Helsti áhættuhópurinn hefur ekki fengið lyfið

Samfélagsmál | 2. maí 2020

Helsti áhættuhópurinn hefur ekki fengið lyfið

Naloxon er lyf sem getur bjargað mannslífum þegar fólk hefur ofskammtað af ópíóíðalyfjum. Lyfið er til í tvenns kon­ar lyfja­formi, sem stungu­lyf og nefúðalyf. Stungulyfið hefur verið lengi á markaði á Íslandi en nefúðinn varð fyrst aðgengilegur hér fyrir tveimur mánuðum. 

Helsti áhættuhópurinn hefur ekki fengið lyfið

Samfélagsmál | 2. maí 2020

mbl.is/hag

Naloxon er lyf sem get­ur bjargað manns­líf­um þegar fólk hef­ur ofskammtað af ópíóíðalyfj­um. Lyfið er til í tvenns kon­ar lyfja­formi, sem stungu­lyf og nefúðalyf. Stungu­lyfið hef­ur verið lengi á markaði á Íslandi en nefúðinn varð fyrst aðgengi­leg­ur hér fyr­ir tveim­ur mánuðum. 

Naloxon er lyf sem get­ur bjargað manns­líf­um þegar fólk hef­ur ofskammtað af ópíóíðalyfj­um. Lyfið er til í tvenns kon­ar lyfja­formi, sem stungu­lyf og nefúðalyf. Stungu­lyfið hef­ur verið lengi á markaði á Íslandi en nefúðinn varð fyrst aðgengi­leg­ur hér fyr­ir tveim­ur mánuðum. 

Stungu­lyfið, eða sam­bæri­leg lyf und­ir öðru heiti, hef­ur verið á markaði á Íslandi frá því á ní­unda ára­tugn­um. Naloxon-stungu­lyfið er lyf­seðils­skylt og fyrst og fremst notað á heil­brigðis­stofn­un­um en einnig af bráðaliðum í sjúkra­bíl­um. Nauðsyn­legt er að þeir sem gefa lyfið á þessu formi hafi þekk­ingu og þjálf­un við notk­un þess, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Lyfja­stofn­un.

Naloxon er neyðarlyf sem getur bjargað mannslífum.
Naloxon er neyðar­lyf sem get­ur bjargað manns­líf­um. Há­skól­inn í Washingt­on

Naloxon sem nefúði er til­tölu­lega ný­legt form lyfs­ins, kom fyrst á markað í Banda­ríkj­un­um og Kan­ada árið 2015. Lyfið, sem heit­ir Nyxoid, var markaðssett hér á landi 1. mars en það er ætlað til taf­ar­lausr­ar notk­un­ar sem neyðarmeðferð við þekktri eða ætlaðri ofskömmt­un ópíóíða sem kem­ur fram sem önd­un­ar­bæl­ing og/​eða bæl­ing á miðtauga­kerf­inu, bæði inn­an heil­brigðis­stofn­anna og utan þeirra.

Mbl.is hef­ur áður fjallað um mik­il­vægi lyfs­ins en meðal þeirra sem hafa bar­ist fyr­ir því að það yrði aðgengi­legt á Íslandi er Rauði kross­inn.

Markaðsleyfið hef­ur breytt litlu

Svala Jó­hann­es­dótt­ir, verk­efn­a­stýra Frú Ragn­heiðar, seg­ir að markaðsleyfið hafi breytt litlu því lyfið er lyf­seðils­skylt, kostnaðarsamt og hár þrösk­uld­ur fyr­ir eintak­linga í áhættu­hópi að verða sér úti um það. Hún seg­ist hafa von­ast til þess að nefúðinn yrði lausa­sölu­lyf og færi und­ir sömu reglu­gerð og neyðargetnaðar­varn­arpill­an.  

Svala Jóhannesdóttir, verkefnisstýra Frú Ragnheiðar – skaðaminnkandi verkefnis fyrir fíkla …
Svala Jó­hann­es­dótt­ir, verk­efn­is­stýra Frú Ragn­heiðar – skaðam­innk­andi verk­efn­is fyr­ir fíkla og fólk á göt­unni. Har­ald­ur Jónas­son / Hari

„Þannig gætu all­ir sem þyrftu á lyf­inu að halda, ein­stak­ling­ar með vímu­efna­vanda, aðstand­end­ur þeirra og vin­ir og stjórn­end­ur úrræða sem þjón­usta mark­hóp­inn, farið í apó­tek og keypt Naloxon-nefúða. Ákveðnar regl­ur myndu svo gilda um hvernig það væri af­greitt, að viðkom­andi þyrfti að setj­ast niður með lyfja­fræðingi og farið væri yfir leiðbein­ing­ar á notk­un lyfs­ins, áhættuþætti, ofskömmt­un­ar­ein­kenni og fleira.

