Ríki ESB opni landamærin fyrir hvert öðru 15. júní

Evrópusambandið | 11. júní 2020

Ríki ESB opni landamærin fyrir hvert öðru 15. júní

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mælir með því að sambandsríkin 27 opni að fullu landamæri sín gagnvart hvert öðru frá og með 15. júní.

Ríki ESB opni landamærin fyrir hvert öðru 15. júní

Evrópusambandið | 11. júní 2020

Ylva Johansson á blaðamannafundi í dag.
Ylva Johansson á blaðamannafundi í dag. AFP

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins mæl­ir með því að sam­bands­rík­in 27 opni að fullu landa­mæri sín gagn­vart hvert öðru frá og með 15. júní.

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins mæl­ir með því að sam­bands­rík­in 27 opni að fullu landa­mæri sín gagn­vart hvert öðru frá og með 15. júní.

Þetta var til­kynnt á blaðamanna­fundi í dag. Áform eru uppi um að ytri landa­mæri sam­bands­ins verði síðan opnuð ró­lega í fram­hald­inu, og þá aðeins fyr­ir lönd­um þar sem talið er að náðst hafi stjórn á far­aldri kór­ónu­veirunn­ar.

„Alþjóðleg ferðalög eru lyk­il­atriði fyr­ir ferðaiðnað og viðskipti, og fyr­ir fjöl­skyld­ur og vini til að ná aft­ur sam­an,“ sagði fram­kvæmda­stjóri inn­an­rík­is­mála ESB, Ylva Johans­son, á fund­in­um.

„Þótt við þurf­um öll að gæta áfram var­ú­ar er kom­inn tími til að und­ir­búa af al­vöru aflétt­ingu á ferðatak­mörk­un­um til og frá lönd­um þar sem ástand heil­brigðismála er svipað því sem rík­ir inn­an Evr­ópu­sam­bands­ins,“ bætti hún við.

Að minnsta kosti 416 þúsund látn­ir

Í Banda­ríkj­un­um, þar sem flest­ir hafa hvort tveggja sýkst og lát­ist af völd­um veirunn­ar, fór fjöldi skráðra til­fella yfir tvær millj­ón­ir í dag.

Á sama tíma skreið fjöldi til­fella í Rússlandi yfir 500 þúsund.

Alls hef­ur veir­an dregið að minnsta kosti 416 þúsund manns til dauða frá því hún tók að breiðast út um heim­inn í des­em­ber, sam­kvæmt taln­ingu AFP-frétta­stof­unn­ar. Sam­tals hafa fleiri en 7,3 millj­ón­ir til­fella verið skráðar.

Mesti sam­drátt­ur á þess­ari öld

Far­ald­ur­inn hef­ur komið illa við efna­hag flestra ríkja heims­ins, enda hafa hon­um fylgt ým­iss kon­ar tak­mark­an­ir á ferðum og sam­kom­um manna.

Efna­hags- og fram­fara­stofn­un­in OECD greindi í dag frá því að á fyrstu þrem­ur mánuðum árs­ins hefði efna­hag­ur G20-ríkj­anna dreg­ist sam­an um 3,4%.

Sam­drátt­ur­inn er sá mesti frá því haf­ist var handa við að skrá þess­ar upp­lýs­ing­ar árið 1998. Mest­ur var hann í Kína, þar sem efna­hag­ur­inn dróst sam­an um heil 9,8%.

mbl.is