„Ég hef bara því miður ekki tíma“

Skóli fyrir alla? | 14. september 2019

„Ég hef bara því miður ekki tíma“

„Ég er kennari sem fer heim með nagandi samviskubit nær hvern einasta dag því ég veit að það eru nemendur hjá mér sem þurfa meiri athygli, meiri tíma, erfiðara eða auðveldara námsefni, vantar einhvern til að tala við eða eru með hugmyndir sem þau langar að prófa. En ég hef bara því miður ekki tíma, verkfæri eða stuðning til að uppfylla þessar kröfur. Og ég lofa ykkur því, að ég er ekki ein.“ Þetta skrifar Kristín Ýr Lyngdal, kennari við Fellaskóla, á vef Skólavörðunnar, vefrits um skóla- og menntamál fyrr á árinu.

„Ég hef bara því miður ekki tíma“

Skóli fyrir alla? | 14. september 2019

Anna María Gunn­ars­dótt­ir, vara­formaður Kenn­ara­sam­bands Íslands
Anna María Gunn­ars­dótt­ir, vara­formaður Kenn­ara­sam­bands Íslands mbl.is/Hari

„Ég er kenn­ari sem fer heim með nag­andi sam­visku­bit nær hvern ein­asta dag því ég veit að það eru nem­end­ur hjá mér sem þurfa meiri at­hygli, meiri tíma, erfiðara eða auðveld­ara náms­efni, vant­ar ein­hvern til að tala við eða eru með hug­mynd­ir sem þau lang­ar að prófa. En ég hef bara því miður ekki tíma, verk­færi eða stuðning til að upp­fylla þess­ar kröf­ur. Og ég lofa ykk­ur því, að ég er ekki ein.“ Þetta skrif­ar Krist­ín Ýr Lyng­dal, kenn­ari við Fella­skóla, á vef Skóla­vörðunn­ar, vef­rits um skóla- og mennta­mál fyrr á ár­inu.

„Ég er kenn­ari sem fer heim með nag­andi sam­visku­bit nær hvern ein­asta dag því ég veit að það eru nem­end­ur hjá mér sem þurfa meiri at­hygli, meiri tíma, erfiðara eða auðveld­ara náms­efni, vant­ar ein­hvern til að tala við eða eru með hug­mynd­ir sem þau lang­ar að prófa. En ég hef bara því miður ekki tíma, verk­færi eða stuðning til að upp­fylla þess­ar kröf­ur. Og ég lofa ykk­ur því, að ég er ekki ein.“ Þetta skrif­ar Krist­ín Ýr Lyng­dal, kenn­ari við Fella­skóla, á vef Skóla­vörðunn­ar, vef­rits um skóla- og mennta­mál fyrr á ár­inu.

Þetta er upp­lif­un margra kenn­ara sem segj­ast vera und­ir miklu álagi í starfi, starfi sem þeir elska en er svo krefj­andi á stund­um að þeir ef­ast stund­um um hvort það sé þess virði. Ekki síst þegar for­eldr­ar gagn­rýna skól­ann fyr­ir að sinna ekki börn­um þeirra nægj­an­lega. Jafn­framt tala for­eldr­ar barna sem hafa verið hluta skóla­göng­unn­ar í út­lend­um skól­um um mikið aga­leysi og að nem­end­ur hér kom­ist upp með að svara kenn­ur­um full­um hálsi og lang­an tíma taki að ná ró í bekkn­um í upp­hafi hvers tíma.

„Mennt­un fyr­ir alla er í mín­um huga eitt­hvað sem ætti að vera sjálf­sagður hlut­ur í ís­lensku skóla­kerfi. Ég skil mennt­un fyr­ir alla á þann hátt að all­ir sem búa á Íslandi, sama hver bak­grunn­ur­inn er, eigi rétt á mennt­un við sitt hæfi.

Hvort sem þú ert ein­hverf­ur al­ís­lensk­ur strák­ur, les­blind pólsk stelpa, bráðgreind­ur Víet­nami eða of­virk­ur strák­ur sem elst upp á sveita­bæ hjá ömmu og afa á Vopnafirði. Mennt­un við hæfi þýðir þá að hvert barn fái náms­efni sem hent­ar því, farið sé yfir náms­efnið á þeim hraða sem hent­ar því, það sé hvatt áfram á þann hátt sem hent­ar því, það fái þann sveigj­an­leika, þá um­hyggju og þá þol­in­mæði sem hent­ar því til þess að það nái ár­angri,“ seg­ir Krist­ín Ýr enn­frem­ur í grein sinni. 

mbl.is/​Krist­inn Garðars­son

Vant­ar virðingu fyr­ir skóla­starf­inu

Anna María Gunn­ars­dótt­ir, vara­formaður Kenn­ara­sam­bands Íslands, tek­ur und­ir með Krist­ínu Ýri og seg­ir að það þyrfti að vera meiri stuðning­ur við al­menna kenn­ara. Oft er biðin eft­ir stuðningi fyr­ir nem­end­ur sem þurfa á auk­inni aðstoð að halda of löng. 