Þannig vild­um við í Frú Ragn­heiði og jafn­framt okk­ar sam­starfsaðilar hafa aðgengið og telj­um að það hefði verið skil­virk­asti kost­ur­inn fyr­ir alla. En því miður ákvað Lyfja­stofn­un að hafa Naloxon-nefúðann lyf­seðilskyld­ann og þar með var sett­ur frek­ar hár þrösk­uld­ur að lyf­inu hér á landi. Eng­inn skjól­stæðing­ur Frú Ragn­heiðar hef­ur til dæm­is fengið lyfið í hend­urn­ar og það eru ein­stak­ling­arn­ir sem eru í hvað mestri áhættu á að ofskammta af morfín­skyld­um lyfj­um“ seg­ir Svala.

Aðgengi­legt án lyf­seðils í nokkr­um lönd­um

Svala seg­ir að Naloxon-lyfið sé aðgengi­legt án lyf­seðils í nokkr­um lönd­um, þar á meðal á Ítal­íu, í Kan­ada, Ástr­al­íu og Frakklandi og að mörg lönd séu að dreifa Naloxon til ein­stak­linga í áhættu­hópi í gegn­um skaðam­innk­andi úrræði og bráðamót­tök­ur eins og Nor­eg­ur.

„Sam­kvæmt WHO er dreif­ing á Naloxon með end­ur­lífg­un­arþjálf­un í gegn­um lágþrösk­uldaþjón­ust­ur ein af hag­kvæm­ustu leiðunum til að koma í veg fyr­ir dauðsföll af völd­um morfín­skyldra lyfja og því skipt­ir máli að hugað verði að því að draga úr öll­um þrösk­uld­um að lyf­inu,“ seg­ir Svala.

mbl.is/​Val­g­arður Gísla­son

Til þess að ein­stak­ling­ur geti fengið Naloxon-nefúða hér á landi þarf lækn­ir að skrifa upp á lyfið og skrá það í sjúkra­skrá viðkom­andi.

„Með skrán­ingu í sjúkra­skrá er búið að stimpla ein­stak­ling­inn, að hann eigi við al­var­leg­an vímu­efna­vanda að stríða, bara það er ákveðinn þrösk­uld­ur fyr­ir fólk. Síðan þarf ein­stak­ling­ur­inn að fara í apó­tek og leysa lyfið út og tveir skammt­ar af Naloxon-nefúða kosta 5-6 þúsund krón­ur,“ seg­ir Svala.

Lækn­ir get­ur sótt um und­anþágu fyr­ir sjúk­ling á greiðslu á Naloxon. „Beiðni um slíka niður­greiðslu tek­ur nokkra virka daga sem er enn einn þrösk­uld­ur­inn að lyf­inu,“ seg­ir Svala.

OxyContin.
OxyCont­in. AFP

Ekki ávana­bind­andi og hættu­laust

„Naloxon-nefúðinn fékk markaðsleyfi hér á landi en það var ekki hugsað út í hvernig best væri að koma lyf­inu til þeirra sem þurfa hvað mest á því að halda, ferlið frá lyf­inu til mark­hóps­ins var ekki greint. Jafn­framt var ekki óskað eft­ir ráðgjöf frá fag­fólki sem starfar í miklu ná­vígi við mark­hóp­inn og held­ur ekki rætt við ein­stak­linga með virk­an vímu­efna­vanda um hvernig væri skil­virk­ast að gera þetta.

Naloxon er ekki áv­ana­bind­andi og er held­ur ekki hættu­legt lyf en það veld­ur mikl­um frá­hvörf­um sem not­end­ur vímu­efna vilja forðast, lyfið er þess vegna ein­göngu notað þegar ekk­ert annað er í stöðunni, í bráðatil­fell­um þegar um önd­un­ar- eða hjarta­stopp er að ræða. Það vill eng­inn fá Naloxon í sig,“ sagði Svala í sam­tali við mbl.is fyr­ir tveim­ur árum. 

