borg­ar­full­trúi og odd­viti Flokks fólks­ins tek­ur í sama streng. „Ég hefði viljað hafa fleiri til að koma með beina reynslu, fólk sem er not­end­ur þess­ar­ar þjón­ustu. Ég hefði viljað hafa fleiri sem finna á eig­in skinni hvernig heim­il­is­leysi er. En það var ótrú­lega ánægju­legt að hitta alla sem voru og ég væri til í að hafa fljót­lega aft­ur svona fund.“

Kolbrún Baldursdóttir, oddviti Flokks fólksins í Reykjavík.
Kol­brún Bald­urs­dótt­ir, odd­viti Flokks fólks­ins í Reykja­vík. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Kol­brún seg­ist finna fyr­ir því að greini­leg hreyf­ing sé kom­in í mál­efni heim­il­is­lausra í Reykja­vík sem sé mikið fagnaðarefni.

„Mér finnst núna greini­lega eitt­hvað vera að ger­ast í þess­um mál­um. Þetta er í mörg ár búið að liggja niðri og vand­inn hef­ur farið vax­andi. En borg­in er að taka við sér.“

Hún seg­ist þó hafa nokkr­ar áhyggj­ur af kom­andi verk­efn­um þar sem enn eigi eft­ir að reyna á sam­starf vel­ferðarráðs við skipu­lags­ráð og aðra kima borg­ar­inn­ar.

„Ég er aðeins ugg­andi með fram­haldið því það er stutt í vet­ur og við eig­um eft­ir að sjá hlut­ina fara í fram­kvæmd. Það á eft­ir að koma í ljós hversu hratt er hægt að vinna. Við erum ekki til­bú­in í að láta fólk bíða mánuðum og árum sam­an eft­ir heim­ili. Það er nóg komið af bið.“



Velferðarráð fundaði í dag um málefni heimilislausra í Reykjavík.
Vel­ferðarráð fundaði í dag um mál­efni heim­il­is­lausra í Reykja­vík. mbl.is/​Júlí­us
mbl.is