Aðalmeðferð í máli Jóns Baldvins gegn dóttur hans

Jón Baldvin Hannibalsson | 10. febrúar 2021

Aðalmeðferð í máli Jóns Baldvins gegn dóttur hans

Aðalmeðferð í máli Jóns Bald­vins Hanni­bals­son­ar gegn fjöl­miðlamann­in­um Sig­mari Guðmunds­syni, Rík­is­út­varp­inu og dótt­ur Jóns, Al­dísi Schram, hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Skýrslutökur í málinu fara þá fram en munnlegur málflutningur verður á föstudag.

Aðalmeðferð í máli Jóns Baldvins gegn dóttur hans

Jón Baldvin Hannibalsson | 10. febrúar 2021

Jón Baldvin Hannibalsson í héraðsdómi í morgun.
Jón Baldvin Hannibalsson í héraðsdómi í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Aðalmeðferð í máli Jóns Bald­vins Hanni­bals­son­ar gegn fjöl­miðlamann­in­um Sig­mari Guðmunds­syni, Rík­is­út­varp­inu og dótt­ur Jóns, Al­dísi Schram, hefst í Héraðsdómi Reykja­vík­ur í dag. Skýrslu­tök­ur í mál­inu fara þá fram en munn­leg­ur mál­flutn­ing­ur verður á föstu­dag.

Sum­arið 2019 stefndi Jón Bald­vin dótt­ur sinni Al­dísi Schram vegna um­mæla henn­ar í Morg­unút­varp­inu 17. janú­ar sama ár. Jón Bald­vin ger­ir ekki fjár­kröf­ur á hend­ur Al­dísi held­ur krefst þess að um­mæl­in, níu úr Morg­unút­varp­inu og ein af Face­book, verði dæmd dauð og ómerk.

Sig­mari er stefnt fyr­ir fern um­mæli úr þætt­in­um 17. janú­ar en Jón Bald­vin kref­ur hann um 2,5 millj­ón­ir króna.

Sigmar Guðmundsson í dómssal við upphaf aðalmerðferðar.
Sig­mar Guðmunds­son í dómssal við upp­haf aðal­merðferðar. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Sig­mar sagði í sam­tali við mbl.is árið 2019 að um­mæl­in væru end­ur­sögn á um­mæl­um Al­dís­ar í viðtal­inu og um­mæli sem hún hafði birt op­in­ber­lega á Face­book og aðrir miðlar höfðu vitnað til.

mbl.is