Við erum því miður á ná­kvæm­lega sama stað og fyr­ir markaðsleyfið. Ekk­ert úrræði sem þjón­ust­ar ein­stak­linga með virk­an vímu­efna­vanda, að mér vit­andi, eins og neyðarg­isti­skýl­in, bú­setu­úr­ræðin eða vett­vangsteym­in eru með Naloxon. Held­ur ekki fang­els­in, lög­regl­an, né eintak­ling­ar í áhættu eða aðstand­end­ur eru komn­ir með lyfið í hend­urn­ar,“ seg­ir Svala.

Hrönn Stefánsdóttir, verkefnastjóri hjá neyðarmóttöku kynferðisbrota á Landspítalanum.
Hrönn Stef­áns­dótt­ir, verk­efna­stjóri hjá neyðar­mót­töku kyn­ferðis­brota á Land­spít­al­an­um. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Lyfið er lífs­bjarg­andi

Hrönn Stef­áns­dótt­ir, verk­efna­stjóri neyðar­mót­töku Land­spít­al­ans fyr­ir þolend­ur kyn­ferðisof­beld­is, seg­ir að Naloxon bjargi manns­líf­um og það mætti dreifa lyf­inu víðar eins og hjá lög­reglu­mönn­um, neyt­end­um sjálf­um sem og neyðar­skýl­um.

„Við ofskömmt­un á ópíöt-skyld­um lyfj­um bæl­ist meðvit­und og önd­un sem að get­ur valdið dauðsfalli. Með Nyox­id-nefúða er hægt að snúa við meðvit­und­ar­skerðingu og önd­un­ar­bæl­ingu þannig að ein­stak­ling­ur byrj­ar að anda. Þannig að lyfið er lífs­bjarg­andi. Helm­ing­un­ar­tími lyfs­ins er þó styttri en ópí­ata þannig að mik­il­vægt er að ein­stak­lingi sé komið sem fyrst und­ir hend­ur heil­brigðis­starfs­fólks,“ seg­ir Hrönn.

mbl.is/​Val­g­arður Gísla­son

Viðhaldsmeðferð mik­il­væg

Aðspurð um viðhaldsmeðferð seg­ir Hrönn það mik­il­vægt að gefa ein­stak­ling­um kost á slíkri meðferð og að það sé aukið aðgengi efna í þeim til­gangi án inn­lagn­ar eða afeitr­un­ar.

„Það gef­ur ein­stak­ling­um í virkri vímu­efna­neyslu kost á því að fá lækn­is­fræðilega lyfjameðferð með eft­ir­liti lækna á ör­ugg­an hátt.  Þá eru ein­stak­ling­ar ekki að fara í ótrygg­ar aðstæður til að nálg­ast vímu­efni þar sem að hætta er til dæm­is á of­beldi. Mik­il­vægt er að horfa til hug­mynda­fræði skaðam­innk­andi nálg­un­ar sem er skref í átt að bætt­um lífs­gæðum. Marg­ir sem að vinna í þess­um mála­flokki vita að ein­stak­ling­ar í virkri vímu­efna­neyslu treysta sér ekki að fara al­veg af vímu­efn­um og oft eru áföll und­an­fari vímu­efna­neyslu. Það þarf því sér­hæfða áfallamiðaða nálg­un í sam­skipt­um við þessa ein­stak­linga og þá sér í lagi í vímu­efnameðferð,“ seg­ir Hrönn Stef­áns­dótt­ir.

SÁÁ hef­ur veitt sjúk­ling­um sem sprauta þeim vímu­efn­um sem kölluð eru ópíóðar (morfín og morfín­skyld lyf og vímu­efni) í æð viðhaldsmeðferð með lyfj­um frá ár­inu 1999. Meðferðin er í flest­um til­fell­um veitt með lyf­inu bupren­orp­hine (su­boxo­ne) sem gefið er í tungurót­art­öfl­um en ein­staka sinn­um er lyfið met­hadon notað. Viðhaldsmeðferð ásamt fé­lags­legri og geðrænni end­ur­hæf­ingu hef­ur gjör­breytt meðferð og bata­horf­um þess­ara sjúk­linga seg­ir á vef SÁÁ.

mbl.is