Styðja fólk í að velja lífið

Samfélagsmál | 4. febrúar 2020

Styðja fólk í að velja lífið

„Fólk getur hafa upplifað slíka óbærilega angist að það sjái ekki annan valkost en að deyja, og hafi jafnvel gert tilraunir til að taka eigið líf, en lifað af. Það er gríðarlega dýrmætt að sögur þeirra heyrist, þar sem mörg þeirra lifa síðar góðu lífi og slík skilaboð miðla von um bjartari framtíð fyrir einstaklinga og fjölskyldur þeirra,“ segir í stefnumótandi tillögum ungs fólks með persónulega reynslu af öngstræti varðandi sjálfsskaða, sjálfsvígshugsanir og sjálfsvíg. Hópurinn kynnti tillögur sínar á fundi hjá Hugarafli fyrr í dag.

Styðja fólk í að velja lífið

Samfélagsmál | 4. febrúar 2020

Hópur ungs fólks með persónulega reynslu af öngstræti varðandi sjálfsskaða, …
Hópur ungs fólks með persónulega reynslu af öngstræti varðandi sjálfsskaða, sjálfsvígshugsanir og tilrauna til sjálfsvígs, kynnti tillögur sínar í málaflokknum í dag. mbl.is/Rax

„Fólk get­ur hafa upp­lifað slíka óbæri­lega ang­ist að það sjái ekki ann­an val­kost en að deyja, og hafi jafn­vel gert til­raun­ir til að taka eigið líf, en lifað af. Það er gríðarlega dýr­mætt að sög­ur þeirra heyr­ist, þar sem mörg þeirra lifa síðar góðu lífi og slík skila­boð miðla von um bjart­ari framtíð fyr­ir ein­stak­linga og fjöl­skyld­ur þeirra,“ seg­ir í stefnu­mót­andi til­lög­um ungs fólks með per­sónu­lega reynslu af öngstræti varðandi sjálfsskaða, sjálfs­vígs­hugs­an­ir og sjálfs­víg. Hóp­ur­inn kynnti til­lög­ur sín­ar á fundi hjá Hug­arafli fyrr í dag.

„Fólk get­ur hafa upp­lifað slíka óbæri­lega ang­ist að það sjái ekki ann­an val­kost en að deyja, og hafi jafn­vel gert til­raun­ir til að taka eigið líf, en lifað af. Það er gríðarlega dýr­mætt að sög­ur þeirra heyr­ist, þar sem mörg þeirra lifa síðar góðu lífi og slík skila­boð miðla von um bjart­ari framtíð fyr­ir ein­stak­linga og fjöl­skyld­ur þeirra,“ seg­ir í stefnu­mót­andi til­lög­um ungs fólks með per­sónu­lega reynslu af öngstræti varðandi sjálfsskaða, sjálfs­vígs­hugs­an­ir og sjálfs­víg. Hóp­ur­inn kynnti til­lög­ur sín­ar á fundi hjá Hug­arafli fyrr í dag.

Í tillögum unga fólksins er meðal annars fjallað um íslensku …
Í til­lög­um unga fólks­ins er meðal ann­ars fjallað um ís­lensku aðgerðaráætl­un­ina til að fækka sjálfs­víg­um en hóp­ur­inn seg­ist hafa ýmar at­huga­semd­ir við hana. mbl.is/​Rax

Unga fólkið seg­ir mik­il­vægt að styðja fólk í að finna ástæður til að vilja lifa, frek­ar en að banna því að deyja. „For­varn­araðgerðir gegn sjálfs­víg­um þurfa að stefna í átt að rétt­lát­ara sam­fé­lagi og betri lífs­skil­yrðum. Það þarf að bæta aðstæður jaðar­settra hópa s.s. inn­flytj­enda, hinseg­in fólks, fá­tækra o.s.frv. Mennta­kerfið þarf að bjóða upp á tæki­færi fyr­ir öll, óháð bak­grunni, heim­ilisaðstæðum eða eig­in­leik­um, þar sem hver og einn fær að blómstra á eig­in for­send­um og ólík­um hæfi­leik­um er fagnað,“ seg­ir í til­lög­um hóps­ins.

Tals­vert hef­ur verið talað um „sjálfs­vígs­held rými“ í tengsl­um við sjálfs­víg og sjálfs­vígstilraun­ir inni á lokuðum geðdeild­um Land­spít­al­ans. Þá er end­ur­tekið höfðað til fjöl­miðla og stjórn­valda um að fá aukið fjár­magn til að aðlaga rým­in, fjar­lægja enn frek­ari hætt­ur og auka mönn­un til að sinna reglu­legu eft­ir­liti.

