Stoltenberg 2009 - Björn 2020

Norðurlandaráðsþing 2019 | 30. október 2019

Stoltenberg 2009 - Björn 2020

Björn Bjarnason mun vinna nýja skýrslu svipaða þeirri og Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkisráðherra Noregs, vann um norræna samvinnu fyrir áratug. Áætlað er að Björns-skýrslan komi út um mitt næsta ár.

Stoltenberg 2009 - Björn 2020

Norðurlandaráðsþing 2019 | 30. október 2019

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ávarpaði þing Norðurlandaráðs í dag.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ávarpaði þing Norðurlandaráðs í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Björn Bjarna­son mun vinna nýja skýrslu svipaða þeirri og Thor­vald Stolten­berg, fyrr­ver­andi ut­an­rík­is­ráðherra Nor­egs, vann um nor­ræna sam­vinnu fyr­ir ára­tug. Áætlað er að Björns-skýrsl­an komi út um mitt næsta ár.

Björn Bjarna­son mun vinna nýja skýrslu svipaða þeirri og Thor­vald Stolten­berg, fyrr­ver­andi ut­an­rík­is­ráðherra Nor­egs, vann um nor­ræna sam­vinnu fyr­ir ára­tug. Áætlað er að Björns-skýrsl­an komi út um mitt næsta ár.

Björn Bjarnason mun vinna skýrsluna fyrir Norðurlandaráð.
Björn Bjarna­son mun vinna skýrsl­una fyr­ir Norður­landaráð. Ljós­mynd/​Ut­an­rík­is­ráðuneytið

Þetta kom fram í máli Guðlaugs Þórs Þórðar­son­ar ut­an­rík­is­ráðherra er hann ávarpaði Norður­landaþingið í Stokk­hólmi nú fyr­ir skömmu. Stolten­berg-skýrsl­an markaði tíma­mót í nor­rænu sam­starfi og sagði Guðlaug­ur að skýrsl­an frá 2009 hafi sann­ar­lega reynst inn­spýt­ing í nor­rænt sam­starf og leitt til auk­ins sam­starfs á sviði ut­an­rík­is- og ör­ygg­is­mála. Margt hef­ur breyst síðan. Næg­ir þar að nefna lofts­lags­breyt­ing­ar, nýj­ar hætt­ur eins og netógn­ir, og end­ur­tekn­ar til­raun­ir til að grafa und­an marg­hliða alþjóðasam­vinnu, alþjóðastofn­um og alþjóðalög­um.

Samþykkt var á fundi ráðherr­anna fyrr í dag að fá Björn til verks­ins en fram kom á sept­em­ber­f­undi Norður­landaráðs í Hels­ing­fors að rík ástæða þyki til þess að vinna nýja Stolten­berg-skýrslu, þ.e. nýja út­tekt á nor­rænu sam­starfi um ut­an­rík­is- og ör­ygg­is­mál í framtíðinni.

Þinghúsið í Stokkhólmi.
Þing­húsið í Stokk­hólmi. nor­d­en.org/​Johann­es Jans­son
mbl.is