Lögmenn tókust á um mál Jóns Baldvins

Jón Baldvin Hannibalsson | 12. febrúar 2021

Lögmenn tókust á um mál Jóns Baldvins

Aðalmeðferð í máli Jóns Bald­vins Hanni­bals­son­ar gegn fjöl­miðlamann­in­um Sig­mari Guðmunds­syni, Rík­is­út­varp­inu og Al­dísi Schram, dóttur Jóns, hélt áfram í Héraðsdómi Reykja­vík­ur í dag en í dag fór fram munnlegur málflutningur lögmanna Aldísar og Sigmars.

Lögmenn tókust á um mál Jóns Baldvins

Jón Baldvin Hannibalsson | 12. febrúar 2021

Jón Baldvin Hannibalsson höfðaði mál á hendur Aldísi og Sigmari …
Jón Baldvin Hannibalsson höfðaði mál á hendur Aldísi og Sigmari en RÚV sinnir réttargæslu fyrir Sigmar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Aðalmeðferð í máli Jóns Bald­vins Hanni­bals­son­ar gegn fjöl­miðlamann­in­um Sig­mari Guðmunds­syni, Rík­is­út­varp­inu og Al­dísi Schram, dótt­ur Jóns, hélt áfram í Héraðsdómi Reykja­vík­ur í dag en í dag fór fram munn­leg­ur mál­flutn­ing­ur lög­manna Al­dís­ar og Sig­mars.

Aðalmeðferð í máli Jóns Bald­vins Hanni­bals­son­ar gegn fjöl­miðlamann­in­um Sig­mari Guðmunds­syni, Rík­is­út­varp­inu og Al­dísi Schram, dótt­ur Jóns, hélt áfram í Héraðsdómi Reykja­vík­ur í dag en í dag fór fram munn­leg­ur mál­flutn­ing­ur lög­manna Al­dís­ar og Sig­mars.

Vil­hjálm­ur H. Vil­hjálms­son, lögmaður Jóns Bald­vins Hanni­bals­son­ar, sagði á rétt­ar­höld­un­um að öll um­mæl­in sem Jón Bald­vin hef­ur stefnt Al­dísi og Sig­mari fyr­ir hafi falið í sér ásak­an­ir um lög­brot. Þá sagði Vil­hjálm­ur ljóst að Sig­mar bæri ábyrgð á þeim um­mæl­um sem hann „samdi og las í eig­in nafni“. 

Lögmaður Sig­mars, Stefán A Svens­son, mót­mælti þessu og sagði ljóst að Sig­mar hefði vitnað í um­mæli Al­dís­ar þegar hann flutti frétt­ir af mál­inu og væri því ekki brot­leg­ur. Það væri ekki rétt að Sig­mar full­yrti í eig­in per­sónu að Jón Bald­vin hefði gerst sek­ur um sifja­spell, hann hefði ein­fald­lega vitnað í um­mæli Al­dís­ar um málið.

Aldís Schram gengur inn í réttarsal.
Al­dís Schram geng­ur inn í rétt­ar­sal. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Fela í sér refsi­verða hátt­semi

Um­mæli Sig­mars og Al­dís­ar má, að sögn Vil­hjálms, flokka í þrjá flokka. Í fyrsta lagi eiga um­mæl­in við um meinta ólög­mæta frels­is­svipt­ing Al­dís­ar sem hún hef­ur sagt föður sinn hafa knúið fram, í öðru lagi snerta þau meint barn­aníð og barnagirnd stefn­anda og í þriðja lagi varða um­mæl­in sifja­spell sem Al­dís hef­ur sakað föður sinn um að hafa framið gagn­vart henni. 

Vil­hjálm­ur sagði ljóst að öll um­mæl­in fælu í sér ásök­un um refsi­verða hátt­semi. Það væri á ábyrgð Al­dís­ar og Sig­mars að haga um­mæl­um sín­um með þeim hætti að í þeim fæl­ust gild­is­dóm­ar en ekki staðhæf­ing­ar um staðreynd­ir.

„Öll þessi um­mæli fela í sér ásök­un um refsi­verða hátt­semi,“ sagði Vil­hjálm­ur. Þá sagði hann að al­mennt væri gengið út frá því í dóma­fram­kvæmd Hæsta­rétt­ar og með staðfest­ingu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu að staðhæf­ing­ar um staðreynd­ir sem ekki hef­ur verið sýnt fram á að eigi í sér stoð í raun­veru­leik­an­um séu ærumeiðandi aðdrótt­an­ir.

