Ræða stöðu heimilislausra

Ræða stöðu heimilislausra

Aukafundur velferðarráðs Reykjavíkurborgar stendur nú yfir en þar verður farið yfir þann vanda sem blasir við í málefnum heimilislausra í borginni. Til­gang­ur fund­ar­ins er að leita úr­bóta í mál­efn­um utang­arðsfólks með því að varpa sem víðtæk­ustu ljósi á vand­ann og hlusta á sjón­ar­mið þeirra sem standa hon­um næst. 

Ræða stöðu heimilislausra

Heimilislaust fólk í Reykjavík | 10. ágúst 2018

Velferðarráð Reykjavíkurborgar ræðir nú stöðu heimilislausra í borginni. Reykjavíkurborg rekur …
Velferðarráð Reykjavíkurborgar ræðir nú stöðu heimilislausra í borginni. Reykjavíkurborg rekur m.a. gistiskýlið við Lindargötu 48 fyrir utangarðsfólk. mbl.is/Ómar Óskarsson

Auka­fund­ur vel­ferðarráðs Reykja­vík­ur­borg­ar stend­ur nú yfir en þar verður farið yfir þann vanda sem blas­ir við í mál­efn­um heim­il­is­lausra í borg­inni. Til­gang­ur fund­ar­ins er að leita úr­bóta í mál­efn­um utang­arðsfólks með því að varpa sem víðtæk­ustu ljósi á vand­ann og hlusta á sjón­ar­mið þeirra sem standa hon­um næst. 

Auka­fund­ur vel­ferðarráðs Reykja­vík­ur­borg­ar stend­ur nú yfir en þar verður farið yfir þann vanda sem blas­ir við í mál­efn­um heim­il­is­lausra í borg­inni. Til­gang­ur fund­ar­ins er að leita úr­bóta í mál­efn­um utang­arðsfólks með því að varpa sem víðtæk­ustu ljósi á vand­ann og hlusta á sjón­ar­mið þeirra sem standa hon­um næst. 

Þá mun fund­ur­inn marka fyrstu skref­ í nýrri stefnu­mót­un Reykja­vík­ur­borg­ar en nú­ver­andi stefna borg­ar­inn­ar í mál­efn­um utang­arðsfólks renn­ur út á þessu ári.

Hags­munaaðilum var því boðið að koma á fund­inn og þeir beðnir um að und­ir­búa svör við þrem­ur spurn­ing­um. Fund­ur­inn stend­ur til kl. 16 í dag. 

Þegar hafði verið boðað til auka­fund­ar í borg­ar­ráði um síðustu mánaðamót og lýstu borg­ar­ráðsfull­trú­ar Sjálf­stæðis­flokks­ins yfir von­brigðum í kjöl­farið með að sá fund­ur hefði ekki borið þann ár­ang­ur sem von­ir stóðu til. 

Heiða Björg Hilm­is­dótt­ir, formaður vel­ferðarráðs, sagði í sam­tali við RÚV í dag, að fyr­ir­hugað væri á seinni hluta fund­ar­ins að samþykkja að koma á fót nýju neyðar­skýli fyr­ir yngri karl­menn.

Þeim hags­munaaðilum sem boðið var á fund­inn var gert að svara þrem­ur spurn­ing­um og gera grein fyr­ir svör­um sín­um á fund­in­um. Þær eru:

1. Hver er að mati þinn­ar stofn­un­ar/​​sam­taka helsti vandi sem blas­ir við utang­arðsfólki í dag?
2. Hverj­ar eru lausn­ir á þeim vanda?
3. Hvernig á að for­gangsraða lausn­um?

mbl.is