Aniston hló að brandara Pitt

Jennifer Aniston | 6. janúar 2020

Aniston hló að brandara Pitt

Leikkonan Jennifer Aniston hló að brandara fyrrverandi eiginmanns síns, Brad Pitt, á Golden Globe-verðlaunahátíðinni í nótt. 

Aniston hló að brandara Pitt

Jennifer Aniston | 6. janúar 2020

Jennifer Aniston.
Jennifer Aniston. AFP

Leik­kon­an Jenni­fer Anist­on hló að brand­ara fyrr­ver­andi eig­in­manns síns, Brad Pitt, á Gold­en Globe-verðlauna­hátíðinni í nótt. 

Leik­kon­an Jenni­fer Anist­on hló að brand­ara fyrr­ver­andi eig­in­manns síns, Brad Pitt, á Gold­en Globe-verðlauna­hátíðinni í nótt. 

Pitt kitlaði hlát­urtaug­ar fræga fólks­ins þegar hann gerði grín að kvenna­mál­um sín­um, en Pitt kom án konu á verðlauna­hátíðina. „Mig langaði að bjóða mömmu minni með en ég gat það ekki af því að fjöl­miðlar segja alltaf að sú kona sem stend­ur við hliðina á mér sé kær­ast­an mín. Og það hefði bara verið vand­ræðal­egt,“ sagði Pitt. 

Um leið og Pitt hafði sleppt orðinu beind­ust mynda­vél­arn­ar að Anist­on sem sást hlæja á meðal annarra gesta. 

Bæði voru þau til­nefnd til verðlauna á hátíðinni. Pitt fyr­ir hlut­verk sitt í kvik­mynd­inni Once Upon a Time... In Hollywood, sem hann vann, og Anist­on fyr­ir hlut­verk sitt í þátt­un­um The Morn­ing Show.

Pitt og Anist­on hafa orðið ágæt­is­vin­ir á síðustu miss­er­um og bauð hún hon­um í jólapartý sem hún hélt í des­em­ber.
Brad Pitt hlaut verðlaun fyrir hlutverk sitt í Once Upon …
Brad Pitt hlaut verðlaun fyr­ir hlut­verk sitt í Once Upon a Time... In Hollywood. AFP
mbl.is