Fagna fjölbreytileikanum

Fagna fjölbreytileikanum

Alþjóðleg­um bar­áttu­degi gegn for­dóm­um gagn­vart hinseg­in fólki er fagnað víða um heim í dag. Í frönsku borginni Bordeaux er það gert með gangbraut sem er máluð í öllum regnbogans litum svipað og gert er í Reykjavík þegar fjölbreytileikanum er fagnað á Hinsegin dögum.

Fagna fjölbreytileikanum

Réttindabarátta hinsegin fólks | 17. maí 2019

00:00
00:00

Alþjóðleg­um bar­áttu­degi gegn for­dóm­um gagn­vart hinseg­in fólki er fagnað víða um heim í dag. Í frönsku borg­inni Bordeaux er það gert með gang­braut sem er máluð í öll­um regn­bog­ans lit­um svipað og gert er í Reykja­vík þegar fjöl­breyti­leik­an­um er fagnað á Hinseg­in dög­um.

Ný­leg rann­sókn sýn­ir að 83% þeirra íbúa Bordeaux sem eru LGBT hafa orðið fyr­ir mis­mun­in á síðustu 12 mánuðum. 

Árið 2019 fagna Hinseg­in dag­ar 20 ára af­mæli auk þess sem 50 ár eru liðin frá Stonewall upp­reisn­inni. Að því til­efni standa hátíðahöld­in í 10 daga en sjálf gleðigang­an fer fram laug­ar­dag­inn 17. ág­úst.

Líkt og fyrri ár verður gleðigang­an hápunkt­ur Hinseg­in daga. Í göng­unni sam­ein­ast lesb­í­ur, homm­ar, tví- og pan­kyn­hneigðir, trans fólk, in­ter­sex fólk og aðrir hinseg­in ein­stak­ling­ar í ein­um hópi ásamt fjöl­skyld­um og vin­um til að staðfesta til­veru sína, sýni­leika og gleði, ásamt því að minna á þau bar­áttu­mál sem skipta hvað mestu máli hverju sinni, seg­ir á vef Hinseg­in daga.

mbl.is