Frederiksen sat sem steinrunnin

Norðurlandaráðsþing 2019 | 30. október 2019

Frederiksen sat sem steinrunnin

Danski rithöfundurinn Jonas Eika, sem í gær hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, gagnrýndi útlendingastefnu Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur harðlega í þakkarræðu sinni. Hann sagði að í Danmörku væri „ríkisrasismi“, stefna Frederiksen væri „ofbeldisfull“ og til þess að aðskilja fjölskyldur.

Frederiksen sat sem steinrunnin

Norðurlandaráðsþing 2019 | 30. október 2019

Danski rithöfundurinn Jonas Eika við afhendingu bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Danski rithöfundurinn Jonas Eika við afhendingu bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Ljósmynd/Magnus Froderberg/Norden.org

Danski rit­höf­und­ur­inn Jon­as Eika, sem í gær hlaut bók­mennta­verðlaun Norður­landaráðs, gagn­rýndi út­lend­inga­stefnu Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráðherra Dan­merk­ur harðlega í þakk­arræðu sinni. Hann sagði að í Dan­mörku væri „rík­is­ras­ismi“, stefna Frederik­sen væri „of­beld­is­full“ og til þess að aðskilja fjöl­skyld­ur.

Danski rit­höf­und­ur­inn Jon­as Eika, sem í gær hlaut bók­mennta­verðlaun Norður­landaráðs, gagn­rýndi út­lend­inga­stefnu Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráðherra Dan­merk­ur harðlega í þakk­arræðu sinni. Hann sagði að í Dan­mörku væri „rík­is­ras­ismi“, stefna Frederik­sen væri „of­beld­is­full“ og til þess að aðskilja fjöl­skyld­ur.

Frederiksen sat á fremsta bekk.
Frederik­sen sat á fremsta bekk. Ljós­mynd/​Magn­us Froder­berg/​Nor­d­en.org

For­sæt­is­ráðherr­arn­ir klöppuðu ekki

Frederik­sen sat á fyrsta bekk við hlið Stef­an Löf­ven for­sæt­is­ráðherra Svíþjóðar. Í frétt Danska rík­is­út­varps­ins, DR, seg­ir að þau hafi „setið sem stein­runn­in“ und­ir orðum Eika og ekki klappað þegar ræðu hans lauk.

Tveir af verðlaunahöfum kvöldsins; Gyða Valtýsdóttir sem fékk tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs, …
Tveir af verðlauna­höf­um kvölds­ins; Gyða Val­týs­dótt­ir sem fékk tón­list­ar­verðlaun Norður­landaráðs, og Jon­as Eika sem fékk bók­mennta­verðlaun ráðsins. mbl.is/​Gúna

„Ég beini orðum mín­um að for­sæt­is­ráðherra Dan­merk­ur. Mette Frederik­sen leiðir rík­is­stjórn sem komst til valda með því að halda áfram með rasíska stefnu og orðræðu fyrri rík­is­stjórn­ar.“ Á þenn­an hátt hófst þakk­arræða Eika í tón­list­ar­hús­inu í Stokk­hólmi þar sem verðlaun­in voru veitt, en hann fékk þau fyr­ir smá­sagna­safnið Ef­ter so­len.

„Mette Frederik­sen hef­ur sagst vera for­sæt­is­ráðherra barn­anna, en stefna henn­ar í mál­efn­um út­lend­inga leiðir til aðskilnaðar fjöl­skyldna, til fá­tækt­ar þeirra og veld­ur því að bæði börn og full­orðnir þurfa að þola of­beld­is­fulla vist í svo­kölluðum brott­vís­un­ar­miðstöðvum.“

Þjóðern­is­stefna sem bygg­ir á múslima­h­atri

Eika beindi orðum sín­um ekki ein­göngu að for­sæt­is­ráðherra eig­in lands, held­ur að for­sæt­is­ráðherr­um hinna Norður­land­anna. „Einnig í ykk­ar lönd­um er fólki á flótta komið fyr­ir í lokuðum fang­els­um eða af­vikn­um flótta­manna­búðum. Það brýt­ur fólk niður, það ger­ir það veikt, sum­ir reyna að taka eigið líf,“ sagði rit­höf­und­ur­inn.

Jonas Eika við verðlaunaafhendinguna.
Jon­as Eika við verðlauna­af­hend­ing­una. Ljós­mynd/​Magn­us Froder­berg/​Nor­d­en.org

Hann sagði að sú þjóðern­is­stefna, sem sí­fellt nyti meiri hylli á Norður­lönd­un­um, ein­kennd­ist af hatri á íslamstrú og öðrum kynþátt­um. Kjarni henn­ar væri yf­ir­burðir hvíta manns­ins; hug­mynda­fræði um að hvíti maður­inn ætti meiri rétt en aðrir á ör­yggi og vel­ferð. 

Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur gengur úr salnum eftir athöfnina.
Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráðherra Dan­merk­ur geng­ur úr saln­um eft­ir at­höfn­ina. Ljós­mynd/​Magn­us Froder­berg/​Nor­d­en.org

Mo­gens Jen­sen, sam­starfs­ráðherra Norður­landa í dönsku rík­is­stjórn­inni, sagði í sam­tali við dönsku sjón­varps­stöðina TV2 eft­ir ræðuna að hann virti skoðanir Eika. „Ég er ekki sam­mála gagn­rýni hans, en ég óska hon­um til ham­ingju með verðlaun­in,“ sagði Jen­sen.

Fréttamenn flykktust að Eika eftir ræðu hans.
Frétta­menn flykkt­ust að Eika eft­ir ræðu hans. Ljós­mynd/​Magn­us Froder­berg/​Nor­d­en.org
mbl.is