Aniston rústaði Meghan og Harry

Jennifer Aniston | 18. október 2019

Aniston rústaði Meghan og Harry

Jennifer Aniston kom sá og sigraði á Instagram í vikunni. Hún var fljótari en Sussex-hjónin Meghan og Harry að fá eina milljón fylgjenda, en það tók hana aðeins 5 klukkustundir og 16 mínútur. 

Aniston rústaði Meghan og Harry

Jennifer Aniston | 18. október 2019

Jennifer Aniston gerir allt vitlaust á Instagram.
Jennifer Aniston gerir allt vitlaust á Instagram. AFP

Jenni­fer Anist­on kom sá og sigraði á In­sta­gram í vik­unni. Hún var fljót­ari en Sus­sex-hjón­in Meg­h­an og Harry að fá eina millj­ón fylgj­enda, en það tók hana aðeins 5 klukku­stund­ir og 16 mín­út­ur. 

Jenni­fer Anist­on kom sá og sigraði á In­sta­gram í vik­unni. Hún var fljót­ari en Sus­sex-hjón­in Meg­h­an og Harry að fá eina millj­ón fylgj­enda, en það tók hana aðeins 5 klukku­stund­ir og 16 mín­út­ur. 

Það tók Meg­h­an og Harry hins veg­ar 5 klukku­stund­ir og 45 mín­út­ur að fá eina millj­ón fylgj­enda. Sus­sex-hjón­in slógu heims­met nú í apríl þegar þau skráðu sig á In­sta­gram en nú er ljóst að Anist­on hef­ur slegið það met. 

Á 24 klukku­stund­um fylgdu 8,6 millj­ón­ir manns Anist­on á In­sta­gram, þegar þetta er skrifað er hún kom­in með 11,7 millj­ón­ir fylgj­enda. Það er þó ljóst að enn á eft­ir að bæt­ast við. Meg­h­an og Harry eru með 9,7 millj­ón­ir fylgj­enda þegar þetta er skrifað. 

Vin­sæld­ir Anist­on á for­rit­inu voru svo mikl­ar að reikn­ing­ur­inn henn­ar datt út tíma­bundið og baðst hún af­sök­un­ar á því í ann­arri færslu sinni. 

View this post on In­sta­gram

I swe­ar I didn’t mean to break it... Thank you guys for the kind, glitc­hy welcome ❤️

A post shared by Jenni­fer Anist­on (@jenni­fer­anist­on) on Oct 16, 2019 at 2:39pm PDT

mbl.is