Óhuggandi eftir sambandsslitin

Valdimar Svavarsson ráðgjafi | 29. nóvember 2018

Óhuggandi eftir sambandsslitin

Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hann spurningu frá konu sem nær varla að draga andann fyrir árstarsorg og langar bara til að vera full. 

Óhuggandi eftir sambandsslitin

Valdimar Svavarsson ráðgjafi | 29. nóvember 2018

Íslensk kona er óhuggandi eftir að kærasti hennar hætti með …
Íslensk kona er óhuggandi eftir að kærasti hennar hætti með henni. mbl.is/Thinkstock

Valdi­mar Þór Svavars­son ráðgjafi hjá Fyrsta skref­inu svar­ar spurn­ing­um les­enda Smart­lands. Hér fær hann spurn­ingu frá konu sem nær varla að draga and­ann fyr­ir árst­arsorg og lang­ar bara til að vera full. 

Valdi­mar Þór Svavars­son ráðgjafi hjá Fyrsta skref­inu svar­ar spurn­ing­um les­enda Smart­lands. Hér fær hann spurn­ingu frá konu sem nær varla að draga and­ann fyr­ir árst­arsorg og lang­ar bara til að vera full. 

Hæ!

Kær­asti minn hætti með mér um dag­inn og síðan þá eða í um tvo mánuði hef ég varla getað dregið and­ann fyr­ir ástarsorg. Ég veit samt að sam­bandið var ekk­ert upp á marga fiska, það var í raun öm­ur­legt. En ég kemst ekki út úr ástarsorg­inni. Ég er búin að reyna að hressa mig við en ekk­ert geng­ur. Ég upp­lifi bara svart­nætti og lang­ar í raun bara að vera full heima hjá mér. Ég veit að það er eng­in lausn að drekka bara út í eitt en eins og staðan er núna er það eina lausn­in mín. Hvað legg­ur þú til?

Kveðja, SS

Valdimar Þór Svavarsson, ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu.
Valdi­mar Þór Svavars­son, ráðgjafi hjá Fyrsta skref­inu. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

 

Góðan dag­inn SS og takk fyr­ir þessa fyr­ir­spurn.

Það er spurn­ing hvort eigi bet­ur við að segja að mér þyki það leitt að kær­asti þinn hafi hætt með þér um dag­inn, eða að óska þér til ham­ingju með það þar sem sam­bandið hafi í raun verið öm­ur­legt, eins og þú seg­ir. Ég ætla að halda mig við síðari hlut­ann og óska þér til ham­ingju því auðvitað er ekki gott að vera í öm­ur­legu sam­bandi og stund­um er best að horf­ast í augu við að það er ekki alltaf sem fólki er ætlað að vera sam­an.

Til­finn­ing­arn­ar sem þú ert að tala um eru mjög lýs­andi fyr­ir ástand sem kalla mætti ást­arþrá eða ástarfíkn (e. love addicti­on) og eru með því allra erfiðasta sem fólk fer í gegn­um til­finn­inga­lega. Þess­ar til­finn­ing­ar tengj­ast oft­ast skorti á góðri sjálfs­mynd og sjálfs­trausti sem veld­ur því að við verðum mis­mikið háð öðru fólki. Mörg­um sem eiga við þetta vanda­mál að stríða (og það eru fjöl­marg­ir) finnst eins og þeir séu ekki heil­ir nema ef þeir eigi maka og eru gjarn­an að fókusera mikið á að sam­bandið næri sig til­finn­inga­lega. Þetta er klass­ísk út­gáfa af því sem við heyr­um stöðugt í textum um ást­ina, það er að segja að aðrir geri okk­ur heil eða full­komni okk­ur.

Þegar við upp­lif­um lífið þannig að við séum ekki sjálf­um okk­ur næg og þurf­um í raun á öðrum að halda til að líða vel þá erum við í leiðinni að segja að við séum háð öðrum til þess að við get­um verið ham­ingju­söm. Það er aldrei gott að vera háður öðru fólki. Þegar svo þess­ir ein­stak­ling­ar sem við „þurf­um“ á að halda til að gera okk­ur heil, ákveða að fara úr líf­inu okk­ar þá skell­ur á okk­ur þessi sára til­finn­ing sem þú ert að upp­lifa. Þetta er oft­ast ein­hvers kon­ar blanda af mörg­um til­finn­ing­um svo sem tóm­leika, kvíða, sorg, ein­mana­leika og reiði svo eitt­hvað sé nefnt. Þetta er það sem í dag­legu tali er kallað höfn­un, til­finn­ing­in um að vera yf­ir­gef­in.

Þess­ar til­finn­ing­ar verða stund­um svo sár­ar og hugs­an­irn­ar svo þrálát­ar að okk­ur finnst við verða að deyfa þær með ein­hverj­um hætti, til dæm­is áfeng­is­drykkju. Það er rétt hjá þér að sú aðferð hjálp­ar ekki og í reynd mun það bara gera ástandið verra með tím­an­um. Án þess að fara dýpra í or­sak­ir þess að þess­ar vondu til­finn­ing­ar koma svona sterkt upp hjá okk­ur þrátt fyr­ir að við séum full­orðin lang­ar mig að benda þér á leiðir til að vinna úr þess­ari stöðu.

Ég mæli ein­dregið með því að þú fjár­fest­ir í tíma hjá ráðgjafa sem get­ur aðstoðað þig með til­finn­inga­lega úr­vinnslu og að vinna í því að styrkja sjálfs­traustið þitt. Eins vil ég nefna nokkr­ar leiðir sem virka vel og kosta ekki neitt. Ein aðferð er að nýta hug­leiðslu sem þú get­ur til dæm­is fundið á YouTu­be. Eins mæli ég með hug­leiðslu-appi sem aðstoðar þig við að vinna gegn kvíða og van­líðan. Eitt þeirra heit­ir In­sig­ht Timer og inni­held­ur gríðarlegt magn af hug­leiðslum og fræðslu í tengsl­um við kvíða, ótta, söknuð og fleira. Eitt af því sem ein­fald­ast er að gera og virk­ar ótrú­lega vel er að fara út í nátt­úr­una, fara í göngu­túra, kíkja í sund eða fara jafn­vel á æf­ingu ef þú get­ur.

Öll hreyf­ing er góð og það að fara út úr húsi í ferskt loft er merki­lega heilandi, þó ekki sé nema 20 mín­útna göngu­túr. Hollt mataræði og góðar svefn­venj­ur styðja líka við betri líðan. Eins mæli ég með því að þú tal­ir við annað fólk, heyr­ir í vin­um og/​eða fjöl­skyldu þinni ef það er hægt og fáir þannig far­veg til að tala um hvernig þér líður, dreifa hug­an­um og finn­ir að þú átt fólk að sem þykir vænt um þig og þú ert ekki ein. Að lok­um mæli ég með því að þú seg­ir við sjálfa þig oft á dag eft­ir­far­andi setn­ingu: Ég er nóg, ég skipti máli og ég má gera mis­tök.

Gangi þér vel að vinna úr þessu máli, ég hef fulla trú á þér.

Með bestu kveðju,

Valdi­mar Þór Svavars­son ráðgjafi

Ligg­ur þér eitt­hvað á hjarta? Þú get­ur sent Valdi­mari spurn­ingu HÉR. 

mbl.is