Sigmar Guðmundsson fréttamaður á réttarhöldum miðvikudagsins.
Sig­mar Guðmunds­son fréttamaður á rétt­ar­höld­um miðviku­dags­ins. mbl.s/​Krist­inn Magnús­son

Hringdi, sendi sms og tölvu­póst

Vil­hjálm­ur sagði að Sig­mar hefði óskað eft­ir viðbrögðum frá Jóni Bald­vini „kort­eri áður“ en viðtalið var birt og það ætti að mega bú­ast við meiru af Sig­mari, reynd­um frétta­manni, og Rík­is­út­varp­inu. 

Þetta sagði Stefán aug­ljós­lega ekki rétt, enda ligg­ur fyr­ir að Sig­mar hringdi í Jón Bald­vin, sendi hon­um smá­skila­boð og konu hans tölvu­póst dag­inn áður en viðtalið var birt. 

„Þetta er ekki sett fram í neinu tóma­rúmi,“ sagði Stefán um viðtal Sig­mars við Al­dísi og vísaði í að umræða hefði farið fram á Face­book um meint kyn­ferðis­brot Jóns Bald­vins. Þá benti Stefán á að Jón Bald­vin væri op­in­ber per­sóna.

Gunn­ar Ingi Jó­hanns­son, lögmaður Al­dís­ar, flyt­ur sitt mál inn­an skamms.

Um­mæli sem Jón Bald­vin fer fram á að dæmd verði dauð og ómerk eru eft­ir­far­andi:

Morg­unút­varp, Rás 2, 17. janú­ar 2019, um­mæli viðhöfð af Al­dísi:

  1. ... hann fær mig und­ir fölsku yf­ir­skini að heim­sækja afa minn ... mér var haldið inni þarna í mánuð sem sagt ólög­lega.
  2.  ... já. Fimm sinn­um á næstu 10 árum kast­ast í kekki milli mín og Jóns Bald­vins Hanni­bals­son­ar og því lyktaði ávalt með því að [sic] sigaði á mig lög­reglu sem hand­tók mig, hann er nátt­úru­lega ut­an­rík­is­ráðherra ...
  3. Hann gat bara þaðan í frá, þáver­andi ut­an­rík­is­ráðherra og síðar sendi­herra, virðist vera að hringja bara í lög­reglu og þá var ég þar með hand­tek­in, um­svifa­laust í járn­um, farið með mig upp á geðdeild ...
  4. ... hann er þá líka að mis­nota lít­il börn.
  5. ... ég neita að skilja þau eft­ir í um­sjón karls sem káf­ar á litl­um stúlku­börn­um.
  6.  Og sem sagt 10 mín­út­um eft­ir að ég kæri Jón Bald­vin þá hring­ir dyra­bjall­an. Þar rudd­ust þarna inn tveir lög­reglu­menn ef ekki þrír og ég, þegar ég sé það þá reyni ég að loka en auðvitað tókst mér það ekki, þeir ryðjast þá þar með inn og þeir svara mér engu, ryðjast inn í stofu þar sem dótt­ir mín 5 ára göm­ul er að lesa og þegar barnið er tekið frá mér þá verð ég æf.
  7. ... það er faðir minn sem stend­ur fyr­ir því að hér eigi að loka mig inni.
  8. Fíkn, auðvitað er barnagirnd fíkn, þetta er fíkn.
  9. ... nauðung­ar­vist­un án dóms og laga er þá ólög­mæt frels­is­svipt­ing ...

Face­book, 5. fe­brú­ar 2019, höf­und­ur Al­dís:

  1. ... og sigra hann og hans barn­aníðinga­banda­lag.

Rás 2, 17. janú­ar 2019, höf­und­ur og flytj­andi Sig­mar (Al­dís til vara):

  1. ... að Jón Bald­vin hafi notað aðstöðu sína sem sendi­herra til að láta nauðung­ar­vista hana á geðdeild.
  2. Sá fund­ur Al­dís­ar og Jóns Bald­vins seg­ir hún hafa reynst sér ör­laga­rík­ur og orðið til þess að hún var í fyrsta sinn nauðung­ar­vistuð á geðdeild.
  3. ... að Jón Bald­vin hafi sett sig í sam­band við fé­lags­mála­yf­ir­völd og geðdeild með það fyr­ir aug­um að fá hana nauðung­ar­vistaða í enn eitt skiptið.
  4. Þar seg­ir hún einnig að Jón Bald­vin hafi framið sifja­spell þegar hún var full­orðin kona.
mbl.is