Tala af reynslu

„Mörg okk­ar hafa reynslu af því að liggja inni á geðdeild­um Land­spít­al­ans og jafn­vel und­ir sjálfs­vígs­eft­ir­liti. Okk­ar reynsla er að strípað her­bergi og reglu­legt eft­ir­lit ókunn­ugr­ar mann­eskju sem kík­ir öðru hvoru inn um dyra­gætt­ina auki ekki löng­un eða til­gang til að lifa líf­inu. Vissu­lega líður aðstand­end­um ef­laust bet­ur að vita af því að ást­vin­ir þeirra séu und­ir eft­ir­liti en þetta er ekki leiðin til að stuðla að því að fólk finni von, til­gang og velji að lifa áfram. Það er ekki hægt að banna fólki að deyja, það er hægt að styðja það til að velja lífið,“.

Reynsla okk­ar hef­ur kennt okk­ur að mann­leg nálg­un og nánd geti komið í veg fyr­ir sjálfs­víg í fjölda til­fella. Sterk­asta verk­færi okk­ar er að sýna sam­kennd, hlusta á áhyggj­ur ein­stak­lings­ins og gefa viðkom­andi tíma til að kom­ast í gegn­um þessa tíma­bundnu krísu. Það er lyk­il­atriði að vera meðvituð um að van­líðanin er ekki merki um vanda sem ein­skorðast við ein­stak­ling­inn. Van­líðanin end­ur­spegl­ar flókið sam­spil ein­stak­lings, um­hverf­is og sam­fé­lags, segja þær Sig­ur­borg Sveins­dótt­ir og Svava Arn­ar­dótt­ir, sem eru meðal þeirra sem unnu til­lög­urn­ar.

Breyta þurfi starfs­hátt­um gagn­vart börn­um og ung­menn­um

Svava seg­ir að mik­il­vægt sé að veita mann­eskju­lega nálg­un til þeirra sem leggj­ast inn á geðdeild í stað þess að setja ein­stak­ling­inn inn í tómt rými þar sem hann eigi að vera ör­ugg­ur. Það þarf að auka lík­ur á að viðkom­andi vilji lifa áfram. Það þarf ekki síst að breyta starfs­hátt­um gagn­vart börn­um og ung­menn­um. Það að beitt sé úrræðum sem brjóta gegn Mann­rétt­inda­sátt­mála og Barna­sátt­mála Sam­einuðu þjóðanna. Þetta er ein­fald­lega ekki boðlegt. Að beitt sé hót­un­um, ein­angr­un og öðrum þving­unar­úr­ræðum gagn­vart börn­um,“ seg­ir Svava og þessu þurfi að breyta. 

Aðal­atriðið er að það skort­ir mann­eskju­legt viðmót í geðheil­brigðis­kerf­inu, nánd og þá til­finn­ingu að við, sem höf­um upp­lifað áföll og/​eða erum að ganga í gegn­um krísu, skipt­um máli, seg­ir Sig­ur­borg. „Of oft van­meta starfs­menn mátt sinn sem mann­eskj­ur og kraft­inn sem felst í því að sýna nánd. Að standa þér við hlið og staðfesta líðan þína án þess að ráðleggja er mjög sterkt verk­færi,“ seg­ir Sig­ur­borg.

Fundur hjá Hugarafli í dag.
Fund­ur hjá Hug­arafli í dag. mbl.is/​Rax

Í seinni tíð hef­ur umræða um sjálfsskaða og sjálfs­víg orðið opn­ari. Auk­in vinna hef­ur verið lögð í for­varn­ir og stefnu­mót­un. Við telj­um að per­sónu­leg reynsla okk­ar og inn­sýn í þessi mál sé bæði dýr­mæt og þörf til að auka skiln­ing á af hverju fólk kýs stund­um að taka eigið líf og aðdrag­and­an­um fram að þess­ari al­var­legu til­finn­inga­legu krísu, segja þær. 

Tölu­verður aðdrag­andi var að þessu verk­efni sem unnið er inn­an Hug­arafls. Hug­mynd­in spratt upp úr því að fólk inn­an hóps­ins var á fjölda viðburða þar sem ungt fólk var um­fjöll­un­ar­efnið og and­leg van­líðan þess. „Við sáum það þegar við lit­um í kring­um okk­ur að það var mjög sjald­an ungt fólk að tala og enn færra ungt fólk í saln­um. Þetta voru aðallega for­svars­menn úrræða og sér­fræðing­ar,“ seg­ir Svava. 

Af hverju upp­lif­ir fólk slíka van­líðan?

Fé­lag­ar Hug­arafls tóku sig því sam­an og ákváðu að halda viðburð 12. sept­em­ber í fyrra þar sem fimm ung­menni á aldr­in­um 18-30 ára sögðu frá eig­in reynslu af sjálfsskaða, sjálfs­vígs­hugs­un­um og til­raun­um til sjálfs­víga. Viðburður­inn var hald­inn í til­efni af alþjóðleg­um for­varna­degi sjálfs­víga sem hald­inn er 10. sept­em­ber ár hvert.