„Mennt­un er mann­rétt­indi og skól­inn á að vera fyr­ir alla nem­end­ur og all­ir eiga rétt á góðri mennt­un, við hæfi hvers og eins, óháð efna­hag, aðstæðum og upp­runa. Stefna Kenn­ara­sam­bands Íslands er að að tryggja góða mennt­un og skóla í grennd við heim­ili, aðstöðu og stuðning, nem­end­um og for­eldr­um að kostnaðarlausu frá upp­hafi leik­skóla til loka fram­halds­skóla og í tón­list­ar­skól­um. Þar að auki skulu stjórn­völd tryggja skól­um fjár­veit­ing­ar til að skipu­leggja skólastarf í sam­ræmi við stefnu um skóla og mennt­un fyr­ir alla nem­end­ur,“ seg­ir Anna María.

Hún seg­ir að svo virðist sem ís­lenskt sam­fé­lag beri ekki mikla virðingu fyr­ir skóla­starf­inu og stund­um jafn­vel ekki kenn­ar­arn­ir sjálf­ir en samt sem áður líður flest­um börn­um vel í skól­an­um. Á sama tíma er rætt um aga­leysi í ís­lensk­um skól­um og að álagið sé ekki mikið á nem­end­ur.

For­eldr­ar hika ekki við að taka börn sín úr skóla í lengri eða skemmri tíma til þess að fara í frí til út­landa og síðan er jafn­vel talað um að setja í lög bann við notk­un á sím­um í skól­um. Slíkt eigi að vera á ábyrgð for­eldra og skóla að kom­ast að sam­komu­lagi um slíka hluti án þess að til breyt­inga á lög­um þurfi að koma til,“ seg­ir Anna María.

„Við mætt­um jafn­vel huga að því að end­ur­meta stöðu nem­andans sem náms­manns og von­andi um leið auka virðingu við starf kenn­ara. Við ger­um það ekki með einka­væðingu eða markaðsvæðingu mennta­kerf­is­ins. Sam­keppni í vel­ferðarþjón­ustu veik­ir jöfnuð í mennt­un, jafn­ræði til náms og minnk­ar op­in­ber áhrif á mennta­kerfið í gegn­um lýðræðis­lega kjörn­ar stofn­an­ir,“ seg­ir hún. 

Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands.
Anna María Gunn­ars­dótt­ir, vara­formaður Kenn­ara­sam­bands Íslands. mbl.is//​Hari

Stefndi í al­var­leg­an kenn­ara­skort

Anna María seg­ir að stefna Kenn­ara­sam­bands Íslands sé í sam­ræmi við stefnu annarra nor­rænna kenn­ara­sam­taka þar sem bók­staf­lega er varað við markaðsvæðingu mennta­kerf­is­ins. En til þess þarf að tryggja kenn­ur­um verk­færi til að sinna hlut­verki sínu og í skóla­stefnu KÍ kem­ur fram að kenn­ar­ar miðli öðrum af sér­fræðiþekk­ingu sinni bæði inn­an skól­ans, til for­eldra og sam­fé­lags­ins. Skapa þurfi aðstæður sem gera kenn­ur­um kleift að starfa sam­an þvert á skóla, skóla­stig og skóla­gerðir til að auka sam­fellu í námi, miðla upp­lýs­ing­um um nám, kennslu­hætti og skólastarf.

„Sam­starf og teym­is­vinna er mik­il­væg­ur hluti af kenn­ara­starf­inu og nauðsyn­legt fyr­ir þróun skóla­starfs­ins. Tryggja þarf kenn­ur­um góðar aðstæður í starfi til að vinna sam­an að skólaþróun og veita gagn­kvæma jafn­ingjaráðgjöf. Kenn­ar­ar taki virk­an þátt í ákvörðunum um nám, kennslu og skólastarf, nýti rann­sókn­ir og nýj­ung­ar í námi og kennslu og hafi frum­kvæði að þró­un­ar- og nýbreytn­i­starfi,“ seg­ir enn­frem­ur í skóla­stefnu KÍ til árs­ins 2023.

Anna María fagn­ar þeim aðgerðum sem stjórn­völd hafa farið í að und­an­förnu til þess að fjölga kenn­ur­um og seg­ir að það hefði ekki mátt ger­ast mikið seinna því ef ekk­ert hefði verið að gert hefði vantað 2.300 kenn­ara til starfa árið 2030.

„Við þurf­um ungt fólk í kennslu og ekki nógu gott ef flest­ir þeirra sem fara í kenn­ara­nám eru um fer­tugt. Ég er mjög ánægð með viðhorf Lilju Al­freðsdótt­ur, mennta- og menn­ing­ar­málaráðherra, sem þreyt­ist ekki að tala um mik­il­vægi kenn­ara og að það sé ekki nóg að all­ir vilji að börn­in í næsta húsi verði kenn­ar­ar en að þeirra börn verði hag­fræðing­ar,” seg­ir Anna María.

