Einstakur stíll Sharon Tate

Einstakur stíll | 2. ágúst 2019

Einstakur stíll Sharon Tate

Margir bíða spenntir eftir kvikmyndinni Once Upon a Time in Hollywood eftir Quentin Tarantino sem væntanleg er í kvikmyndahús á landinu 16. ágúst. Með tilkomu kvikmyndarinnar, sem skartar mörgum af stærstu nöfnunum í Hollywood, m.a. Brad Pitt, Margot Robbie, Leonardo DiCaprio og Al Pacino, má segja að vinsældir Sharon Tate hafi aldrei verið meiri. Kvikmyndin fjallar í stuttu máli um morðið á Sharon Tate sem Charles Manson og hans hópur myrti 9. ágúst árið 1969. Margot Robbie leikur Sharon Tate og Lenonardo DiCaprio og Brad Pitt leika nágranna hennar. 

Einstakur stíll Sharon Tate

Einstakur stíll | 2. ágúst 2019

Sharon Tate var með einstakt útlit og skemmtilega nærveru að …
Sharon Tate var með einstakt útlit og skemmtilega nærveru að mati margra.

Marg­ir bíða spennt­ir eft­ir kvik­mynd­inni Once Upon a Time in Hollywood eft­ir Qu­ent­in Tar­ant­ino sem vænt­an­leg er í kvik­mynda­hús á land­inu 16. ág­úst. Með til­komu kvik­mynd­ar­inn­ar, sem skart­ar mörg­um af stærstu nöfn­un­um í Hollywood, m.a. Brad Pitt, Margot Robbie, Leon­ar­do DiCaprio og Al Pac­ino, má segja að vin­sæld­ir Sharon Tate hafi aldrei verið meiri. Kvik­mynd­in fjall­ar í stuttu máli um morðið á Sharon Tate sem Char­les Man­son og hans hóp­ur myrti 9. ág­úst árið 1969. Margot Robbie leik­ur Sharon Tate og Lenon­ar­do DiCaprio og Brad Pitt leika ná­granna henn­ar. 

Marg­ir bíða spennt­ir eft­ir kvik­mynd­inni Once Upon a Time in Hollywood eft­ir Qu­ent­in Tar­ant­ino sem vænt­an­leg er í kvik­mynda­hús á land­inu 16. ág­úst. Með til­komu kvik­mynd­ar­inn­ar, sem skart­ar mörg­um af stærstu nöfn­un­um í Hollywood, m.a. Brad Pitt, Margot Robbie, Leon­ar­do DiCaprio og Al Pac­ino, má segja að vin­sæld­ir Sharon Tate hafi aldrei verið meiri. Kvik­mynd­in fjall­ar í stuttu máli um morðið á Sharon Tate sem Char­les Man­son og hans hóp­ur myrti 9. ág­úst árið 1969. Margot Robbie leik­ur Sharon Tate og Lenon­ar­do DiCaprio og Brad Pitt leika ná­granna henn­ar. 

And­lát Sharon Tate snerti heims­byggðina alla. Tate átti von á barni inn­an tveggja vikna frá þeim degi sem hún var myrt. Dag­inn sem hún dó hafði hún fengið tvær vin­kon­ur sín­ar heim í há­deg­is­verð þar sem hún ræddi líf sitt og vænt­ing­ar. Tate var gift leik­stjór­an­um Rom­an Pol­anski sem var á ferðalagi þenn­an dag. 

Hún snæddi kvöld­verð á upp­á­haldsveit­inga­hús­inu sínu, El Coyote Cafe, með vin­um sín­um og var kom­in heim til sín upp úr tíu um kvöldið. Vin­ir henn­ar voru með henni. Morðið á henni og fé­lög­um henn­ar átti sér stað upp úr miðnæti. Heim­il­is­hjálp­in, Wini­fred Chapman, kom að þeim dag­inn eft­ir. Tate var stung­in 16 sinn­um víðs veg­ar um lík­amann. 

Móðir Sharon Tate, Dor­is Tate, hef­ur unnið öt­ul­lega í gegn­um árin í að halda minn­ingu dótt­ur sinn­ar á lífi. Debra Tate, syst­ir Sharon Tate, sagði í viðtali við Vanity Fair að hún kynni að meta Margot Robbie í hlut­verki syst­ur sinn­ar. Að hún hafi verið svo sann­fær­andi í hlut­verk­inu að hún hefði viljað sjá meira af henni í kvik­mynd­inni. 

Sharon Tate var mik­il tísku­fyr­ir­mynd á sín­um tíma. Marg­ir segja hana eins kon­ar banda­ríska út­gáfu af Chater­ine Deneu­ve. Áhrif henn­ar á tísk­una hafa aldrei verið meiri en ein­mitt í dag, fimm­tíu árum eft­ir frá­fall henn­ar. 

Útlit henn­ar þótti áhuga­vert fyr­ir marg­ar sak­ir. Hárið á henni var fal­lega glans­andi og sítt. Hún var með óaðfinn­an­leg­ar tíma­laus­ar auga­brún­ir, alltaf með fal­leg löng augna­hár og lág­stemmd­an varalit.

Hún klædd­ist rúllukraga­bol­um og útvíðum bux­um eða laus­um sveita­kjól­um. Stutt­ir 60´s MOD kjól­ar voru í henn­ar anda og stór sólgler­augu. Hún var frjáls­leg kona sem elskaði lífið. 

Eft­ir­far­andi út­lit eru í upp­á­haldi á Smartlandi.

View this post on In­sta­gram

“She (Sharon) was still a little bit self conscious at being in­terview, alt­hough she was try­ing hard not to show it. She fumbled in her tiny, mod pur­se for a filt­ered ciga­ret, lit up, took a long drag and focu­sed her huge hazel eyes anx­i­ously on me—expect­ing I don’t know what from the in­terview. Up close, she has a decided­ly Europe­an flavor, so much so that you would expect a French or Swed­ish accent—not the car­efully rounded speech class tones, with just a tiny tinge of her nati­ve Texas.“—From an article on Sharon cal­led “Sharon Tate’s Crazy Ideas About Married Love” (From my per­sonal col­lecti­on). //Pict­ur­es taken while on a break from the film­ing of Eye of the Devil in France, near the @chateau­dehautefort in 1965.

A post shared by Sharon Tate (@sharonta­tefile) on Jun 29, 2019 at 7:57am PDT






mbl.is