Í umræðu um sjálfs­víg er fjöl­miðlum og al­menn­ingi tamt að draga fram töl­ur um tíðni sjálfs­víga, upp­lýs­ing­ar um al­gengi sjálfs­víga og tengsl þeirra við ákveðna geðsjúk­dóma eða vímu­efna­notk­un. Það skort­ir hins veg­ar að veita upp­lýs­ing­ar um af hverju fólk upp­lif­ir slíka van­líðan að það telji sér ekki fært að lifa leng­ur og neyðist til að taka eigið líf.

„Í ljósi per­sónu­legr­ar reynslu okk­ar íhug­ar fólk ekki sjálfs­víg í tóma­rúmi. Þess­ar hugs­an­ir skjóta upp koll­in­um í kjöl­far áfalla, of­beld­is og út­skúf­un­ar eða tengj­ast öðrum fé­lags­leg­um eða efna­hags­leg­um þátt­um s.s. þjóðerni, kyntján­ingu, kyn­vit­und, kyn­hneigð, fá­tækt, færni og skerðingu, kynþætti, stöðu á at­vinnu­markaði, mennt­un og öðrum tæki­fær­um til sam­fé­lags­legr­ar þátt­töku.

Það er lyk­il­atriði að huga að þess­um þátt­um til að skilja þær ástæður sem liggja að baki því þegar fólk íhug­ar sjálfs­víg og tel­ur það skásta eða jafn­vel eina kost­inn sem því stend­ur til boða. Einnig eru þess­ir þætt­ir gjarn­an und­an­fari þess að fólk fái grein­ing­arstimpla geðsjúk­dóma í kjöl­far krísu. Sjálfs­vígs­hugs­an­ir og sjálfsskaði eru ekki geðsjúk­dóm­ur.

Okk­ar reynsla er sú að að til­finn­inga­leg van­líðan sem verður til þess að ein­stak­ling­ur fær geðsjúk­dóms­stimp­il og vímu­efna­vandi spretta oft af sömu rót. Það sama má segja um or­sak­ir þess að fólk upp­lifi sjálfs­vígs­hugs­an­ir og stundi sjálfsskaða.

Við vilj­um ít­reka það að hver sem er get­ur upp­lifað erfiðar hugs­an­ir og lent í öngstræti, enda er það sam­mann­legt að líða ein­hvern tíma illa. Það er ekki rétt að af­marka og greina vanda ein­stak­lings við sjúk­dóm þegar or­sak­irn­ar er að finna allt í kring­um okk­ur. Of­beldi og áföll eru ekki sjúk­dóm­ar og það ætti því ekki að flokka af­leiðing­ar of­beld­is og áfalla sem sjúk­dóma,“ segja þau.

Að þeirra mati ættu sjálfs­vígs­for­varn­ir ekki að snú­ast um að fjar­lægja leiðir til að taka eigið líf, því fólk sem er í til­finn­inga­legri krísu og er með sjálfs­vígs­hugs­an­ir mun ávallt finna leiðir til að kveðja þenn­an heim. Til að vinna í al­vöru að sjálfs­vígs­for­vörn­um þarf að leggja kraft í að bæta sam­fé­lagið og styðja fólk til að vinna úr áfalla­sög­um til að færri ein­stak­ling­ar upp­lifi svo mikla van­líðan að þeir sjái sér ekki fært að lifa leng­ur. Allt for­varn­astarf ætti að miðast að því að styðja fólk til að finna ástæður til að vilja lifa. 

Hlustað af athygli á tillögur unga fólksins.
Hlustað af at­hygli á til­lög­ur unga fólks­ins. mbl.is/​RAX

Í til­lög­um unga fólks­ins er meðal ann­ars fjallað um ís­lensku aðgerðaáætl­un­ina til að fækka sjálfs­víg­um en hóp­ur­inn seg­ist hafa ýms­ar at­huga­semd­ir við hana.

„Áætl­un­inni var skipt í fimm flokka, og þar á meðal var einn flokk­ur­inn tak­mörk­un aðgeng­is að hættu­leg­um efn­um, hlut­um og aðstæðum og ann­ar efl­ing geðheilsu og seiglu í sam­fé­lag­inu. Hér er lögð of mik­il áhersla á að „fjar­lægja leiðir“ sem mik­il­væg­an þátt í for­vörn­um gegn sjálfs­víg­um. Við telj­um að það sé ekki hægt að koma í veg fyr­ir slíkt með þeirri aðferð. Einnig þykir okk­ur var­huga­vert að skella skuld­inni á ein­stak­ling­inn og skort hans á seiglu, þegar fólk í þess­um aðstæðum hef­ur reynst þraut­seigt og bar­ist lengi við óviðun­andi aðstæður áður en til­raun er gerð til að taka eigið líf. Við telj­um að þessi áætl­un hefði mögu­lega náð bet­ur utan um vand­ann og lausn­ir ef ein­hverj­ir ein­stak­ling­ar með per­sónu­lega reynslu af viðfangs­efn­inu hefðu verið þátt­tak­end­ur í verk­efna­hópn­um, en svo var ekki í þessu til­viki,“ seg­ir í til­lög­um hóps­ins.

