Sameinast um umsókn

Norðurlandaráðsþing 2019 | 31. október 2019

Sameinast um umsókn

Norrænu knattspyrnusamböndin (Danmörk, Færeyjar, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð) hafa gert forkönnun á möguleikum þess að sækja sameiginlega um það til FIFA að halda heimsmeistaramót kvenna í knattspyrnu 2027.  Landssamböndin sex hafa slegið því föstu að ef til umsóknar komi skuli hún grundvallast á sameiginlegum norrænum gildum og vænta þess að öll sex löndin geti haldið viðburði í tengslum við keppnina. 

Sameinast um umsókn

Norðurlandaráðsþing 2019 | 31. október 2019

Dagný Brynj­ars­dótt­ir fagn­ar marki sínu gegn Ung­verj­um í lok ágúst.
Dagný Brynj­ars­dótt­ir fagn­ar marki sínu gegn Ung­verj­um í lok ágúst. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nor­rænu knatt­spyrnu­sam­bönd­in (Dan­mörk, Fær­eyj­ar, Finn­land, Ísland, Nor­eg­ur og Svíþjóð) hafa gert for­könn­un á mögu­leik­um þess að sækja sam­eig­in­lega um það til FIFA að halda heims­meist­ara­mót kvenna í knatt­spyrnu 2027.  Lands­sam­bönd­in sex hafa slegið því föstu að ef til um­sókn­ar komi skuli hún grund­vall­ast á sam­eig­in­leg­um nor­ræn­um gild­um og vænta þess að öll sex lönd­in geti haldið viðburði í tengsl­um við keppn­ina. 

Norður­landaráð styður hug­mynd­ina um að Norður­lönd standi í sam­ein­ingu að því að halda HM í knatt­spyrnu kvenna árið 2027. Þetta kom fram í kjöl­far þess að knatt­spyrnu­sam­bönd­in sex kynntu hug­mynd­ina á Norður­landaráðsþing­inu í Stokk­hólmi.

Nor­rænu knatt­spyrnu­sam­bönd­in (Dan­mörk, Fær­eyj­ar, Finn­land, Ísland, Nor­eg­ur og Svíþjóð) hafa gert for­könn­un á mögu­leik­um þess að sækja sam­eig­in­lega um það til FIFA að halda heims­meist­ara­mót kvenna í knatt­spyrnu 2027.  Lands­sam­bönd­in sex hafa slegið því föstu að ef til um­sókn­ar komi skuli hún grund­vall­ast á sam­eig­in­leg­um nor­ræn­um gild­um og vænta þess að öll sex lönd­in geti haldið viðburði í tengsl­um við keppn­ina. 

„Þetta er frá­bært tæki­færi til að koma Norður­lönd­um á kortið og þjappa okk­ur enn bet­ur sam­an með því að vinna sam­an að gríðar­stóru verk­efni á borð við HM í knatt­spyrnu. Það hef­ur orðið spreng­ing í vin­sæld­um kvennaknatt­spyrnu. Það ríkti al­gjör ein­hug­ur um það í nefnd­inni okk­ar að þetta sé tæki­færi sem við eig­um að grípa,“ seg­ir Kj­ell-Arne Ottos­son, formaður þekk­ing­ar- og menn­ing­ar­nefnd­ar­inn­ar, á vef Norður­landaráðs.

All­ar fjór­ar nefnd­ir Norður­landaráðs fengu kynn­ingu á mögu­leik­an­um á sam­eig­in­legri nor­rænni um­sókn. Málið mælt­ist vel fyr­ir hjá nefnd­un­um sem vilja nú senda rík­is­stjórn­um Norður­landa skýr póli­tísk skila­boð. Í sam­eig­in­legri yf­ir­lýs­ingu nefnd­anna seg­ir meðal ann­ars:

„Nefnd­irn­ar eru þess sann­færðar að sam­eig­in­leg nor­ræn um­sókn hafi í för með sér margþætt­an ávinn­ing og stuðli að marg­vís­leg­um já­kvæðum áhrif­um, sam­an­borið við um­sókn frá einni þjóð. Alþjóðleg­um íþróttaviðburði af þeirri stærðargráðu sem HM kvenna í knatt­spyrnu er fylg­ir mikið álag á um­hverfið auk þess sem hann útheimt­ir mik­inn kostnað og mannafla. Allt kall­ar þetta á sjálf­bær­ar lausn­ir. Með sam­eig­in­legri um­sókn er hægt að dreifa áhætt­unni auk þess sem öll nor­rænu lönd­in auk Fær­eyja fá að njóta góðs af þeim ávinn­ingi sem slík­um viðburði fylg­ir.“

Full­trú­ar allra sex land­anna sem að sam­starf­inu standa voru viðstadd­ir þing Norður­landaráðs þar sem þeir kynntu fyr­ir­ætlan­ir sín­ar. Það verður ekki fyrr en að að minnsta kosti einu ári liðnu sem end­an­leg ákvörðun verður tek­in um það hvort senda skuli inn sam­eig­in­lega um­sókn en stuðning­ur Norður­landaráðs hef­ur mikla þýðingu fyr­ir lands­sam­bönd­in.

„Stuðning­ur­inn sem við finn­um frá Norður­landaráði gleður okk­ur mjög. Að gild­um á borð við jafn­rétti og sjálf­bærni sé gert hátt und­ir höfði fell­ur mjög vel að fyr­ir­ætl­un­um okk­ar,“ seg­ir Karl Erik Nils­son, for­seti sænska knatt­spyrnu­sam­bands­ins.

mbl.is