Aniston leið og vill drífa 2020 af

Jennifer Aniston | 11. ágúst 2020

Aniston leið og vill drífa 2020 af

Tökum á nýjum þætti af Vinum hefur enn og aftur verið frestað. Það eru ekki bara aðdáendur sem eru svekktir. Leikkonan Jennifer Aniston segist í viðtali við Deadline einnig vera afar leið en lítur þó á aðstæðurnar með jákvæðum augum.

Aniston leið og vill drífa 2020 af

Jennifer Aniston | 11. ágúst 2020

Jennifer Aniston.
Jennifer Aniston. AFP

Tök­um á nýj­um þætti af Vin­um hef­ur enn og aft­ur verið frestað. Það eru ekki bara aðdá­end­ur sem eru svekkt­ir. Leik­kon­an Jenni­fer Anist­on seg­ist í viðtali við Dea­dline einnig vera afar leið en lít­ur þó á aðstæðurn­ar með já­kvæðum aug­um.

Tök­um á nýj­um þætti af Vin­um hef­ur enn og aft­ur verið frestað. Það eru ekki bara aðdá­end­ur sem eru svekkt­ir. Leik­kon­an Jenni­fer Anist­on seg­ist í viðtali við Dea­dline einnig vera afar leið en lít­ur þó á aðstæðurn­ar með já­kvæðum aug­um.

Upp­haf­lega átti að taka þátt­inn upp um miðjan mars. Dag­setn­ing­unni var síðan frestað fram í maí en var svo frestað aft­ur og er ekki búið að ákveða nýja dag­setn­ingu. 

„Það er mjög leiðin­legt að við þurft­um að færa hana aft­ur,“ sagði Anist­on sem hlakk­ar til að taka þátt­inn upp þegar það er ör­uggt. „Þetta var: „Hvernig ger­um við þetta með áhorf­end­um?“ Það er ekki ör­uggt núna. Það er málið.“

„Þetta verður æði. Veistu hvað? Þetta hef­ur gefið okk­ur meiri tíma til þess að gera þetta spenn­andi og skemmti­legra en það hefði ann­ars verið. Svo ég vel að horfa á þetta þannig að glasið er hálf­fullt,“ sagði Anist­on og bætti við að þau væru ekki að fara neitt. 

Kór­ónu­veirufar­ald­ur­inn hef­ur haft áhrif á Anist­on eins og svo marga aðra og hef­ur árið ekki verið það besta í henn­ar lífi. „Ég þarf að end­ur­nýja öku­skír­teinið mitt og ég vil ekki að það standi 2020 á því,“ sagði Anist­on sem sagðist bara vilja drífa 2020 af. 

Jennifer Aniston.
Jenni­fer Anist­on. AFP
mbl.is