Rætt um sjálfsvíg og leið að betri líðan.
Rætt um sjálfs­víg og leið að betri líðan. mbl.is/​RAX

Hóp­ur­inn tel­ur þörf á því að opna umræðuna um geðheilsu, til­finn­ing­ar og líðan mun fyrr en var gert í þeirra bernsku og að það sé gert strax í leik­skóla. „Fræðslan á ekki að snú­ast um geðsjúk­dómastimpla held­ur mann­lega líðan og það að okk­ur get­ur liðið á alls kyns vegu án þess að það sé sjúk­legt. Börn­um get­ur liðið af­skap­lega illa og verið far­in að hafa ýms­ar sjálfs­vígs­hugs­an­ir á unga aldri. Þeim geta fylgt mik­il skömm og van­líðan, og sú hugs­un að þau séu ein í heim­in­um. Vönduð fræðsla um svart­nætti og öngstræti myndi ekki gefa börn­um hug­mynd­ir held­ur brjóta niður múra og minnka þessa skömm og ein­angr­un. 

Ástvin­ir okk­ar eiga það til að verða afar ótta­slegn­ir þegar við höf­um opnað okk­ur um van­líðan. En stund­um eru viðbrögð þeirra við sjálfsskaða, tali um sjálfs­vígs­hugs­an­ir og sjálfs­vígstilraun­ir ekki til neinn­ar hjálp­ar. Sjálfs­vígstilraun­ir eru til að mynda ekki merki um eig­in­girni, veik­leika eða at­hygl­is­sýki. Mark­miðið með slík­um til­raun­um er ekki endi­lega að deyja held­ur að losna úr óviðun­andi aðstæðum og van­líðan.

Hjálp­leg viðbrögð eru að fá að tala um van­líðan­ina án þess að vera dæmd­ur, án þess að vera stimpluð með sjúk­dóm og án þess að aðstand­and­inn verði svo hrædd­ur að lokað verði á frek­ari umræðu,“ segja ung­menn­in.

Mik­il­vægt að létta á skömm­inni

Sig­ur­borg seg­ir mik­il­vægt að létta á þess­ari skömm og eins að hafa ein­hvern til að ræða við. Að það sé allt í lagi að tala við fólk um van­líðan. 

„Við vilj­um koma þeim skila­boðum á fram­færi við fólk að vera óhrætt við að eiga sam­talið við ná­inn vin eða aðstand­anda, að vera mann­eskja og vera til staðar,“ seg­ir Svava. Að fólk sé óhrætt við að leyfa viðkom­andi að finna að hann er ekki einn og það sé til staðar ef eitt­hvað bját­ar á. „Í stað þess að ef opnað er á umræðuna að þá sé svarið strax: finn­um fagaðila. Það er ekki það eina sem er í boði og get­ur þýtt að fólk þorir ekki að opna á þetta. Þess­ar hugs­an­ir geta komið upp mjög snemma og jafn­vel þegar maður er mjög ung­ur. Það er ekki talað um þetta þegar börn eru mjög ung og þau upp­lifa það þess vegna að þau séu ein í heim­in­um. Mik­il skömm og ef ekk­ert er talað um það þá eru það skila­boð um að maður eigi ekki að vera svona og að maður sé einn,“ seg­ir Svava. 

Það þarf að taka því al­var­lega þegar börn beita önn­ur börn of­beldi, líkt og á sér stað í einelt­is­mál­um. Þau verk­færi sem við leggj­um sér­stak­lega til í þess­um mála­flokki er varðar geðheilsu á upp­vaxt­ar­ár­um er starf sam­bæri­legt Regn­boga­börn­um og Geðfræðslu Hug­arafls.

Nú­ver­andi fyr­ir­komu­lag Geðfræðslu Hug­arafls er að fólk með per­sónu­lega reynslu af and­leg­um áskor­un­um fer í efstu bekki grunn­skóla og fyrstu bekki mennta­skóla og seg­ir frá sinni bata­sögu og opn­ar umræðu um til­finn­ing­ar og bjargráð. Eitt­hvað sam­bæri­legt Regn­boga­börn­um og svo Geðfræðslu Hug­arafls þyrfti að vera í boði um land allt, og fyr­ir tölu­vert breiðari ald­urs­hóp en nú er. Svava og Sig­ur­borg segja að með því að vinna í áfalla­sögu sé oft hægt að koma í veg fyr­ir margra ára van­líðan og sjálfs­vígs­hugs­an­ir ungs fólks. 

Nokk­ur þeirra hafa per­sónu­lega reynslu að hafa fengið þjón­ustu (inn­lagn­ir, göngu­deild og eft­ir­fylgni) hjá barna- og ung­linga­geðdeild Land­spít­al­ans (BUGL). Fjöldi ung­menna fær aldrei þjón­ustu frá BUGL og dag­ar uppi á löng­um biðlist­um.