„Við þurfum ungt fólk í kennslu og ekki nógu gott …
„Við þurf­um ungt fólk í kennslu og ekki nógu gott ef flest­ir þeirra sem fara í kenn­ara­nám eru um fer­tugt," seg­ir vara­formaður Kenn­ara­sam­bands­ins. mbl.is//​Hari

Skól­inn á að vera besta jöfn­un­ar­tæki­færið

Spurð út í stöðu barna með annað tungu­mál á heim­ili seg­ir Anna María að skól­inn eigi að vera besta jöfn­un­ar­tæki­færið fyr­ir er­lenda nem­end­ur og horfa eigi til þess að auka mögu­leika þeirra og um leið far­sæld heild­ar­inn­ar.

„Í Finn­landi er það sam­eig­in­leg stefna sam­fé­lags­ins að það þurfi á nýj­um Finn­um að halda og það sé best gert með því að hlúa vel að börn­um í skóla­kerf­inu. Ísland er fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lag og sam­skipti eiga að ein­kenn­ast af gagn­kvæmri virðingu. Skól­inn gegn­ir mik­il­vægu hlut­verki í því að hjálpa nem­end­um með annað móður­mál en ís­lensku að skapa sér líf og góða framtíð í sam­fé­lag­inu.

Tryggja þarf skól­um og kenn­ur­um sem best­ar aðstæður til að vinna að þessu brýna verk­efni. Til þess þarf að tryggja skól­um sér­fræðiráðgjöf og fjár­muni vegna kennslu og stuðnings við nem­end­ur með annað móður­mál en ís­lensku og sam­starfs við for­eldra. Stjórn­völd sjái til þess að er­lend­ir nem­end­ur hafi aðgang að móður­máls­kennslu og tryggi að móður­máls­nám þeirra falli að ís­lensk­um nám­skrám og skóla­starfi,“ seg­ir Anna María og bæt­ir því að nauðsyn­legt sé að kenn­ar­ar fái tæki­færi til starfsþró­un­ar. Til að mynda hafi þjóðfé­lagið breyst hratt, bæði hafi er­lend­um nem­end­um fjölgað og tækninýj­ung­ar litið dags­ins ljós.

Til þess að kenn­ar­ar geti nýtt tækn­ina til góðs þurfa þeir að hafa þekk­ingu til þess. Starfsþróun mæt­ir of oft af­gangi í störf­um kenn­ara. Það er ekki boðlegt og skapa þarf svig­rúm svo kenn­ar­ar geti aukið við þekk­ingu sína og færni,“ seg­ir Anna María.

Ísland er fjölmenningarsamfélag og samskipti eiga að einkennast af gagnkvæmri …
Ísland er fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lag og sam­skipti eiga að ein­kenn­ast af gagn­kvæmri virðingu. mbl.is/​Hari

Vekj­um at­hygli á því sem vel er gert

Hún seg­ir að kenn­ar­ar séu upp til hópa dug­leg­ir við að nýta sér tæki­færi til starfsþró­un­ar og taki þátt í nám­skeiðum/​mál­stof­um um mennta­mál. Sam­kvæmt TAL­IS könn­un Mennta­mála­stofn­un­ar sem kynnt var í sum­ar töldu yfir 82% kenn­ara á ung­linga­stigi að slík starfsþróun nýtt­ist vel í starfi. Meira en helm­ing­ur kenn­ara á ung­linga­stigi hef­ur tekið þátt í ráðstefn­um um mennta­mál og vett­vangs­ferðum í aðra skóla. Þess­ir þætt­ir eru all­ir um­tals­vert al­geng­ari hér á landi en á Norður­lönd­un­um og yf­ir­leitt al­geng­ari en í OECD og TAL­IS-lönd­um al­mennt.

„Þegar umræðunni er sí­fellt beint að álagi, slæm­um laun­um og lé­legri vinnuaðstöðu er hætta á að skólastarf sé talað niður og í því felst viss hætta. Miklu skipt­ir að vekja at­hygli á fag­mennsku stétt­ar­inn­ar. Skóla­fólk vítt og breitt af land­inu sam­ein­ar sí­fellt krafta sína í þágu mennt­un­ar barna og ung­linga. Íslensk­ir kenn­ar­ar eru vel menntaðir og mörg af­bragðsgóð verk­efni eru í gangi. Vekj­um því at­hygli á því sem vel er gert og töl­um fyr­ir mennt­un barna og ung­linga,“ seg­ir Anna María Gunn­ars­dótt­ir, vara­formaður Kenn­ara­sam­bands Íslands.

Fjölmargir hlýddu á fyrirlestur Gunnlaugs Magnússonar í sumar um skóla …
Fjöl­marg­ir hlýddu á fyr­ir­lest­ur Gunn­laugs Magnús­son­ar í sum­ar um skóla án aðgrein­ing­ar. Þar á meðal kenn­ar­ar af öll­um skóla­stig­um. mbl.is/​Hari
mbl.is