Leyfir prinsunum og prinsessunni að verða skítug

Kóngafólk | 29. apríl 2021

Leyfir prinsunum og prinsessunni að verða skítug

Carole Middleton, móðir Katrínar hertogaynju af Sussex, er alltaf með eitthvert skemmtilegt verkefni tilbúið þegar barnabörnin hennar, Georg, Karlotta og Lúðvík, koma í heimsókn. Hún finnur alltaf eitthvað skemmtilegt til að gera með þeim og ekki skemmir fyrir ef krakkarnir ná að verða smá skítugir. 

Leyfir prinsunum og prinsessunni að verða skítug

Kóngafólk | 29. apríl 2021

Georg og Karlotta hjálpa ömmu sinni Carole Middleton við garðverkin.
Georg og Karlotta hjálpa ömmu sinni Carole Middleton við garðverkin. AFP

Carole Middlet­on, móðir Katrín­ar her­togaynju af Sus­sex, er alltaf með eitt­hvert skemmti­legt verk­efni til­búið þegar barna­börn­in henn­ar, Georg, Karlotta og Lúðvík, koma í heim­sókn. Hún finn­ur alltaf eitt­hvað skemmti­legt til að gera með þeim og ekki skemm­ir fyr­ir ef krakk­arn­ir ná að verða smá skít­ug­ir. 

Í viðtali við tíma­ritið Saga sagðist Carole alltaf vera búin að gera eitt­hvað til­búið svo það sé hægt að byrja strax á verk­efn­inu. 

„Ef ég er að fara planta með barna­börn­un­um, þá finnst mér gott að vera búin að út­búa nokkr­ar stöðvar, svo krakk­arn­ir séu með sína eig­in skóflu og pott og geti byrjað strax,“ sagði Carole. 

Hún sagði að það væri mik­il­vægt fyr­ir börn að læra að bera virðingu fyr­ir nátt­úr­unni og hluti af því væri að leyfa þeim að verða svo­lítið skít­ug. 

Carole seg­ir að kart­öfl­ur séu hið full­komna ein­falda græn­meti til að planta með börn­un­um. Hún rækt­ar líka gul­ræt­ur, rauðróf­ur og lauka með þeim. „Það er ekki til betri leið til að hvetja börn­in til að borða hollt en að leyfa þeim að sjá hvernig mat­ur vex.“

Lúðvík prins fær líka að vera með.
Lúðvík prins fær líka að vera með. AFP
mbl.is