„Þetta er sorg­leg staðreynd um ís­lenskt geðheil­brigðis­kerfi. Þau okk­ar sem hafa reynslu af BUGL hafa blendn­ar til­finn­ing­ar til starfs­ins (þar) sem lita af­stöðu þeirra gagn­vart stofn­un­inni. Við vilj­um taka það fram að við höf­um öll haft kynni af ein­stök­um starfs­mönn­um sem hafa hjartað á rétt­um stað og hafa stutt okk­ur á já­kvæðan hátt. Hins veg­ar telj­um við það ólíðandi að við séu hafðar þving­un­araðferðir gagn­vart börn­um, t.d. þvinguð lyfja­gjöf, hót­an­ir um að vera tek­in frá for­eldr­um, ein­angr­un notuð sem refs­ing, frels­is­svipt­ing og börn fjar­lægð af heim­ili án samþykk­is barns­ins. Einnig höf­um við dæmi um að van­mátt­ur og viðkvæm staða for­eldra sé notuð gegn þeim til að fá samþykki þeirra fyr­ir inn­lögn barna og lyfja­gjöf gegn betri vit­und þeirra.

Við höf­um upp­lifað að vera í „ein­angr­un­ar­her­berg­inu“ á meðan inn­lögn okk­ar á BUGL stóð. Slík her­bergi eru strípuð af öllu nema rúmi og því sem er vegg­fast. Gluggi er á hurð og barnið er lokað þar inni ef það sýn­ir erfiða hegðun og haldið þar þar til það hef­ur „róað sig“, segja þau í til­lög­um sín­um.

Lokuð inni í fjóra tíma, sleppt út í stutta stund og lokuð inni aft­ur

Jafn­vel hafi verið það verklag að börn hafi mátt vera lokuð inni í að há­marki fjór­ar klukku­stund­ir í þessu her­bergi. „Sum okk­ar upp­lifðu það að vera lokuð inni í fjór­ar klukku­stund­ir, vera sleppt út í stutta stund, og lokuð strax aft­ur inni í aðrar fjór­ar klukku­stund­ir. Sér­stak­ur skýrslu­höf­und­ur Sam­einuðu þjóðanna um pynt­ing­ar tók sér­stak­lega fram í skýrslu frá 2011 að ein­angr­un barna og ung­menna und­ir 18 ára aldri, sama hversu stutt, telj­ist grimmd­ar­leg, ómannúðleg og niður­lægj­andi meðferð (In­terim report of the Special Rapporte­ur of the Hum­an Rights Council on tort­ure and ot­her cru­elin­hum­an or degra­ding treatment or pun­is­h­ment, 2011). Við tök­um und­ir þessi orð, ein­angr­un á aldrei að nota sem refs­ingu,“ segja þau.


Svava seg­ir að þetta sé mjög mikl­vægt. „And­leg van­líðan er ekki bund­in við ein­stak­ling­inn ein­an og ein­stak­lingsþætti. Okk­ar reynsla af BUGL er sú að barnið er tekið úr um­hverfi sínu og vand­an­um skellt á það. Ekki er horft til þátta utan barns­ins sjálfs, jafn­vel þótt löng saga sé um end­ur­tekn­ar inn­lagn­ir og langvar­andi vanda. Að inn­lögn lok­inni er barnið sent aft­ur heim án þess að búið sé að at­huga hvort heim­ilisaðstæður og fé­lags­leg­ur stuðning­ur séu viðun­andi. Nokk­ur okk­ar báðu ít­rekað um fjöl­skyldumeðferð á meðan inn­lögn á geðdeild stóð  en beiðnum var ekki svarað. Það þarf að horfa heild­rænt á aðstæður hverju sinni.“

Mikið hef­ur verið rætt um skort á fjár­magni til þess að viðun­andi þjón­usta geti verið í boði á geðdeild­um Land­spít­al­ans. Við telj­um lausn­ina ekki fel­ast ein­fald­lega í aukn­um fjár­veit­ing­um held­ur þyrfti líka að aðlaga starfs­hætti og breyta um áhersl­ur í nálg­un í mála­flokkn­um. Það er ekki þörf á að fjölga stöðugild­um ef starfs­hætt­ir verða óbreytt­ir. Meiri­hluti okk­ar hef­ur legið inni á geðdeild­um Land­spít­al­ans á ein­hverj­um tíma æv­inn­ar. Af þeirri reynslu að dæma er allt of al­gengt að starfs­fólk hunsi van­líðan þeirra sem liggja þar inni og horfi jafn­vel í hina átt­ina ef ein­hver sit­ur grát­andi í al­rými eða öskr­ar inni á her­bergi. Við telj­um fjölda nú­ver­andi starfs­fólks hálfkulnað í starfi, með tak­markaða trú á að fólk geti náð bata og skert­an vilja til að tengj­ast fólki á mann­eskju­leg­an hátt,“ seg­ir í til­lög­um hóps­ins.

