Fer ekki í ritdeilu við verðlaunahöfund

Norðurlandaráðsþing 2019 | 30. október 2019

Fer ekki í ritdeilu við verðlaunahöfund

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, segist ekki sammála gagnrýni danska  rithöfundarins Jonas Eika sem gagnrýndi stefnu Danmerkur í málefnum útlendinga þegar hann tók við bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs í Stokkhólmi í gær. Hún segist ekki ætla að standa í ritdeilu við Eika.

Fer ekki í ritdeilu við verðlaunahöfund

Norðurlandaráðsþing 2019 | 30. október 2019

Mette Frederiksen á þingi Norðurlandaráðs í dag.
Mette Frederiksen á þingi Norðurlandaráðs í dag. Ljósmynd/Johannes Jansson/Norden.org

Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráðherra Dan­merk­ur, seg­ist ekki sam­mála gagn­rýni danska  rit­höf­und­ar­ins Jon­as Eika sem gagn­rýndi stefnu Dan­merk­ur í mál­efn­um út­lend­inga þegar hann tók við bók­mennta­verðlaun­um Norður­landaráðs í Stokk­hólmi í gær. Hún seg­ist ekki ætla að standa í rit­deilu við Eika.

Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráðherra Dan­merk­ur, seg­ist ekki sam­mála gagn­rýni danska  rit­höf­und­ar­ins Jon­as Eika sem gagn­rýndi stefnu Dan­merk­ur í mál­efn­um út­lend­inga þegar hann tók við bók­mennta­verðlaun­um Norður­landaráðs í Stokk­hólmi í gær. Hún seg­ist ekki ætla að standa í rit­deilu við Eika.

Danski rithöfundurinn Jonas Eika við afhendingu Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í gær.
Danski rit­höf­und­ur­inn Jon­as Eika við af­hend­ingu Bók­mennta­verðlauna Norður­landaráðs í gær. Ljós­mynd/​Magn­us Froder­berg/​Nor­d­en.org

Í þakk­arræðu sinni sagði Eika meðal ann­ars að í Dan­mörku væri „rík­is­ras­ismi“, stefna Frederik­sen væri „of­beld­is­full“ og til þess fall­in að aðskilja fjöl­skyld­ur. Hann beindi orðum sín­um einnig að for­sæt­is­ráðherr­um hinna Norður­land­anna. „Einnig í ykk­ar lönd­um er fólki á flótta komið fyr­ir í lokuðum fang­els­um eða af­vikn­um flótta­manna­búðum. Það brýt­ur fólk niður, það ger­ir það veikt, sum­ir reyna að taka eigið líf,“ sagði rit­höf­und­ur­inn.

Ósam­mála þeirri mynd sem dreg­in var upp af Dan­mörku

„Ég er al­ger­lega ósam­mála þeirri mynd sem dreg­in var upp af Dan­mörku og hinum Norður­lönd­un­um,“ sagði Frederik­sen á blaðamanna­fundi í Stokk­hólmi í dag. „Og ég ætla mér ekki að standa í rit­deilu við verðlauna­rit­höf­und. Það er tján­ing­ar­frelsi og fólk get­ur sagt það sem það vill. Ég er ósam­mála hon­um, en ég er ánægð með að Dan­mörk hlaut tvenn verðlaun í gær. Það seg­ir eitt­hvað,“ sagði Frederik­sen, en Dan­ir fengu einnig kvik­mynda­verðlaun Norður­landaráðs fyr­ir kvik­mynd­ina Dronn­ingen, sem leik­stýrt er af May el-Touk­hy.

mbl.is