Pitt varð edrú með hjálp Bradley Cooper

Bradley Cooper | 10. janúar 2020

Pitt varð edrú með hjálp Bradley Cooper

Í ræðu á galakvöldi í New York í vikunni viðurkenndi leikarinn Brad Pitt að kollegi hans Bradley Cooper hefði hjálpað honum að hætta að drekka. Ástæða þess að hann hóf að tala um Cooper og edrúlífið var sú að Cooper afhenti Pitt verðlaun. 

Pitt varð edrú með hjálp Bradley Cooper

Bradley Cooper | 10. janúar 2020

Leikarinn Brad Pitt er hættur að drekka.
Leikarinn Brad Pitt er hættur að drekka. AFP

Í ræðu á gala­kvöldi í New York í vik­unni viður­kenndi leik­ar­inn Brad Pitt að koll­egi hans Bra­dley Cooper hefði hjálpað hon­um að hætta að drekka. Ástæða þess að hann hóf að tala um Cooper og edrú­lífið var sú að Cooper af­henti Pitt verðlaun. 

„Takk Bra­dley. Bra­dley var að klára að svæfa dótt­ur sína og flýtti sér svo hingað til þess að gera þetta,“ sagði Pitt þegar hann tók við verðlaun­un­um. „Ég varð edrú út af þess­um manni og síðan hafa all­ir dag­ar verið betri.“

Pitt hætti að drekka í kjöl­far þess að hann og Ang­el­ina Jolie til­kynntu um skilnað sinn fyr­ir þrem­ur árum. Átti hann við fíkni­vanda að stríða sem hafði slæm áhrif á fjöl­skyldu­lífið. Cooper hins veg­ar hætti að drekka 29 ára og hef­ur greint frá því að áfengi hefði eyðilagt líf sitt ef hann hefði ekki hætt. 

Bradley Cooper.
Bra­dley Cooper. AFP
mbl.is