Inn­lögn ákveðið áfall

Þær segja ákveðið áfall að leggj­ast inn á geðdeild og fyr­ir suma í hópn­um hef­ur það tekið veru­lega á að vinna úr af­leiðing­um þess. 

„Fjöl­miðlar hafa ít­rekað fjallað um óviðun­andi aðstæður á geðdeild­um og við tök­um und­ir þann mál­flutn­ing. Gróf­ur, grár steypu­vegg­ur tek­ur á móti fólki í stiga­gang­in­um hjá geðdeild­un­um og gef­ur nasaþef af fram­hald­inu. Fjöldi fólks sem leggst inn á geðdeild á erfitt með svefn. Ein­ung­is voru gul­ar, létt­ar gard­ín­ur fyr­ir glugg­um þegar við lág­um þar inni og erfitt að fá nægi­legt myrk­ur til að sofa.

Ein­stak­ling­ar eru sett­ir í tveggja manna her­bergi og gert að sofa þannig með ókunn­ugri mann­eskju á ein­um versta tíma­punkti lífs síns, jafn­vel þótt her­berg­is­fé­lag­inn gráti hátt, hrjóti eða sé með aðra trufl­andi hegðun.

Okk­ur var gert að fara á fæt­ur á morgn­ana og sam­lag­ast rútínu sjúkra­húss­ins en fátt var við að vera yfir dag­inn. Ekki er hægt að læsa her­bergj­um fólks sem ger­ir það að verk­um að aðrir inniliggj­andi geta farið inn í her­bergi annarra, ým­ist vilj­andi eða óvilj­andi.

Við höf­um upp­lifað það að starfs­fólk geðdeild­ar viti af því að inniliggj­andi karl­kyns mann­eskja stundi það að fara inn í her­bergi kvenna og jafn­vel leggj­ast upp í rúm hjá þeim og komi ekki í veg fyr­ir það held­ur biðji inniliggj­andi kon­ur að vera á varðbergi. Okk­ar reynsla var sú að of­beldi og áreitni milli inniliggj­andi ein­stak­linga var ekki tekið al­var­lega. Aðstæður bjóða upp á mis­notk­un og ým­iss kon­ar of­beldi af hálfu bæði inniliggj­andi fólks sem og starfs­fólks,“ seg­ir hóp­ur­inn.

Frá fundi hjá Hugarafli í dag. Mál­fríður Hrund Ein­ars­dótt­ir, formaður …
Frá fundi hjá Hug­arafli í dag. Mál­fríður Hrund Ein­ars­dótt­ir, formaður Hug­arafls,. mbl.is/​RAX

Sig­ur­borg seg­ir að það sé ekki bara erfitt að verða fyr­ir þvingaðri meðferð eða lyfja­gjöf inni á geðdeild held­ur sé líka erfitt að verða vitni að slíku.

Svava seg­ir að þegar fólk er al­var­lega veikt sé hugs­un­in að von­ast til þess að maður sé nægj­an­lega veik­ur til að fá að leggj­ast inn því alltaf sé ein­hverj­um vísað frá. Þegar fólk legg­ist inn renni skyndi­lega upp fyr­ir því ljós um að mega ekki fara út af deild­inni þrátt fyr­ir að hafa lagst inn sjálf­vilj­ugt. Að mega ekki ann­ast lyf­in sín sjálf þó svo þau séu skaðlaus og jafn­vel lyfja­gjöf sé breytt af geðlækni sem kannski hef­ur aldrei hitt þig, seg­ir Svava. 

Unga fólkið segir mikilvægt að styðja fólk í að finna …
Unga fólkið seg­ir mik­il­vægt að styðja fólk í að finna ástæður til að vilja lifa, frek­ar en að banna því að deyja. mbl.is/​RAX

Hluti af rétt­ind­um okk­ar er að fá að vita hvaða úrræði eru í boði, fá upp­lýs­ing­ar um alla val­kosti og að valdið til að velja sé í sam­ræmi við eigið inn­sæi. Ýmis þjón­usta er í boði á geðdeild en skort­ur er á að inniliggj­andi fólki sé sagt frá henni. Okk­ar upp­lif­un hef­ur verið sú að þau sem þekkja best til og krefjast góðrar og eðli­legr­ar þjón­ustu, fái bestu þjón­ust­una. Það er lág­marks­krafa að all­ir sem liggja inni á geðdeild viti t.d. að þar starfi sál­fræðing­ar sem hægt sé að bóka tíma hjá, að það megi fara út og það sé hægt að fá aðstand­enda­fund. Þjón­ust­an á að standa öll­um þeim til boða sem leita inn á geðdeild í stað þess að vera til­vilj­ana­kennd og þá aðallega veitt þeim sem krefjast rétt­ar síns.

Í Hugarafli eru nú á þriðja hundrað félagsmenn.
Í Hug­arafli eru nú á þriðja hundrað fé­lags­menn. mbl.is/​RAX

„Það er krafa okk­ar að fá yf­ir­lit yfir þá þjón­ustu sem fólki stend­ur til boða við inn­lögn og út­skrift af geðdeild. Það á að veita þess­ar upp­lýs­ing­ar á skýru manna­máli og tryggja að fólki sé vísað áfram í þjón­ustu að lok­inni út­skrift.

Einnig er al­gengt að ein­stak­ling­um í mik­illi van­líðan sé ávísað geðlyfj­um sem hafa þekkta auka­verk­un að auka lík­urn­ar á sjálfs­vígs­hugs­un­um og sjálfs­víg­um. Við telj­um það ekki ásætt­an­legt að halda áfram að ávísa þess­um lyfj­um án þess að veita um­tals­vert meiri upp­lýs­ing­ar um þessa áhættu til þeirra sem fá lyf­in og til aðstand­enda þeirra. Ein mögu­leg leið væri að krefjast þess að geðlyf með þessa auka­verk­un væru merkt með skýr­um hætti, t.d. með svört­um þrí­hyrn­ingi, sem myndi auka umræðu og vit­und al­menn­ings um þessa hættu, segja þær. 

Mik­il­vægt sé að bjóða upp á önn­ur úrræði en inni­lok­un á geðdeild, ekki síst fyr­ir þá sem fá höfn­un um inn­lögn. Þær Svava og Sig­ur­borg nefna skjóls­hús sem mögu­lega viðbót. Hug­arafl hafi lengi haft áhuga á að reka slíkt úrræði en það er ekki ódýrt úrræði þar sem um sól­ar­hrings­starf­semi er að ræða.  

Fólk geti leitað í skjóls­hús í krísu og dvalið í allt að tvær vik­ur á meðan það kem­ur fót­un­um und­ir sig. Þar verði fólki frjálst að koma og fara að vild, fólk fengi eigið her­bergi og gæti haft þar sína per­sónu­lega muni og leitað eft­ir sam­skipt­um við annað fólk. Skjóls­húsið yrði staðsett í ein­býl­is­húsi í rót­grónu íbúðar­hverfi og væri rekið að öllu leyti af fólki með per­sónu­lega reynslu af and­leg­um áskor­un­um. Þangað væri því hægt að leita tíma­bundið og ræða við annað fólk á jafn­ingja­grunni, ná jafn­vægi, deila von og bjargráðum og end­ur­vekja drauma um betri framtíð.

Við telj­um þörf á því að aðstand­end­um sé veitt­ur auk­inn stuðning­ur sam­hliða inn­lögn ást­vin­ar á geðdeild en slíkt var ekki í boði. Eft­ir­fylgni er veru­lega ábóta­vant, mik­il áhersla er á að út­skrifa fólk sem fyrst og jafn­vel eng­in fram­haldsmeðferð sem ætlað er að taki við í kjöl­farið, seg­ir Sig­ur­borg.

Sig­ur­borg seg­ir að fyr­ir aðstand­end­ur geti inn­lögn á geðdeild reynt mjög á enda stund­um erfitt að fá upp­lýs­ing­ar og að hitta viðkom­andi. Til að mynda fyr­ir börn. Í skjóls­húsi væri hægt að bæta aðgengi aðstand­enda og auka upp­lýs­ingaflæði. Jafn­framt að bjóða upp á and­legt hjarta­hnoð sem er ódýrt verk­færi. 

Eitt af því sem unga fólkið set­ur stórt spurn­ing­ar­merki við er þvinguð meðferð. „Ekki liggja all­ir inni á geðdeild af fús­um og frjáls­um vilja. Við telj­um mik­il­vægt að fjalla sér­stak­lega um þvingaða meðferð á geðdeild­um og nefn­um þá bæði beina og óbeina þving­un.

Sumu fólki er hótað að ef það fylgi ekki fyr­ir­mæl­um verði það nauðung­ar­vistað á geðdeild, gef­in lyf án samþykk­is þess eða komið í veg fyr­ir um­gengni við börn þess. Fólk fylg­ir því fyr­ir­skip­un­um gegn eig­in vilja og er ekki talið með í töl­fræðilegri út­tekt á þvingaðri meðferð.

Þvinguð meðferð er einnig enn við lýði í ís­lensku geðheil­brigðis­kerfi þótt við telj­um varla hægt að tala um „meðferð“ ef hún er þvinguð og í óþökk ein­stak­lings­ins. Ein­stak­ling­ar í upp­námi og til­finn­inga­legri krísu geta lent í því að vera nauðung­ar­vistaðir, svipt­ir sjálfræði og/​eða gef­in geðlyf án samþykk­is.

Þetta er al­var­leg vald­beit­ing sem sögð er vera í þágu ein­stak­lings­ins en get­ur í sjálfu sér falið í sér mikið áfall og end­urupp­lif­un á fyrri áfalla­sögu viðkom­andi mann­eskju. Það þarf að end­ur­skoða þessa starfs­hætti með afar gagn­rýn­um hætti.

Við leyf­um okk­ur að velta upp þeim mögu­leika að geðheil­brigðis­kerfi sem tek­ur mann­eskju úr tengsl­um við sam­fé­lagið, lok­ar hana inni, gef­ur lyf, set­ur stimpla á upp­lif­an­ir viðkom­andi sem fela í sér rót­gróna for­dóma og jaðar­setn­ingu og jafn­vel þving­ar viðkom­andi til að „þiggja“ þjón­ust­una, geti verið or­sök sjálfs­vígstilraun­ar eða jafn­vel sjálfs­vígs.

Það kæmi okk­ur ekki á óvart ef hluti van­líðanar sem fólk reyn­ir að losa sig frá (við) sé tengd þess­ari erfiðu upp­lif­un af geðdeild. Það sár­vant­ar fleiri val­mögu­leika í geðheil­brigðis­kerf­inu fyr­ir fólk sem treyst­ir sér ekki til að vera heima hjá sér vegna gíf­ur­legr­ar van­líðanar og vill líða bet­ur. Það vant­ar bein­lín­is griðastað fyr­ir fólk í öngstræti,“ seg­ir í til­lög­um unga fólks­ins en eitt af því sem Svava nefn­ir eru geðlyf sem fólk í sjálfs­vígs­hættu er gefið, stund­um séu þetta lyf sem auki hættu á sjálfs­víg­um. 

Að miðla von er afar mik­il­vægt, seg­ir Sig­ur­borg. Það er fullt af fólki sem hef­ur lent í þessu öngstræti og náð bata og lif­ir góðu lífi. Hef­ur ekki oft verið dregið fram í umræðunni, seg­ir hún. 

„Þetta miðlar ekki bara von til þeirra sem eru í svart­nætt­inu núna held­ur líka til aðstand­enda sem eru oft mjög ótta­slegn­ir varðandi framtíðina. Við fáum þau skila­boð úr fjöl­miðlaum­fjöll­un að það sé stór hluti fólks sem líði illa og hóp­ur fólks sem fell­ur fyr­ir eig­in hendi en eng­in bata­saga sam­hliða og síðan er ein­göngu bent á geðdeild, hjálp­arsíma og Píeta. Það vant­ar að draga fram þá staðreynd að það er stór hóp­ur sem hef­ur verið á þess­um stað en er á betri stað í dag,“ seg­ir Svava. Það þarf ekki að vera held­ur þannig að þér líði illa og síðan aldrei aft­ur. Þess­ar hugs­an­ir geta komið upp aft­ur eða verið viðvar­andi en þú sért samt fær um að lifa al­mennt góðu lífi í sam­fé­lag­inu bæt­ir hún við. Það er mik­il­vægt að hafa í huga að fólk sem upp­lif­ir sjálfs­vígs­hugs­an­ir, sjálfsskaða og til­raun­ir get­ur náð full­um bata, fundið til­gang, til­heyrt sam­fé­lagi og átt gott líf.

„Bati er lík­legri þegar við fáum þau skila­boð að það að lenda í öngstræti séu eðli­leg viðbrögð við mót­læti. Þegar komið er fram við okk­ur með um­hyggju og sam­kennd og þegar okk­ur er gef­inn næg­ur tími til þess að jafna okk­ur er lík­legra að við náum að koma und­ir okk­ur fót­un­um.

Það er staðreynd að þögg­un rík­ir um sjálfs­víg í okk­ar sam­fé­lagi, bæði nú og áður. Það er okk­ar reynsla að það að tala um þessi mál upp­hátt og op­in­ber­lega, minnki skömm og ein­angr­un þeirra sem upp­lifa sjálfs­vígs­hugs­an­ir. Þess­ar hugs­an­ir eru al­geng­ari en við höld­um og það hjálp­ar að tala um þær á jafn­ingja­grunni. Það er göm­ul goðsögn að það að ræða um ákveðin til­vik sjálfs­víga í litl­um sam­fé­lög­um leiði til þess að aðrir falli fyr­ir eig­in hendi.

Sann­leik­ur­inn er sá að það að tala op­in­skátt og á manna­máli um sjálfs­víg, hafa fyr­ir­mynd­ir og heyra bata­sög­ur, eyk­ur von og til­gang sem hef­ur sterkt for­varna­gildi. Þegar kem­ur að því að miðla von tengdri sjálfsskaða og sjálfs­vígs­hugs­un­um þykir okk­ur mik­il­vægt að sög­ur þeirra sem hafa staðið í þess­um spor­um fái að heyr­ast, seg­ir í stefnu­mót­andi til­lög­um ungs fólks með per­sónu­lega reynslu af sjálf­skaða, sjálfs­vígs­hugs­an­ir og sjálfs­vígstilraun­ir. „Það er gott að tala um hlut­ina,“ seg­ir Svava og Sig­ur­borg bæt­ir við: „að virkja þína nán­ustu þannig að þau geti veitt aðstoð, verið til staðar þegar þörf er á.“

mbl.is